Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 8
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla
anna illa eftirspurn úti á
landi. Dæmi eru um að langar
biðraðir myndist við vega-
sjoppur og fjölfarna ferða-
mannastaði. Orkuskipti bíla-
flotans kalla á skýra stefnu
stjórnvalda og breyttar ferða-
venjur, að mati sérfræðinga.
ggunnars@frettabladid.is
Nú þegar ferðasumarið er hafið fyrir
alvöru eru eigendur rafbíla farnir að
reka sig á hve torsótt getur verið að
stinga slíkum bílum í samband víða
um land. Biðin eftir hraðhleðslu við
vinsælar vegasjoppur getur verið
æði löng þegar stórar ferðahelgar
ganga í garð.
„Við finnum vel fyrir þessu hér
fyrir norðan. Það myndast langar
biðraðir við þessar fáu stöðvar sem
hér eru þegar fjölgar í bænum,“
segir Ottó Elíasson, rannsókna- og
þróunarstjóri hjá Eimi á Akureyri.
„En það er einmitt mikilvægur
punktur í þessu. Vandamálið er
ekki almenna notkunin. Núverandi
net hleðslustöðva stendur vel undir
hefðbundinni notkun frá degi til
dags því flestir eigendur rafbíla eru
með stöðvar heima hjá sér.“
„Þessir toppar myndast þegar
landinn fer í sumarfrí. Þá anna
hleðslustöðvarnar ekki eftirspurn.
Það er alveg ljóst að biðin eftir hrað-
hleðslu í sumarfríinu er að lengj-
ast. Raf bílaeigendum til mikillar
armæðu.“
Að mati Ottós er það ekki endi-
lega sjálfgefið að orkuþörfin eigi
að taka mið af örfáum toppum
sem myndast þegar þúsundir raf-
bíla streyma inn á eitt landsvæði að
sumri til.
„Ég er þeirrar skoðunar að orku-
skiptin muni á endanum fá okkur
til að endurhugsa ferðavenjur
okkar. Það er ekkert endilega skyn-
samlegt að nálgast þessa mikilvægu
samfélagsbreytingu með hugarfari
dísiltrukksins. Orkuskiptin, og
loftslagsmál í heild sinni, snúast líka
um ábyrgð og hegðunarmynstur,“
segir Ottó.
Samkvæmt tölum frá Samgöngu-
stofu eru hátt í 15 þúsund rafbílar á
skrá á Íslandi
Hleðslustöðvarnar sem standa
eigendum þessara 15 þúsund bíla
til boða hringinn í kringum landið
eru um 250 talsins. Þar af eru 76
stöðvar sem bjóða upp á svokall-
aða hraðhleðslu. Af þeim eru 16 á
höfuðborgarsvæðinu, en eftir því
sem lengra er haldið frá suðvestur-
horninu fjölgar kílómetrunum á
milli stöðva.
Lengsta vegalend á milli tveggja
hraðhleðslustöðva er á Vestfjörð-
um. Frá stöðinni á Ísafirði og að
næstu hraðhleðslu á Hólmavík eru
223 kílómetrar. Eina haldreipi raf-
bílsins á þeirri leið eru tvær smærri
stöðvar í Ísafjarðardjúpi. En þar er
tímafrekt að hlaða.
Tómas Kristjánsson er formaður
Rafbílasambands Íslands og hann,
Það er ekkert endilega
skynsamlegt að nálg
ast þessar breytingar
með hugarfari dísil
trukksins.
Ottó Elíasson,
rannsókna- og
þróunarstjóri hjá
Eimi
Við verðum að fara að
horfa lengra fram í
tímann og vinna eftir
skýrri stefnu. Það er
það sem allir eru að
kalla eftir.
Tómas
Kristjánsson,
formaður Raf-
bílasambands
Íslands
Hraðhleðslustöðvar um allt land eru 76 talsins
16
3
4
3
2
Eigendur rafbíla
argir yfir of fáum
hleðslustöðvum
líkt og Ottó, kannast vel við þessa
umræðu. Hann segist reglulega fá
fregnir af pirruðum eigendum raf-
bíla í biðröð á erilsömum föstudegi
úti á landi.
„Ég myndi ekki kalla þetta neyð-
arástand, en þetta er sannarlega
leiðinlegt ástand. Ég skil vel að þetta
leggist illa í fólk og valdi ergelsi.“
Þótt hleðslustöðvum hafi fjölgað
að undanförnu segir Tómas enn
langt í land. „Við erum að ganga í
gegnum ákveðið tímabil ójafnvægis
í þessu tilliti. Bílaflotinn hefur ein-
faldlega vaxið mun hraðar en inn-
viðirnir.“
Hann segir mikilvægt að átta sig
á því hvað þurfi til svo hægt verði
að stytta biðtíma eftir hleðslu um
allt land.
„Í fyrsta lagi þá eru þetta allt
einkaaðilar sem reka þessar stöðvar.
Ég skil vel að þeir eigi erfitt með að
réttlæta milljarða fjárfestingu til
þess eins að standa undir álagi sem
skapast kannski nokkrum sinnum
yf ir hásumarið. Tekjumódelið
þeirra þarf að ganga upp.“
„En svo er önnur og mun stærri
breyta í þessu og hún hefur með það
að gera hvernig við ætlum að hafa
þetta til frambúðar og halda í við
fjölgun rafbíla næstu ár og áratugi.“
Eigendur rafbíla
eru farnir að
reka sig á hve
torsótt getur
verið að stinga
í samband víða
um land.
FRÉTTABLAÐIÐ/
PJETUR
Tómas segir Ísland skorta lang-
tímastefnu. „Öll uppbygging inn-
viða byggir á því að stjórnvöld
teikni upp skrefin sem við ætlum að
taka og hvernig þau sjá orkuskipti
bílaflotans fyrir sér.“
„Ef við værum með stefnu til árs-
ins 2030, sem hægt væri að vinna
eftir, þá gætu þeir sem þurfa að
hugsa um tekjumódel gert sín plön í
samræmi við það. Það myndi stuðla
að ákveðnu jafnvægi og flýta fyrir
uppbyggingu. Það gildir í þessum
umskiptum eins og öðrum.“
Niðurfelling á virðisaukaskatti
nýrra raf bíla er gott dæmi um
lausatök í málaflokknum að mati
Tómasar.
„Þangað til í síðustu viku vissum
við ekki betur en að sú aðgerð
myndi renna sitt skeið og verð á
nýjum rafbílum rjúka upp. Svo rétt
fyrir þinglok er tekin ákvörðun
um að framlengja úrræðið fram á
haust.“
„Það eru þessir plástrar og þessi
skammtímahugsun sem veldur
því að uppbyggingin höktir. Við
verðum að fara að horfa lengra
fram í tímann og vinna eftir skýrri
stefnu. Það er það sem allir þeir sem
tengjast rafvæðingu bílaflotans eru
að kalla eftir,“ segir Tómas. n
8 Fréttir 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 23. júní 2022 FIMMTUDAGUR