Fréttablaðið - 14.06.2022, Page 9
Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er
haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert.
Dagurinn er haldinn til heiðurs blóð-
gjöfum um heim allan sem gefa af
óeigingirni blóð og blóðhluta sem
síðan er gefið til sjúkra. Mikil þörf er
á að fjölga blóðgjöfum, því er tilvalið
að nýta þennan hátíðisdag til að
ganga í hóp vaskrar sveitar blóðgjafa
sem tryggja samfélaginu dýrmætt
framboð af blóði og blóðhlutum. Án
framlags okkar góðu blóðgjafa yrði
erfitt, jafnvel ómögulegt, að fram-
kvæma skurðaðgerðir og aðstoða
einstaklinga í gegnum erfið veikindi.
Sumartíminn reynist starfsemi
Blóðbankans gjarnan erfiður þar
sem ferðalög eru tíðari og blóðgjafar
síður heima við en annars. Það er því
starfseminni dýrmætt þegar blóð-
gjafar muna eftir að gefa blóð áður
en haldið er í fríið því Blóðbankinn
þarf 70 blóðgjafa á dag allan ársins
hring. Þessu til viðbótar má nefna
að á Íslandi eru virkir blóðgjafar um
2.000 færri en þeir þurfa að vera.
Þessu til viðbótar eru um 2.000
gjafar á hverju ári sem hætta að gefa
sökum aldurs eða annarra orsaka.
Heildarþörf Blóðbankans á nýliðun
í blóðgjafahópnum er því um 4.000
blóðgjafar á ári.
Ég vil sérstaklega hvetja konur til
að gerast blóðgjafar, en Ísland er sér
á báti þegar kemur að lágum fjölda
kvenna í hópi blóðgjafa. Af heildar-
magni heilblóðs á Íslandi á um 27%
uppruna sinn hjá konum, á meðan
44% af heilblóði á uppruna sinn hjá
konum í Svíþjóð. Heildarfjöldi blóð-
gjafa í dag er um 6.000, en aðeins
2.000 úr þessum hópi eru konur.
Blóðgjafafélag Íslands vill beita sér
fyrir því að fjölga konum í hópi blóð-
gjafa helst á þann stað að konur séu
með helmingsstöðu í hópi blóðgjafa.
Sökum ástandsins í samfélaginu
og framkvæmda við Snorrabraut
verður ekki slegið upp garðveislu
að Snorrabraut í tilefni dagsins, en
blóðgjafar og sér í lagi þau sem hafa
áhuga á að gerast blóðgjafar eru
hvattir til að mæta í Blóðbankann
að Snorrabraut 60 eða á 2. hæðina að
Glerártorgi Akureyri og láta gott af
sér leiða. Boðið er upp á sérstaklega
góðar veitingar í tilefni dagsins.
Best er að panta tíma í blóðgjöf
með því að hringja í síma 543 5500
(Reykjavík) eða 543 5560 (Akureyri).
Einnig er hægt að bóka tíma á www.
blodbankinn.is.
Dagurinn 14. júní var valinn en
það er afmælisdagur nóbelsverð-
launahafans Karl Landsteiner en
hann uppgötvaði ABO-blóðflokka-
kerfið árið 1900. Að alþjóðlega blóð-
gjafadeginum standa WHO, Alþjóða
Það tekur þrjátíu mínútur að bjarga mannslífi
Davíð Stefán
Guðmundsson
formaður Blóð-
gjafafélags Íslands
Rauði krossinn, Alþjóðasamtök
blóðgjafafélaga og Alþjóðasamtök
blóðgjafar. Að baki þessum sam-
tökum eru 192 aðildarríki Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar,
181 landssamtök Rauða krossins,
50 landssamtök blóðgjafafélaga og
þúsundir sérfræðinga um blóðgjafir.
Áhugasamir um blóðgjafir og
starfsemi BGFÍ geta gerst meðlimir
félagsins á heimasíðu félagsins,
www.bgfi.is. n
Án framlags okkar
góðu blóðgjafa yrði
erfitt, jafnvel ómögu-
legt, að framkvæma
skurðaðgerðir og
aðstoða einstaklinga í
gegnum erfið veikindi.
Mikil þörf er á að fjölga
blóðgjöfum, því er til-
valið að nýta þennan
hátíðisdag til að ganga
í hóp vaskrar sveitar
blóðgjafa sem tryggja
samfélaginu dýrmætt
framboð af blóði og
blóðhlutum.
RARIK ohf | www.rarik.is
Opin hús hjá RARIK í tilefni af 75 ára afmæli
Miðvikudaginn 15. júní verða opin hús á völdum starfsstöðvum RARIK víðsvegar um landið í tilefni af 75 ára
afmæli fyrirtækisins. Þá munu starfsmenn RARIK taka á móti gestum og kynna aðstöðu og starfsemi fyrirtækis-
ins á hverjum stað og bjóða upp á kaffi og aðrar veitingar. Viðskiptavinir, eldri starfsmenn og aðrir velunnarar
RARIK eru sérstaklega velkomnir.
Opnu húsin verða frá kl. 16:00 til 18:00 á eftirtöldum stöðum:
Borgarnes: Sólbakki 1 | Stykkishólmur: Hamraendar 2 | Blönduós: Ægisbraut 3 | Sauðárkrókur: Borgartún 1a
Akureyri: Óseyri 9 | Þórshöfn: Langanesvegur 13 | Egilsstaðir: Þverklettar 2-4 | Fáskrúðsfjörður: Grímseyri 4
Hornafjörður: Álaugarvegur 11 | Hvolsvöllur: Dufþaksbraut 12
Verið velkomin og fagnið með okkur merkum áfanga í sögu RARIK.
ÞRIÐJUDAGUR 14. júní 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ