Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2018, Qupperneq 6

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2018, Qupperneq 6
Siglfirðingablaðið6 Grafarvogskirkja 27. maí Hátíðardagskrá í Siglfirðingakaffi Grafarvogskirkja var þétt setin í Siglfirðingakaffinu þegar á fjórða hundrað manns mættu til messu, í kaffið og í sérstaka hátíðardagskrá. Þeir félagar Karíus og Baktus skemmtu yngri kynslóðinni á neðri hæð kirkjunnar. Dagurinn hófst með messu. Séra Vigfús Þór Árnason þjónaði fyrir altari ásamt siglfirsku prestunum Arnfríði Guðmundsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands, séra Kjartani Erni Sigurbjörnssyni, sjúkra­ húspresti og séra Díönu Ósk Óskarsdóttur sjúkrahúspresti. Snævar Jón Andrésson þjónaði einnig. Ritningarlestra lásu Hermann Jónasson, Kristján L. Möller, Jónas Skúlason og Rakel Fleckenstein Björnsdóttir. Kór Grafarvogskirkju söng undir stjórn Hákonar Leifssonar. Hlöðver Sigurðsson söng einsöng en síðan fluttu þeir bræður Hlöð­ ver og Þorsteinn Sólsetursljóð séra Bjarna Þorsteinssonar. Siglfirðingakaffið Kökuborðið svignaði að vanda undan kræsingum. Bæjarstjórn Fjallabyggðar sendi félaginu köku í tilefni dagsins, Geiri Erlends í Geirabakaríi og Kobbi og Elín í Aðalbakaríi gáfu kökur og árgangar 1958, 1968, 1978 og 1988 gáfu kökur og aðstoðuðu við borðaröðun, uppvörtun og frágang. Stjórn Siglfirðingafélagsins færir þessum aðilum og öllum þeim fjölmörgu sem gáfu kökur kærar þakkir. Hátíðardagskrá eftir kaffi Sætabrauðsdrengirnir, með Hlöðver Sigurðsson í broddi fylkingar, hófu dagskrána og skemmtu afmælisgestum á sinn einstaka hátt með fallegum söng, gríni og glensi. Steinunn Sveinsdóttir, formaður bæjarráðs Fjallabyggðar hélt tölu og færði Siglfirðingum öllum kveðjur frá bæjarstjórn Fjallabyggðar. Hátíðarræðuna flutti Kristján L. Möller, fyrrv. bæjarfulltrúi, ráðherra og alþingismaður. Guðmundur Stefán Jónsson sýndi klippuna sem gerð var úr sjónvarpsþáttum RÚV og sagði frá gjöfinni sem Vildarvinir Siglufjarðar og Siglfirðingafélagið færðu Fjallabyggð. Leó R. Ólason og Hallvarður Óskarsson lokuðu síðan dag­ skránni með siglfirskum tónum og allir héldu glaðir út í daginn eftir mjög svo ánægjulega samveru.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.