Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 10
Við erum að tryggja að aðilar vinnu- markaðar- ins geti gert kjarasamn- inga án þess að þurfa að óttast viðvarandi verðbólgu. Seðlabankastjóri segir mikilvægt að tekin séu stór skref nú strax þegar kemur að vaxtahækkunum, til að stemma stigu við verðbólg- unni og koma böndum á fast- eignamarkaðinn. Tilkynnt var í gær að stýrivextir yrðu hækkaðir um 1 prósentustig. Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í gær að stýrivextir yrðu hækkaðir um 1 prósentustig og standa þeir því nú í 4,75 prósentum. Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að nefndin telji líklegt að herða þurfi taumhald peninga- stefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni í sett markmið innan ásættanlegs tíma. Í samtali við Markaðinn segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að mögulega hefði Seðlabankinn átt að byrja að hækka vexti fyrr. „Við vorum náttúrulega fyrst til þess að byrja að hækka vexti af seðlabönk- um vestrænna ríkja. Ef við hefðum séð fyrir stríðið í Úkraínu og f leira þá hefðum við mögulega hækkað hraðar,“ segir Ásgeir og bætir við að peningastefnunefndin haf i talið mikilvægt að taka stór skref nú strax til að ná stjórn á atburða- rásinni. Verðbólgan sé komin í 7,6 prósent og gert sé ráð fyrir að hún muni hækka enn frekar á komandi misserum. Þá hafi fasteignaverð hækkað töluvert að undanförnu. Aðspurður hvort hann telji að aðgerðir Seðlabankans muni hafa tilætluð áhrif segir Ásgeir að hann telji svo vera. „Ég tel að þessar vaxtahækk- anir og líka ákvörðun fjármála- stöðugleikanefndar í síðustu viku varðandi lánþegaskilyrðin muni hægja á fasteignamarkaðinum að endingu. Hins vegar þá hefur fram- boðið af fasteignum minnkað mjög mikið á þessu ári og minnkað meira en við gerðum ráð fyrir. Þannig að ég tel að þessar aðgerðir muni hafa áhrif. Þær muni kæla fasteigna- markaðinn og ná að stemma stigu við verðbólgunni. Þó svo að halda verði því til haga að áhrifin af þess- um aðgerðum á fasteignamarkaði komi ekki fram fyrr en eftir tvo til þrjá mánuði.“ Ásgeir segir auk þess að það skipti sköpum að auka framboðið á fast- eignamarkaði. „Við erum með nóg pláss til þess að byggja, þannig að það er mikil- vægt að ráðast í það. Ég veit ekki hvort fasteignaverð lækki að nafn- virði komi meira framboð inn á markaðinn, en það mun mögulega lækka að raunvirði. Ef það kemst sæmileg ró á fasteignamarkaðinn Mögulega átt að byrja að hækka vexti fyrr Mikilvægt að ná hall- anum á ríkissjóði niður Ásgeir segir mikilvægt að stjórnvöld beiti sér til að ná hallanum á ríkissjóði niður. „Það þarf að ná hallanum niður hvernig sem þau fara að því. Það gerist að einhverju leyti sjálfkrafa því að eftir því sem hagkerfið tekur við sér hafa tekjurnar verið að vaxa. Það gerir það að verkum að hallinn er að verða skárri. Mögulega er nóg að halda aftur af útgjöldum en ekki minnka þau en það er mikil- vægt að ríkisstjórnin taki mið af þessu efnahagsástandi.“ magdalena@frettabladid.is Nýsköpunarfyrirtækið Controlant gegndi lykilhlutverki í að þróa tækni sem nýttist Pfizer við dreif- ingu á bóluefni við Covid-19. Tekjur hátæknifyrirtækisins Controlant tífölduðust á árinu 2021 og námu rúmlega 68 milljónum Bandaríkja- dala eða um 9 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður (EBITDA) nam um 24 milljónum dala eða um 3 milljörðum króna. Hagnaður af starfseminni nam 10,6 milljónum dala, eða tæpum 1,4 milljörðum króna, sem er verulegur viðsnún- ingur frá fyrra ári þegar 10,2 millj- óna dala tap varð af rekstrinum. Gísli Herjólfsson, forstjóri Cont- rolant, segir að þó svo að við sjáum fyrir endann á Covid þá muni umsvif fyrirtækisins ekki minnka. „Fyrir Covid vorum við búin að semja við fimm stærstu lyfjafyrir- tæki í heiminum og fleiri hafa bæst við í gegnum Covid. Þegar Covid rennur sitt skeið þá getum við ein- blínt á að uppfylla alla samninga sem við höfum og klára innleiðing- ar fyrir þessi stóru lyfjafyrirtæki,“ segir Gísli og bætir við að það hafi verið mikill undirliggjandi vöxtur hjá fyrirtækinu fyrir utan þann vöxt sem Covid hafði í för með sér. „Við búumst við tvöföldun á tekjum á þessu ári miðað við síðasta ár og áframhaldandi vexti hjá okkur. Það er mikið í gangi og ekki alveg farið að hægjast á Covid strax. Við erum með okkar kjarnakúnnahóp og erum að hjálpa þeim að minnka sóun og sjálfvirknivæða dreifing- una. Við erum líka að fara inn á aðra markaði eins og matvælageirann. Það er mikið sem á eftir að ávinnast þar þegar kemur að því að minnka matarsóun og þar liggja tækifærin.“ Aðspurður hver sé lykillinn að framtíðarvexti fyrirtækisins segir Gísli að það sé að þróa tæknina enn meira, en stærstur hluti af rekstrar- kostnaði þeirra fer í vöruþróun, að sögn Gísla. „Við þurfum að auka vörufram- boðið meira. Einnig að sækja fram í fleiri geirum.“ n Umsvif Controlant minnki ekki þótt Covid renni sitt skeið Gísli Herjólfsson segir að mikill undirliggjandi vöxtur sé hjá fyrirtækinu fyrir utan þann vöxt sem Covid hafði í för með sér FRÉTTABLADID/ERNIR Við búumst við tvö- földun á tekjum á þessu ári miðað við síðasta ár og áfram- haldandi vexti hjá okkur. Magdalena Anna Torfadóttir magdalena @frettabladid.is nú í haust þá mun það leggja grunn að verðbólguhjöðnun á næsta ári.“ Seðlabankinn hóf vaxtalækk- unarferli í maí 2019 í kjölfar efna- hagsáfalla í kjölfar samdráttar í ferðaþjónustu eftir fall WOW Air og minni útflutnings sjávarafurða vegna loðnubrests. Í kjölfar Covid- faraldursins voru vextir bankans lækkaðir um 2 prósent og náðu sögulegu lágmarki í 0,75 prósentum. Ásgeir segir að þær aðgerðir sem Seðlabankinn réðist í á þeim tíma- punkti hafi verið nauðsynlegar og hafi heppnast virkilega vel. „Við vorum að bregðast við for- dæmalausu efnahagsáfalli. Við gerðum það til að þess að standa vörð um efnahagslífið og lífskjör í landinu. Okkur heppnaðist að vernda kaupmátt og verkalýðsfélög- in ættu að vera ánægð með þessar aðgerðir og þær sem við erum að beita nú.“ Ásgeir bætir við að Seðlabankinn sé að vinna með verkalýðshreyfing- unni. „Seðlabankinn tók stöðu með vinnandi fólki á Covid-tímanum, til þess að mæta efnahagsáfallinu og tryggja kaupmátt launa. Nú gerum við það sama með því að berjast á móti verðbólgu og þessum þenslu- tímum. Við erum að tryggja að aðilar vinnumarkaðarins geti gert kjarasamninga án þess að þurfa að óttast viðvarandi verðbólgu. Hinn kosturinn er að fasteignaverð hækki meira og við sjáum verðbólguna naga niður lífskjör í landinu.“ Aðspurður hvort hann haf i áhyggjur af því að við séum að sigla inn í erfiða kjarasamningslotu í haust segir Ásgeir bæði já og nei. „Ég trúi því að íslensk verka- lýðsfélög séu skynsöm og séu að lesa stöðuna ekkert ósvipað og við erum að gera í Seðlabankanum. Það stendur á okkur hér í Seðlabankan- um að sýna svart á hvítu að okkur sé alvara að ná verðbólgunni niður þannig að hún truf li ekki næstu kjarasamninga.“ Ásgeir segir það vera fagnaðarefni að erlendir seðlabankar séu farnir að hækka vexti og taka stöðuna alvarlega. „ Seðlabank i Bandar ík janna ákvað nýverið að hækka vexti um 75 punkta og við fögnum því þar sem það gerir það að verkum að við erum að vinna í samhengi við aðrar þjóðir. Þetta þýðir að við getum hækkað vexti og beitt vaxtatækinu án þess að hafa áhyggjur af því að gengi krónunnar fari úr jafnvægi.“ Ásgeir segir jafnframt að staðan sé þannig að Ísland sé ekki ein- hver verðbólgueyja eins og hún var. Verðbólgan hérlendis er nú í sam- hengi við það sem þekkist erlendis. „Það er alls staðar verið að tala um þessi sömu mál. Það er að segja hækkun á fasteignaverði, hækkun á hrávörum og svo framvegis. Við megum ekki gleyma því að staðan á Íslandi er mjög góð að mörgu leyti. Við þurfum bara að gæta þess að fara ekki fram úr okkur og vinna saman en ekki í sundur.“ n Ásgeir Jónsson seðlabanka- stjóri segir að ef það komist ró á fasteigna- markaðinn nú í haust þá muni það leggja grunn að verð- bólguhjöðnun á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK 10 Fréttir 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 23. júní 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.