Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 2
Nú erum við með kennara við skólann sem voru nemendur í skólanum á sínum tíma. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði. jardbodin.is J A R Ð B Ö Ð I N VIÐ MÝVATN Á laugardag lýkur sumarskóla um smáríki með lokaprófi, en hann hefur verið starfræktur í nærri 20 ár. Í gær var stund milli stríða þegar Baldur Þórhallsson, forsvarsmaður skólans, bauð í sumargrill og leiki á túninu við Ægisíðu. benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG „Nemendum og kenn- urum við skólann finnst gaman að koma inn á íslenskt heimili og borða íslenskan mat. Fólk er þakklátt og finnst þetta gaman. Það er líka gott að nota túnið við Ægisíðu og sprella aðeins,“ segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og í forsvari fyrir sumarskóla um smáríki, en hann bauð venju samkvæmt nemendum og kennurum í gleði og glaum á heimili sínu í gær. Þar var farið í pílukast, fótbolta- spil og ýmislegt fleira, en Baldur og eiginmaður hans, Felix Bergsson, hafa boðið upp á grill og leiki á túninu við Ægisíðu þegar sumar- skólanum er að ljúka. Lokapróf fer fram á laugardag frá skólanum. Sumarskóli um smáríki fjallar um styrkleika og veikleika smáríkja og hefur skólinn verið starfræktur í 20 ár með styrk frá Erasmus+, áætlun Evrópusambandsins. Skólinn er einnig með hraðprógrömm að vetr- arlagi í Tallin, Vilníus, Kaupmanna- höfn og Ljubljana og er unnið með þema í þrjú ár þar til því er breytt. Baldur segir að nemendafjöldinn nálgist um átta hundruð á þessum 20 árum með námskeiðunum erlendis. „Það sem mér finnst gaman að sjá er að margir af þessum nemendum halda áfram að einblína á smá- ríki og skrifa meistararitgerðir og doktorsritgerðir um lítil ríki. Og nú erum við með kennara við skólann sem voru nemendur í skólanum á sínum tíma.“ Að þessu sinni var þemað um hvernig smáríki geta verið leiðandi og haft áhrif á heimsvísu. „Þau þurfa að beita tilteknum aðferðum og leiðum til að hafa áhrif. Til dæmis er mjög mikilvægt fyrir lítið ríki að forgangsraða. Lítil ríki hafa minna fjármagn, stjórnsýslan er minni og tengslanetið úti í hinum stóra heimi er minna. Smáríki þurfa að einblína á fáa málaflokka og reyna að vera best í þeim.“ Baldur segir að einnig sé fjallað um styrkleika og veikleika lýðræðis í litlum samfélögum en lítil ríki eru oft sögð lýðræðislegri og minna spillt en þau stóru. „Alþjóðlegir mælikvarðar ná hins vegar oft ekki utan um nándina og frændhygli í litlum samfélögum, sem geta leitt til þess að það verði meiri fyrirgreiðsla til frændans eða vinarins en í þessum stóru löndum. Tengsl stjórnmálamanna og sterkra hagsmunahópa eru oft umtalsverð í litlum ríkjum og það getur leitt til spillingar og haft áhrif á gang lýðræðisins.“ ■ Baldur býður nemendunum í sumargrill í námskeiðslok Vel beit á við Flensborgarhöfn Hátt í 400 börn tóku þátt í dorgveiðikeppni sumarnámskeiða Hafnarfjarðarbæjar við Flensborgarhöfn í gær. Í ár var smokkfiskur í boði sem beita í fyrsta sinn og virðist það hafa skilað árangri því aflinn var meiri en hann hefur verið síðustu ár. Keppnin hefur verið haldin frá árinu 1990 og er hún opin krökkum á aldrinum sex til tólf ára. Keppnin er orðin ein fjölmennasta dorgveiðikeppni landsins og mæting í ár var með betra móti. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Mikil fjör var í Vesturbænum í gær þegar Baldur bauð venju samkvæmt nem- endum og kennurum heim í gleði og glaum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fatnaður og skór hækkaði um 10 prósent milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR kristinnhaukur@frettabladid.is NEY TE NDUR Fatnaður og skór kostuðu mest á Íslandi árið 2021 af öllu EES-svæðinu. Alls var verðlag á Íslandi það næsthæsta, á eftir Sviss, og 50 prósentum hærra en meðal- verð álfunnar. Þetta kemur fram hjá Eurostat, tölfræðistofnun Evrópu. Á eftir Íslandi koma Noregur, Danmörk og Írland en lægsta verð- lagið er í Rúmeníu, Búlgaríu og Pól- landi. Árið 2020 var fatnaður dýrastur í Danmörku en Ísland stökk upp um 10 prósent og á toppinn á þeim lista. Eru föt og skór nú 35 prósentum yfir meðalverðlagi í Evrópu. Matur er 39 prósentum yfir með- alverðlagi og hefur hækkað um 7 prósent milli ára. Þó er matur tölu- vert dýrari í bæði Sviss og Noregi. Áfengi og tóbak hefur hækkað um 9 prósent og næst hæst í Evrópu á eftir Noregi. Lengst frá meðalverðlagi Evr- ópu eru vörur og þjónusta tengd heilsu og menntun. Í báðum til- fellum meira en 100 prósent dýrari á Íslandi. ■ Föt og skór hvergi dýrari í allri Evrópu kristinnpall@frettabladid.is SUND Sundkappinn Anton Sveinn McKee syndir til úrslita á HM í 50 metra laug í 200 metra bringusundi í dag, eftir að hann kom í mark á næstbesta tímanum í undanúr- slitunum í gær. Anton kom í mark á 2.08,74 og bætti með því eigið Íslandsmet sem var búið að standa í nokkrar klukkustundir. Anton var með fimmta besta tím- ann í undanrásunum fyrr um dag- inn þegar hann kom í mark á 2.09,69 sem var bæting á eigin Íslandsmeti, en gerði enn betur síðar um daginn og bætti aftur eigið Íslandsmet, nú um 0,95 sekúndu. Áætlað er að sundið hefjist klukkan 17.28. ■ Anton syndir í úrslitum á HM Anton Sveinn hefur um árabil verið einn fremsti sundmaður landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Áætlað er að sundið hefjist klukkan 17.28 að íslenskum tíma. 2 Fréttir 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.