Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2018, Qupperneq 5

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2018, Qupperneq 5
Siglfirðingablaðið 5 Boðið var upp á fjölda viðburða í bænum þessa helgi. Meðal annars opnun sýningar Ólafar Birnu Blöndal “Þótt líði ár og öld” og síðan stóðu Siglfirðingafélagið og Vildarvinir Siglufjarðar fyrir tveimur sýningum. Fjölmenni í Bláa húsinu Fjölmenni var á opnu húsi Siglfirðingafélagsins en félagið bauð bæjarbúum og gestum bæjarins á opið hús í Bláa húsinu laugardaginn 19. maí milli kl. 16 og 18. Þar stóðu félögin fyrir tveimur sýningum: Húsin í bænum og Andlit bæjarins frá 1960. Húsin í bænum er sýning með teikningum eftir Braga Magnússon, lögregluþjón, af húsunum í bænum sem sum hver eru nú horfin. Lögð var mikil vinna í veglega sýningarskrá sem inniheldur um 80 myndir eftir Braga sem munu nú varðveitast um ókomna tíð. Gunnar Trausti Guðbjörnsson og fjölskylda Braga áttu veg og vanda að sýningunni. Sýningarskráin, sem er ómissandi inn á hvert siglfirskt heimili, er til sölu hjá Merkismönnum, Ármúla 36 og kostar 2.000 kr. gunnar@merkismenn.is Teikningar Braga þökktu veggina en uppi á stórtjaldi í enda salarins var brugðið upp myndbrotum úr kvikmyndum sem teknar höfðu verið á Siglufirði fyrir 50 árum – sýningin Andlit bæjarins frá 1960. Megnið af myndunum höfðu félagar í kvikmyndaklúbbnum Linsunni tekið. Um er að ræða skemmtilega og líflega kvikmyndabúta og hljóð­ upptökur af lífinu í Æskó, síldar­ vinnslu, byggingu Strákaganga, æfingum hjá KS og fleira og fleira. Aðstandendur útgáfu bókarinnar um myndir Braga; Gunnar Trausti, Kristján Benediktsson og Systa Braga. Alli Rúts afhenti ferðafélagi Félags eldriborgara á Skálarhlíð veglega peningagjöf sem safnaðist við sölu bókarinnar um Alla, sem kom út fyrir síðustu jól. Með honum á myndinni eru Ingvar Ágúst Guðmundsson, formaður félags eldri borgara á Siglufirði og Björg Friðriksdóttir, gjaldkeri félagsins.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.