Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 16

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 16
Jón Kjartansson bæjarstjóri var að halda árshátíðarræðuna og var orðinn ansi langorður að mati Jónasar og ræddi m.a um fráveitumál, líkt og Gunnar Birgisson gæti gert í dag. Jónas samdi vísu og stakk í kassann og var síðan kallaður upp til að fá fyrstu verðlaun fyrir vísu sína sem var svona. Ræðan hans Jóns var nokkuð góð þar sem hann stóð. En það er svo margt í þessum bæ - sem rennur út í sæ. Good bæ Já þetta voru dýrðartímar en erfiðir og tóku sinn toll. Mörgum utanbæjarmönnum finnst landið vera fullt af Siglfirðingum, þeir eru alls staðar og eru hreyknir af uppruna sínum. En sagan um hversu Siglfirðingar eru margir er best sögð svona: Siglfirðingar eru í kringum 25 þús. alls, 1250 eru nú á Siglufirði að gera það sem þar þarf að gera, hinir 23.750 hafa dreift sér um landið og heiminn og gegna þar ýmsum nauðsynlegum trúnaðar­ og ábyrgðastörfum. T.d. má geta þess að Siglfirðingar áttu annan stærsta þingflokk á Alþingi árið 2003 eða samtals 18 þingmenn og geri aðrir betur. Ég fæ ekki fullþakkað að hafa fæðst og alist upp á þessum stað og á þessum tíma. Engar tölvur, gemsar eða Ipaddar, bara samvera, vinna og endalausir leikir. Munið þið t.d. eftir þessu: Kóka kóla og þrjár heitar kótilettur í raspi í hálfleik í bíóinu! Siglingar á drekkhlöðnum blikk kæjökum, án björgunarvestis! Boltaleikurinn – yfir ­ við hjallinn á Laugarveginum, þar sem einn í hvoru liði hafði það hlutverk að plokka út harðfisk handa öllu liðinu! Haustin þegar byrjað var að dimma að fara um og gera at í fólki! Já og að hreinsa upp þessi fáu jarðarber sem uxu í garðinum hjá Stebba í Seljalandi! Og svona mætti lengi telja. Ég get líka þakkað það að hafa getað endurgoldið Siglufirði að nokkru þetta atlæti á uppvaxtarárunum með vinnu minni fyrst sem Íþrótta­ og æskulýðsfulltrúi bæjarins þar sem mikil uppbygging átti sér stað, síðan sem bæjarfulltrúi til 12 ára, þar sem ég kom m.a. annars að sölu raf ­ og hitaveitu Siglufjarðar til að grynnka á skuldum bæjar­ sjóðs, sem voru mjög miklar, en um leið með samningi við þáverandi ríkisstjórn um yfirtöku mikilla skulda hitaveitunnar áður en til sölu kom, svo að mörgum ráðherrum blöskraði atgangur okkar. Af þessu tilefni orti Sighvatur Björgvinsson ráðherra: Siglfirðingar suður héldu saman gerðu ys þar eigur sínar allar seldu í það minnsta tvis-var. Einnig kemur upp í hugann barátta fyrir Héðinsfjarðar­ göngum allan þennan tíma. Og að lokum fæ ég seint þakkað mikinn og góðan stuðn ing í mínum heimabæ við nokkuð mörg prófkjör svo og kosningar til Alþingis, en á Alþingi starfaði ég í tæp 17 ár og sem samgöngu­ ráðherra í rúm þrjú ár, m.a á verktíma Héðinsfjarðarganga þegar allt stefndi í óefni í hruninu margfræga þar sem menn óttuð­ ust oft um framhald verksins vegna ýmissa utanaðkomandi aðstæðna. Sú saga verður etv sögð síðar. En Héðinsfjarðargöng voru kláruð og tekin í notkun haustið 2010 og ég fullyrði að engin einstök framkvæmd hefur haft eins jákvæð áhrif á að snúa vörn í sókn í heimabæ okkar. Endurreisn bæjarins hófst þá og ekki get ég látið hjá líða að minnast á alla hina miklu og glæsilegu uppbyggingu Róberts Guðfinnssonar og ýmissa annara bæjarbúa. Siglufjörður er aftur kominn á landakortið, ekki sem höfuð­ staður síldveiða, heldur sem einn mest spennandi kaupstaður landsins til að heimsækja og dvelja í, fallegt umhverfi, gott mannlíf, eitt besta skíðasvæði landsins, nýr golfvöllur, ótal margar fallegar gönguleiðir og margt margt fleira. Í lokin finnst mér gott að fá að koma því að að í dag er 100 ára fæðingarafmæli föður míns Jóhanns G. Möller, eins mesta Siglfirðings sem ég hef kynnst. Hann fæddist 27. maí 1918, fjórði í röð 8 barna Christians Ludvig Möller lögreglu­ þjóns og Jónu Sigur bjargar Rögnvaldsdóttur. Hann kom víða við í félagsmálum bæjar­ ins og var m.a. bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í aldarfjórðung frá 1958 ­ 1982. Og meira af afmælum, því Alda systir mín er 70 ára í dag. Sem sagt, stór hátíðardagur. Ég þakka enn á ný fyrir það tækifæri að fá að halda hátíðar­ ræðu dagsins hér á 100 ára afmæli bæjarins okkar. Við eigum öll sterkar rætur í bænum sama hvernig hann breytist og hvar við erum ­ og ég vil leyfa Snorra Jónssyni að eiga hér síðustu orðin: Ennþá kúrir bærinn sig inn á milli fjalla og ennþá vakir þráin í huga sérhvers manns. Það er alveg sama hvar Siglfirðingur sefur silfurtær er fjörðurinn ætíð í draumum hans. Siglfirðingablaðið16

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.