Fréttablaðið - 14.06.2022, Qupperneq 1
Landspítalinn beitti
neyðarrétti til að fá
undanþágu til að
kaupa án útboðs af
heildsölunni Lyru.
1 1 5 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 4 . J Ú N Í 2 0 2 2
Margrét Blöndal
skapar töfra
Hæ hó
og jibbíjei
Menning ➤ 14 Lífið ➤ 16
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is
Eclipse Cross PHEV 4x4
Förum saman út í bláinn!
Eclipse Cross PHEV getur dregið 1.5 tonn, er með lyklalausu
aðgengi, hraðastilli, hita í stýri, bakkmyndavél, þreytuviðvörun,
akreinavara o.fl. Verð frá 5.970.000 kr.
Heildsalan Lyra, sem selur
rannsókna- og greiningatæki
og vörur til efnagreininga,
margfaldaði tekjur sínar og
hagnað í kórónuveirufaraldr-
inum, mestmegnis með sölu
til ríkisins án útboðs. Hagn-
aðurinn var 1.954 milljónir
króna og eigendur tóku sér
750 milljónir í arðgreiðslu.
gar@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Neyðarástand vegna
kórónuveirufaraldursins skýrir
gríðarlega söluaukningu hjá heild-
sölufyrirtækinu Lyra, sem velti
4.250 milljónum króna í fyrra og
skilaði 1.954 milljónum króna í
rekstrarafgang.
Feðginin sem eiga Lyra ákváðu að
skipta með sér allt að 750 milljónum
sem arðgreiðslu vegna árangursins.
Lyra er fjölskyldufyrirtæki sem
stofnað var á árinu 1991 og fæst við
sölu á rannsókna- og efnagreininga-
tækjum svo og rekstrarvörum til
efnagreininga. Framkvæmdastjóri
þess og aðaleigandi er Höskuldur H.
Höskuldsson.
Langstærsti viðskiptavinur Lyru
er Landspítalinn með kaupum á
veirugreiningatækjum og tilheyr-
andi efnum til prófana.
Að því er segir í upplýsingum sem
fengust frá Landspítalanum í gær
fóru innkaupin frá Lyru fram án
útboðs. Undanþágur til þess feng-
ust með beitingu neyðarréttar í ljósi
ástandsins í heimsfaraldrinum.
Meðal annars hafi Landspítalinn
keypt raðgreiningatæki en kostn-
aðurinn felist þó ekki síður í hvarf-
efnum til greininga á sýnum vegna
Covid-19. Uppi hafi verið alheims-
neyðarástand og slegist hafi verið
um þessi efni á markaðinum.
Samkvæmt svörum Landspítal-
ans þótti nauðsynlegt að fá tækin og
efnin því greiningagetan hafi verið
sprungin og Íslensk erfðagreining
borið þungann af greiningum.
Árið 2016 velti Lyra 596 milljón-
um króna og hagnaðurinn þá var 8
milljónir króna eftir skatt.
Hagnaðurinn í fyrra var sem
fyrr segir 1.954 milljónir, eða hátt
í helmingur þess sem selt var fyrir.
Að frádregnum tekjuskatti var
hagnaðurinn 1.564 milljónir króna.
„Covid-heimsfaraldurinn hefur
haft í för með sér aukna spurn eftir
vörum félagsins og veltuaukningu
samanborið við fyrra ár“, er útskýrt
í ársreikningi Lyru fyrir árið 2021.
Svipaða færslu er að finna í árs-
reikningi Lyru fyrir árið 2020. Þá
seldi fyrirtækið vörur og þjónustu
fyrir 1.042 milljónir króna og skilaði
317 milljónum í hagnað fyrir skatta.
Arður var þá greiddur „í samræmi
við það sem lög leyfa“, eins og segir
í ársreikningi.
Starfsmenn Lyra í fyrra voru fjór-
tán og skiptu þeir með sér 127 millj-
óna króna launagreiðslum.
Eini eigandi Lyru undanfarin ár
hefur verið Höskuldur H. Höskulds-
son framkvæmdastjóri, en í fyrra
eignuðust dætur hans tvær hvor
sinn 16,7 prósenta hlutinn í Lyru
á móti föður sínum, sem þá á 66,7
prósent hlutafjárins.
Höskuldur er erlendis og hvorki
náðist tal af honum né aðstoðar-
framkvæmdastjóra fyrirtækisins í
gær. n
Risahagnaður hjá heildsölunni Lyru í Covid
Hafnfirðingurinn Þórir Jóhann Helgason fagnar hér öðru marki Íslands og fyrsta marki sínu í jafntefli Íslands og Ísraels í gær. Íslenska liðið komst í tvígang yfir en náði ekki að landa sínum fyrsta sigri í
Þjóðadeildinni. Þetta var þriðja jafntefli Íslands í röð í keppninni og lengist biðin eftir fyrsta sigrinum í keppninni sem telur nú þrettán leiki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI