Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 18

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 18
Siglfirðingablaðið18 Auk þess að styrkja Kristniboðið, studdi Gústi alla tíð af miklum stórhug elsta starfandi félag Íslendinga, Hið íslenska biblíu­ félag. Einnig studdi Gústi alla ævi ýmiss líknarfélög, m.a. Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða kross Íslands. Það sem vakti mikla athygli Íslendinga var að Gústi studdi lítilmagnann og munaðarlaus börn víða um heim og sendi til þeirra fjárframlög í ein 40 ár. Þessi fátæku börn bjuggu í Afríku, Asíu og Suður­Ameríku. Þjóðarathygli vakti er hann studdi 50 Indíánabörn til náms í Bólivíu. Gústi hóf að styrkja börnin kornung að aldri. Þegar hann lést höfðu mörg þeirra lokið stúdentsprófi og bárust heim til Siglufjarðar fjölmörg bréf þar sem honum var þökkuð „lífgjöfin.“ Lengi má ræða um Gústa og líf hans. Mjög ánægjulegt er að á næstunni mun koma út bók um hann sem rituð er af séra Sigurði Ægissyni sóknarpresti Siglufjarðarprestakalls. Frægar eru sögur um Gústa í brakkanum hvar hann bjó alla ævina án allra nútímaþæginda. Sögur er hann týndist á sjó, fannst ávallt og komst heill heim í friðarhöfn. Eitt sinn fór allur flotinn á Siglufirði að leita að honum og er hann fannst, eftir að hafa verið týndur í þrjá daga, stóð hann uppi í báti sínum og söng þekktasta sálm í Vesturheimi Hærra minn Guð til þín. Kom síðan siglandi inn Siglufjörð og fjörðurinn og byggðin skörtuðu sínu fegursta Gústi var, eins og það er nefnt í kirkjusögunni Gjörandi orðsins. Hann framkvæmdi það sem hann boðaði. Prestar á Íslandi hafa oft nefnt að Gústi hafi verið prestur með stóru P. Stytta af Gústa á Ráðhústorginu, hvar hann boðaði Orðið í ein 40 ár, mun fyrst og síðast minna komandi kynslóðir á að „Maður lifir ekki af brauði einu saman heldur á sérhverju orði er fram gengur af Guðs munni.“ Styttan mun minna á fátækt heimsins, minna á börn sem þurfa aðstoð til að geta lifað og ekki síst mun hún minna á einkunnarorð Gústa, orð Krists, er segja: „Sælla er að gefa en að þiggja.“ Ánægjulegt er að vita af því hvað styttunni af Gústa guðsmanni, sem er gjöf til Siglufjarðarkaupstaðar á eitt hundrað ára afmæli kaupstaðarins, hefur verið vel tekið af Siglfirðingum heima og að heiman. Styttuna af Gústa guðsmanni gerði listamaðurinn Ragnhildur Stefánsdóttir. Eins og kunnugt er gerði hún m.a. styttuna af séra Bjarna Þorsteinssyni, tónskáldi og heiðursborgara Siglufjarðar, sem stendur við Siglufjarðarkirkju. Einnig má nefna styttuna af Ingibjörgu H. Bjarnason við Alþingishúsið sem Ragnhildur gerði árið 2015 í tilefni af 100 ára kosningarétti íslenskra kvenna. Vigfús Þór Árnason Sr. Vigfús fylgist með listamanninum Ragnhildi Stefánsdóttur, við gerð styttunnar. Bekkjafélagarnir Óskar Garibaldason og Gústi guðsmaður. Opnaður hefur verið reikningur í Arionbanka Á Siglufirði, er ber heitið Sigurvin eins og bátur Gústa. Söfnunarreikningur átaksins er: 0348 - 26 - 2908 kt. 500817 - 1000

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.