Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 32
 Oftast er fatahönn- uðinum Diane von Fürsten- berg eign- uð upp- finning bundna kjólsins á árunum 1972-3. Hinn víðfrægi „wrap dress“ eða vafðir kjólar hafa tröll- riðið öllu síðustu mánuði í aðdraganda sumarsins enda er um að ræða klassíska flík sem sómir sér á mörgum líkamsgerðum og er hægt að dressa upp og niður. jme@frettabladid.is Flíkinni er vafið um líkamann og hún bundin saman í mittið eða hneppt saman á hliðinni. Þessi aðferð myndar fallegt vaff-hálsmál og efnið fellur glæsilega að líkam- anum. Þá er hægt að binda kjólinn misþröngt fyrir ólíka útkomu. Ranglega eignaður DVF Oftast er fatahönnuðinum Diane von Fürstenberg eignuð uppfinn- ing bundna kjólsins í kringum árin 1972-3. Hins vegar bendir Richard Martin, fyrrverandi sýningarstjóri Costume Institute hjá Metropo- litan Museum of Art, á að hönnun Fürstenberg hafi þá þegar átt sterkar rætur í bandarískum íþróttafatnaði, sérstaklega þegar kom að notkun hennar á teygjan- legum efnum og gerviefnum í fyrstu eintökum Fürstenbergs. Á tíma heimskreppunnar á 4. áratug 20. aldar voru svokallaðir „Hooverette“ kjólar vinsælir, en þessi kjólatíska byggði einnig á sömu hugmynd, að vefja og binda. Elsa Schiaparelli hannaði svipaða kjóla á fjórða áratugnum og Claire McCardell á þeim fimmta. Valdefling kvenna En útgáfa Fürstenbergs, sem var hnésíð, úr þröngu jersey-efni og löngum ermum, varð svo vinsæl og einkennandi að kjólategundin hefur síðan þá verið sterklega tengd við Diane von Fürstenberg. Hún hefur sagt að hjónaskilnaður sinn hafi verið innblásturinn að hönnuninni. Einnig hefur hún gefið til kynna að kjóllinn eigi að valdefla konur til þess að njóta kynferðislegs frelsis. ■ Umvafin tískusögunni Diane von Fürstenberg pósar hér fyrir framan safn sitt af bundnum kjólum á Jour- ney of a Dress sýningunni í LACMA West í janúar 2017 í Los Angeles. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Leikkonan og áhrifavaldurinn Sonia Lyson sést hér vöfðum bleikum blómakjól frá Zöru um miðjan júní. Grænt Bottega Veneta Jodie veskið býr til skemmtilega andstæðu. Þýska leikkonan Anna Wolfers parar hér saman glæsilegan bláan bundinn kjól, gullfesti og svarta hliðartösku í byrjun júní í Hamborg. S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ LAXDAL.IS Vatnsvarðar yfirhafnir í úrvali 6 kynningarblað A L LT 23. júní 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.