Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Side 20

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Side 20
Siglfirðingablaðið20 laust við að okkur strákunum yrði svolítið bilt við þegar fyrstu tónar fyrsta lagsins á A­síðunni “Good times, bad times” rauf þögnina í herberginu sem hafði verið þrungin talsverðri eftirvæntingu. Eftir að hafa hlustað á alla plötuna sagði einhver í hópnum: “Jú, þetta er nú bara alveg þó nokkuð gott”. Bláu Bítlarnir og fleiri upprennandi barnastjörnur. Við Hendrix­liðarnir byrjuðum að æfa í kjallaranum heima hjá Óttari, en síðar fengum við inni í Æskó um tíma. Um svipað leyti æfði barnaskólahljómsveitin Bláu Bítlarnir þar uppi í risi, þ.e. þeir Finni Hauks, Siggi Blöndal, Bjössi Sveins og Robbi Guðfinns. Halli Gunni mun einnig hafa staldrað við alveg örstutt, en hann var látinn fara þar sem hann taldist ekki eiga samleið með hinum strákunum af þeirri ástæðu að hann var allt of góður. Þegar leið á líftíma bandsins sem var reyndar ekkert mjög langur, gerðist Robbi umboðsmaður og Biggi Inga tók við trommunum, en hann hafði aðeins spilað með lúðrasveitinni sem Hlynur Óskars stjórnaði um þær mundi. Simon says, You can dance, Yummy yummy yummy og Money money voru vinsælustu lögin og á þessum tíma var Simon says líklega á lagalista allra starfandi hljómsveita á Siglufirði og þótt víðar væri leitað. Meira að segja líka hjá Hrím og var þar mikið stílbrot innan um allan blúsinn og eðalrokkið. Stjáni bróðir Finna söng You can dance í Max, og Finni söng það þess vegna líka í sinni hljómsveit, en Gunna Finna söng það svo líka heima á Eyrargötunni á góðum stundum og spilaði að sjálfsögðu undir á kassagítarinn. Bláu Bítlarnir munu hafa spilað á einu balli í Æskó auk þess að koma einu sinni fram hjá Max. Finni sagði að Robbi hefði verið góður umboðsmaður og hann hefði hugsað mikið um að græjumálin væru í góðu lagi. Á þessum tíma voru flestir að nota hvítu Teisco88 magnarana sem reyndust ágætlega, en öryggin í þeim áttu það þó til að springa. Kannski var það vegna þess að stundum voru margir að nota þá á sama tíma og þeir ekki þolað álagið, en dæmi voru þess vegna um að þau voru fjarlægð og nagli settur í staðinn. Einhvern tíma mun Robbi hafa verið að sýsla með sprungið öryggi, en fyrir einhverja rælni stungið fingrinum í gatið þar sem öryggið átti að vera. Ekki var að sökum að spyrja, mikill hvellur, reykur og eldglæringar fylgdu þessari aðgerð og umboðsmaðurinn sem varð þarna vel upplýstur um hvernig rafmagn hegðaði sér, mun framvegis hafa betur kunnað fingrum sínum forráð í öryggismálum. Stebbi Fidda, Matti Ægis og Bjössi Jósefínu (og e.t.v. einhverjir fleiri) æfðu nokkur vel valin lög um svipað leyti og komu fram við ýmis tækifæri. Bjössi var söngvarinn í hópnum og söng m.a. rússnesk þjóðlög, en hann hafði mikla og djúpa rödd. Stebbi sagðist hafa eignast sinn fyrsta gítar á eins konar fjármögnunarleigu hjá Robba. Stutta útgáfan af sögunni var að Stebba vantaði gítar en átti ekki pening. Robbi átti pening en vantaði ekki gítar. Robbi keypti gítar handa Stebba sem borgaði Robba þegar hann fékk borgað fyrir að spila á gítarinn. ­ Ekki mjög flókið. Og Stebbi Fidda kom víðar við á þessum árum, því hann varð einnig liðsmaður í hljómsveitinni Áhrif sem æfði stíft um tíma í kjallaranum í Æskó um eða upp úr 1970 en spilaði þó eitthvað lítið. Þar voru einnig liðsmenn þeir Raggi Tona (söngvari) Baldur Jörgen, Guðni Sölva, Matti Ægis, Kristinn Ásmundsson (örfhentur gítarleikari úr Fljótunum sem síðar spilaði með Upplyftingu) og Björn Valur Gíslason skipstjóri, fyrrverandi alþingismaður og aðal hugmyndafræðingurinn í Roðlaust og Beinlaust. Ekki má svo gleyma að nefna til sögunnar Halla Bó sem var sérlegur fylgifiskur hljómsveitarinnar Í Gagganum varð til hljómsveitin Tupamaros, en þar voru á ferðinni að miklu leyti sömu drengir og skipuðu Bláu Bítlana áður, en þeir voru Stebbi Fidda, Bjössi Sveins, Höddi Júll og Siggi Blöndal. Tupamaros spilaði meðan hún var við lýði á nokkrum böllum í Gagganum, Æskó og a.m.k. einu sinni í Allanum.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.