Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Side 21

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Side 21
Siglfirðingablaðið 21 og hafði m.a. það sérstæða hlutverk að sitja fyrir framan bassatrommuna til að hún yrði kyrr á sínum stað meðan Guðni lamdi húðirnar, en hann átti þó einnig til að taka eitt og eitt lag inn á milli. Nafnlausu hljómsveitirnar. Um svipað leyti og Óskar Elefsen, Finni Hauks, Biggi Inga og Siggi Blöndal hófu æfingar í kjallaranum heima hjá Óskari á Suðurgötunni, var unglingahljómsveitin Hendrix að leysast upp. Þórhallur vildi spreyta sig með einhverjum lengra komnum og hóf æfingar með Þolla Halldórs, Stúlla Kristjáns og Vidda Jóhanns. Þetta band sem enginn sem ég þekki til man eftir að hafi borið neitt nafn, spilaði á einu balli í Æskó og var saga þess þar með öll því að Stúlli þurfti að skila rafmagnsorgelinu sem hann fékk lánað hjá þeim sem þetta ritar. Fáeinum mánuðum síðar lá leið Þórhalls í Lísu með Eið og félögum, en hann átti auðvitað eftir að koma meira við sögu síðar. Kjallarabandið á Suðurgötunni náði aldrei að spila opinberlega og kom sér heldur aldrei upp neinu nafni. Helmingur þess sameinaðist síðan helming Hendrix, en sú afurð fékk æfingaraðstöðu í kaffistofunni í Ísafold. ­ Þökk fyrir það Skúli Jónasson. Þar með varð til enn ein nafnlausa hljómsveitin sem samanstóð af Óskari Elefsen, Bigga Inga, Guðna Sveins og undirrituðum. Guðni sem nú var orðinn sólógítarleikari, æfði stíft endalausar fingraæfingar, var sendur í sveit um sumarið inn á Reykjarströnd í Skagafirði, en tók auðvitað gítarinn með. Við Óskar hjóluðum þá upp á Krók, m.a. í því skyni að veita honum móralskan stuðning í æfingabúðunum, en snérum reyndar við þar vegna þess hve við vorum orðnir þreyttir. Fyrsta og jafnframt síðasta giggið okkar var í Gagganum, en þar fengum við náðarsamlegast að koma fram á Diskóteki. Það fór bókstaflega allt úrskeiðis sem farið gat úrskeiðis. Bilaðar snúrur, sambandsleysi í magnara, suð og urg sem enginn vissi hvaðan kom og allir við það að fá taugaáfall. Útkoman var verulega vond svo ekki sé meira sagt og eftir fjögur lög hrópaði ein skólasystir mín eins hátt og raddböndin leyfðu: “Komiði með diskótekið aftur”, og það varð endirinn á útgerðinni. Ég fann Guðna vin minn svolitlu síðar um kvöldið sitjandi úti á tröppum þar sem hann bar sig ekki sérlega vel. Ég mælti einhver huggunarorð sem dugðu þó skammt og sagði eitthvað í þá áttina að þetta gengi nú bara betur næst. “Skítt með hvernig þetta gekk hjá okkur, en hvað heldurðu að stelpurnar segi eftir þetta” svaraði sólógítarleikarinn. Hljómsveitin með undarlega nafnið. Það er ekki hægt að ljúka upptalningunni á siglfirskum unglingahljómsveitum sem lifðu mjög stutt og spiluðu lítið sem ekkert án þess að nefna eina til, en val á nafni hennar olli Við Guðni Sveins vorum miklir mátar og áttum það jafnvel til að klæða okkur með svipuðum hætti eins og sjá má. Guðmundur Ingólfsson söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar FART.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.