Fréttablaðið - 23.06.2022, Síða 10
Við erum
að tryggja
að aðilar
vinnu-
markaðar-
ins geti gert
kjarasamn-
inga án
þess að
þurfa að
óttast
viðvarandi
verðbólgu.
Seðlabankastjóri segir
mikilvægt að tekin séu stór
skref nú strax þegar kemur
að vaxtahækkunum, til að
stemma stigu við verðbólg-
unni og koma böndum á fast-
eignamarkaðinn. Tilkynnt
var í gær að stýrivextir yrðu
hækkaðir um 1 prósentustig.
Peningastefnunefnd Seðlabankans
tilkynnti í gær að stýrivextir yrðu
hækkaðir um 1 prósentustig og
standa þeir því nú í 4,75 prósentum.
Í tilkynningu frá nefndinni
kemur fram að nefndin telji líklegt
að herða þurfi taumhald peninga-
stefnunnar enn frekar til að tryggja
að verðbólga hjaðni í sett markmið
innan ásættanlegs tíma.
Í samtali við Markaðinn segir
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að
mögulega hefði Seðlabankinn átt
að byrja að hækka vexti fyrr. „Við
vorum náttúrulega fyrst til þess að
byrja að hækka vexti af seðlabönk-
um vestrænna ríkja. Ef við hefðum
séð fyrir stríðið í Úkraínu og f leira
þá hefðum við mögulega hækkað
hraðar,“ segir Ásgeir og bætir við
að peningastefnunefndin haf i
talið mikilvægt að taka stór skref
nú strax til að ná stjórn á atburða-
rásinni. Verðbólgan sé komin í 7,6
prósent og gert sé ráð fyrir að hún
muni hækka enn frekar á komandi
misserum. Þá hafi fasteignaverð
hækkað töluvert að undanförnu.
Aðspurður hvort hann telji að
aðgerðir Seðlabankans muni hafa
tilætluð áhrif segir Ásgeir að hann
telji svo vera.
„Ég tel að þessar vaxtahækk-
anir og líka ákvörðun fjármála-
stöðugleikanefndar í síðustu viku
varðandi lánþegaskilyrðin muni
hægja á fasteignamarkaðinum að
endingu. Hins vegar þá hefur fram-
boðið af fasteignum minnkað mjög
mikið á þessu ári og minnkað meira
en við gerðum ráð fyrir. Þannig að
ég tel að þessar aðgerðir muni hafa
áhrif. Þær muni kæla fasteigna-
markaðinn og ná að stemma stigu
við verðbólgunni. Þó svo að halda
verði því til haga að áhrifin af þess-
um aðgerðum á fasteignamarkaði
komi ekki fram fyrr en eftir tvo til
þrjá mánuði.“
Ásgeir segir auk þess að það skipti
sköpum að auka framboðið á fast-
eignamarkaði.
„Við erum með nóg pláss til þess
að byggja, þannig að það er mikil-
vægt að ráðast í það. Ég veit ekki
hvort fasteignaverð lækki að nafn-
virði komi meira framboð inn á
markaðinn, en það mun mögulega
lækka að raunvirði. Ef það kemst
sæmileg ró á fasteignamarkaðinn
Mögulega átt að byrja að hækka vexti fyrr
Mikilvægt að ná hall-
anum á ríkissjóði niður
Ásgeir segir mikilvægt að
stjórnvöld beiti sér til að ná
hallanum á ríkissjóði niður.
„Það þarf að ná hallanum
niður hvernig sem þau fara að
því. Það gerist að einhverju
leyti sjálfkrafa því að eftir því
sem hagkerfið tekur við sér
hafa tekjurnar verið að vaxa.
Það gerir það að verkum að
hallinn er að verða skárri.
Mögulega er nóg að halda
aftur af útgjöldum en ekki
minnka þau en það er mikil-
vægt að ríkisstjórnin taki mið
af þessu efnahagsástandi.“
magdalena@frettabladid.is
Nýsköpunarfyrirtækið Controlant
gegndi lykilhlutverki í að þróa
tækni sem nýttist Pfizer við dreif-
ingu á bóluefni við Covid-19. Tekjur
hátæknifyrirtækisins Controlant
tífölduðust á árinu 2021 og námu
rúmlega 68 milljónum Bandaríkja-
dala eða um 9 milljörðum króna.
Rekstrarhagnaður (EBITDA) nam
um 24 milljónum dala eða um 3
milljörðum króna. Hagnaður af
starfseminni nam 10,6 milljónum
dala, eða tæpum 1,4 milljörðum
króna, sem er verulegur viðsnún-
ingur frá fyrra ári þegar 10,2 millj-
óna dala tap varð af rekstrinum.
Gísli Herjólfsson, forstjóri Cont-
rolant, segir að þó svo að við sjáum
fyrir endann á Covid þá muni
umsvif fyrirtækisins ekki minnka.
„Fyrir Covid vorum við búin að
semja við fimm stærstu lyfjafyrir-
tæki í heiminum og fleiri hafa bæst
við í gegnum Covid. Þegar Covid
rennur sitt skeið þá getum við ein-
blínt á að uppfylla alla samninga
sem við höfum og klára innleiðing-
ar fyrir þessi stóru lyfjafyrirtæki,“
segir Gísli og bætir við að það hafi
verið mikill undirliggjandi vöxtur
hjá fyrirtækinu fyrir utan þann vöxt
sem Covid hafði í för með sér. „Við
búumst við tvöföldun á tekjum á
þessu ári miðað við síðasta ár og
áframhaldandi vexti hjá okkur.
Það er mikið í gangi og ekki alveg
farið að hægjast á Covid strax. Við
erum með okkar kjarnakúnnahóp
og erum að hjálpa þeim að minnka
sóun og sjálfvirknivæða dreifing-
una. Við erum líka að fara inn á aðra
markaði eins og matvælageirann.
Það er mikið sem á eftir að ávinnast
þar þegar kemur að því að minnka
matarsóun og þar liggja tækifærin.“
Aðspurður hver sé lykillinn að
framtíðarvexti fyrirtækisins segir
Gísli að það sé að þróa tæknina enn
meira, en stærstur hluti af rekstrar-
kostnaði þeirra fer í vöruþróun, að
sögn Gísla.
„Við þurfum að auka vörufram-
boðið meira. Einnig að sækja fram
í fleiri geirum.“ n
Umsvif Controlant minnki ekki þótt Covid renni sitt skeið
Gísli Herjólfsson segir að mikill undirliggjandi vöxtur sé hjá fyrirtækinu fyrir
utan þann vöxt sem Covid hafði í för með sér FRÉTTABLADID/ERNIR
Við búumst við tvö-
földun á tekjum á
þessu ári miðað við
síðasta ár og áfram-
haldandi vexti hjá
okkur.
Magdalena Anna
Torfadóttir
magdalena
@frettabladid.is
nú í haust þá mun það leggja grunn
að verðbólguhjöðnun á næsta ári.“
Seðlabankinn hóf vaxtalækk-
unarferli í maí 2019 í kjölfar efna-
hagsáfalla í kjölfar samdráttar í
ferðaþjónustu eftir fall WOW Air
og minni útflutnings sjávarafurða
vegna loðnubrests. Í kjölfar Covid-
faraldursins voru vextir bankans
lækkaðir um 2 prósent og náðu
sögulegu lágmarki í 0,75 prósentum.
Ásgeir segir að þær aðgerðir sem
Seðlabankinn réðist í á þeim tíma-
punkti hafi verið nauðsynlegar og
hafi heppnast virkilega vel.
„Við vorum að bregðast við for-
dæmalausu efnahagsáfalli. Við
gerðum það til að þess að standa
vörð um efnahagslífið og lífskjör
í landinu. Okkur heppnaðist að
vernda kaupmátt og verkalýðsfélög-
in ættu að vera ánægð með þessar
aðgerðir og þær sem við erum að
beita nú.“
Ásgeir bætir við að Seðlabankinn
sé að vinna með verkalýðshreyfing-
unni.
„Seðlabankinn tók stöðu með
vinnandi fólki á Covid-tímanum,
til þess að mæta efnahagsáfallinu og
tryggja kaupmátt launa. Nú gerum
við það sama með því að berjast á
móti verðbólgu og þessum þenslu-
tímum. Við erum að tryggja að
aðilar vinnumarkaðarins geti gert
kjarasamninga án þess að þurfa að
óttast viðvarandi verðbólgu. Hinn
kosturinn er að fasteignaverð hækki
meira og við sjáum verðbólguna
naga niður lífskjör í landinu.“
Aðspurður hvort hann haf i
áhyggjur af því að við séum að sigla
inn í erfiða kjarasamningslotu í
haust segir Ásgeir bæði já og nei.
„Ég trúi því að íslensk verka-
lýðsfélög séu skynsöm og séu að
lesa stöðuna ekkert ósvipað og við
erum að gera í Seðlabankanum. Það
stendur á okkur hér í Seðlabankan-
um að sýna svart á hvítu að okkur
sé alvara að ná verðbólgunni niður
þannig að hún truf li ekki næstu
kjarasamninga.“
Ásgeir segir það vera fagnaðarefni
að erlendir seðlabankar séu farnir
að hækka vexti og taka stöðuna
alvarlega.
„ Seðlabank i Bandar ík janna
ákvað nýverið að hækka vexti um
75 punkta og við fögnum því þar
sem það gerir það að verkum að við
erum að vinna í samhengi við aðrar
þjóðir. Þetta þýðir að við getum
hækkað vexti og beitt vaxtatækinu
án þess að hafa áhyggjur af því að
gengi krónunnar fari úr jafnvægi.“
Ásgeir segir jafnframt að staðan
sé þannig að Ísland sé ekki ein-
hver verðbólgueyja eins og hún var.
Verðbólgan hérlendis er nú í sam-
hengi við það sem þekkist erlendis.
„Það er alls staðar verið að tala
um þessi sömu mál. Það er að segja
hækkun á fasteignaverði, hækkun
á hrávörum og svo framvegis. Við
megum ekki gleyma því að staðan
á Íslandi er mjög góð að mörgu leyti.
Við þurfum bara að gæta þess að
fara ekki fram úr okkur og vinna
saman en ekki í sundur.“ n
Ásgeir Jónsson
seðlabanka-
stjóri segir að
ef það komist
ró á fasteigna-
markaðinn nú í
haust þá muni
það leggja
grunn að verð-
bólguhjöðnun á
næsta ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
10 Fréttir 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 23. júní 2022 FIMMTUDAGUR