Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 25

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 25
Siglfirðingablaðið 25 Bragi starfaði lengi og vel að íþrótta­ og félagsmálum. Hann var um langt árabil einn af bestu knattspyrnumönnum Siglfirðinga, traustur og útsjónarsamur bakvörður sem mótherjar liðs­ ins lærðu fljótt að bera fulla virðingu fyrir. Hann var og góður sundmaður en keppti ekki í þeirri grein. Golf stundaði hann allmikið á síðari hluta ævinnar. Skíði stundaði hann dálítið og keppti í göngu á skíðamótum á yngri árum. Vegna farsælla starfa hans í íþróttahreyfingunni hlóðust á hann störf í þágu skíðaíþróttarinnar langt fram eftir aldri, m.a. var hann lengi dómari við skíðastökk, bæði á landsmótum og í heimahögum. Þá stundaði hann stangaveiði og var mjög áhugasamur um ræktun Fljótaár sem Stangaveiðifélagið á Siglufirði hafði á leigu um langt skeið. Bragi eignaðist traustan hóp vina og félaga í íþróttahreyfingunni á Siglufirði á æskuárum, en nýir bættust stöðugt í hópinn, starfsfélagar og fleiri sem höfðu ánægju af samvistum við þennan fjölhæfa, greinda og skemmtilega mann. Í honum var listrænn strengur sem nýttist ákaflega vel til skemmtunar í góðra vina hópi en var aldrei sleginn til frægðar né fjáröflunar. Hann var ágætur teiknari að eðlisfari en mun aldrei hafa orðið sér úti um neina tilsögn eða kennslu í þeirri grein, umfram það sem læra má í almennum skólum. Á yngri árum fékkst hann talsvert við skopmyndateikningar og efndi 1946 til sýningar á slíkum myndum. Er hún enn mörgum minnisstæð. Á seinni árum teiknaði hann einkum myndir af gömlum húsum á Siglufirði. Líklega hefur hann orðið fyrstur til þess að vekja athygli á minjagildi gamalla mannvirkja í bænum, einkum síldarbrakkanna, með grein sem hann birti í bæjar­ blaðinu Mjölni á Siglufirði árið 1975, ásamt teikningum sínum af nokkrum þessara mannvirkja. Þá var hann góður hagyrðingur, orti lausavísur, og fáein ljóð eftir hann hafa birst á prenti auk greina og smásagna í blöðum og tímaritum. Út kom barnabók með myndum og texta eftir hann, Sagan hennar Systu, og varð mjög vinsæl. Hann var ákaf­ lega handlaginn og hafði gaman af að spreyta sig á verkum sem útheimtu nákvæmni og vandað hand bragð. Meðal hluta sem hann smíðaði og ég man sérstak­ lega eftir voru gítar, veiðistöng samanlímd úr sex lengjum og dingulklukka með verki úr tré. Hann var formaður eða í stjórn margra félaga á Siglufirði. Má þar nefna Skíðafélag Siglfirðinga, Knattspyrnufélag Siglufjarðar, Íþróttabandalagið, Golfklúbbinn, Stangaveiðfélagið, Slysavarnadeild karla, Starfsmannafélag Siglu­ fjarðar og Kiwanisklúbbinn Skjöld. Hann safnaði margvís­ legum fróðleik og skráði um íþróttahreyfinguna á Siglufirði og mun sú samantekt hafa náð talsvert út í nágrannabyggðirnar. Nokkrar blaðagreinar um íþrótta­ mál birti hann í blöðum en trú lega er miklu fleira að finna í minnispunktum og handritum. Þá tók hann upp á segulbönd viðtöl við gamla Siglfirðinga um liðna tíma. Er vonandi að þessi fróðleikur varðveitist á vísum stað, ásamt teikningum hans sem hafa menningarsögulegt gildi fyrir Siglufjörð. Eftir að Bragi kom til Siglu­ fjarðar vann hann öll algeng störf. Vann við síldar söltun, smíða vinnu, þar á meðal við að byggja Síldar verksmiðjuna SR 46. Bragi hóf störf hjá lög­ reglunni 7. nóv. 1948. Árið 1966 hætti Bragi í lögreglunni og tók við gjaldkerastarfi hjá bæjarfógetanum í Siglufirði og því starfi gegndi hann þar til hann hætti störfum fyrir aldurs sakir. Hann gegndi mörgum störfum fyrir hin ýmsu félög og var lengi í stjórn Skíðaborgar, eða allt þar til skíðafélögin voru sameinuð. Hann vann mikið fyrir KS auk þess að vera aðalmaður í liðinu. Bragi var í mörg ár skíðadómari og fór víða um land til þeirra starfa. Upp úr 1950 veiktist Harða eiginkona Braga af berk­ lum og var langtímum saman á Kristnes hæli. Harða náði sér aldrei af berklaveikinni og þá sýndi Bragi hvern mann hann hafði að geyma, að sjá um dætur sínar ungar og að heimsækja eiginkonu sína inn á Kristneshæli. Þá var póst­ og mjólkurbáturinn tvisvar í viku. Þær voru ófáar ferðirnar með póstbátnum sem báru bréf Braga til Hörðu. Eins og fram kemur hér að ofan hefur það verið mér mikil ánægja og heiður að sjá um sýningu á horfnum húsum og mannvirkjum á Siglufirði. Vona ég að þar með hafi ég launað mínum gamla nágranna þegar hann gerðist áskrifandi af vikublaðinu Strákar á sjötta áratug síðustu aldar sem nokkrir Brekku­ og Bakkaguttar fjölrituðu sér og öðrum vonandi til gamans. Gunnar Trausti Sýningarskráin, sem er ómissandi inn á hvert siglfirskt heimili, er til sölu hjá Merkismönnum, Ármúla 36 og kostar 2.000 kr. gunnar@merkismenn.is Afar skemmtileg bók, hverrar krónu virði. 68 ára gamall kall.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.