Fréttablaðið - 23.06.2022, Page 6

Fréttablaðið - 23.06.2022, Page 6
Lífeyrissjóðirnir segja gegn eigendastefnu að tjá sig um hvort fráfarandi forstjóri eigi að snúa aftur. Birta áskilur sér þó rétt til að lýsa skoð- unum á hluthafafundi 14. júlí næstkomandi. bth@frettabladid.is VIÐSKIPTI Sumir hluthafar í Festi vilja rifta fyrri ákvörðun stjórnar félagsins og draga uppsögn Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra til baka. Festi er félag á hlutabréfamark- aði og hefur Kauphöllin haft starfs- lok Eggerts til skoðunar undanfarið. Stjórnin hefur orðið við kröfu hluthafa og hefur boðað til fundar 14. júlí. Mikil spenna er fyrir fund- inn, ekki síst er eftirvænting eftir að sjá hvaða nýja fólk mun bjóða sig fram til stjórnarsetu áður en stjórn verður kosin á fundinum. Frétta- blaðið hefur heimildir fyrir því að markmið sumra hluthafa verði að leitast við að endurraða í stjórnina og taka upp viðræður við Eggert um að fá hann aftur til starfa. Starfslok Eggerts hafa vakið úlfúð og undrun hjá þeim sem telja hann hafa skilað rekstrarlega góðu búi. Ástæða starfslokanna er enn óljós. Í yfirlýsingu stjórnar sagði áður en samþykkt var að halda hluthafa- fund vegna málsins, að erfitt væri að taka samtöl í smáatriðum á hlut- hafafundi, þar sem til staðar væru auk hluthafa, fjölmiðlar og fulltrúar samkeppnisaðila. Lífeyrissjóðirnir eiga um 70 pró- sent í Festi. Ólafur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Birtu sem á stóran hlut í Festi, segir að Birta muni ekki með beinum hætti tjá sig um hvort vilji sé til þess að Egg- ert snúi aftur til starfa. „Mitt umboð sæki ég til for- manns og varaformanns Birtu milli stjórnarfunda, en samkvæmt eig- endastefnu höfum við ekki afskipti af ráðningum fólks í skráðum félög- um,“ segir Ólafur. „En við áskiljum okkur fullan rétt til að fara á hlut- hafafund til að segja okkar skoðun,“ bætir hann við. Lífeyrissjóðir sem eiga hlutafé á markaði tengjast Samtökum atvinnulífsins og hefur verið umræða meðal hluthafa um að það kunni að bjaga þá stöðu sem nú er uppi ef stór hluti hluthafa fylgist þögull með athöfnum einkahlut- hafanna. Segir einn viðmælandi Fréttablaðsins að þegar framboð til stjórnar birtist fyrir hluthafafund- inn í júlí muni ákveðin leikjafræði fara í gang. n Við áskiljum okkur fullan rétt til að fara á hluthafafund til að segja okkar skoðun. Ólafur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri lífeyris- sjóðsins Birtu NÚ AÐEINS Í APPI OG Á DOMINOS.IS ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI, EF ÞÚ SÆKIR Ræða hallarbyltingu í Festi og endurráðningu Eggerts ser@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Að minnsta kosti 31 milljarði verður varið í smíði 582 hjúkunarrýma í mörgum stærstu bæjarfélögum landsins á næstu fimm árum. Er þá búnaður heimil- anna ótalinn. Kostnaður á hvert rými, sem ýmist er fyrir einstaklinga eða hjón, er að meðaltali 55 milljónir króna að því er heimildir Fréttablaðsins herma. Það er Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir sem hafa umsjón með verkinu. Fyrsta heimilið sem opnað verður í þessari framkvæmdaáætlun er í Árborg, en þangað munu 60 íbúar f lytja í haust. Önnur heimili eru á undirbúningsstigi en verða tekin í gagnið á árabilinu 2022 til 2027, en þau munu meðal annars rísa í Reykjavík, Reykjanesbæ, Hvera- gerði, Húsavík og Ísafirði. Bygging nýja hjúkrunarheimilis- ins í Árborg hefur staðið yfir frá 2019. Útlit þess hefur vakið athygli, en húsið er hringlaga með innigarði. Öll herbergin eru einstaklingsher- bergi sem bjóða upp á þann mögu- leika að hjón geti dvalið saman í herbergi. n Rúmlega þrjátíu milljörðum varið í hundruð hjúkrunarrýma um landið Nýja hjúkrunarheimilið í Árborg sem opnað verður fyrst heimilanna af þeim sem eru í lokafrágangi eða í undirbúningi. MYND/AÐSEND sbt@frettabladid.is thorgrimur@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Stóran hluta upp- sagna hjúkrunarfræðinga á bráða- móttöku Landspítalans má rekja til úrræðaleysis og rangrar stefnumót- unar síðustu ára að sögn Helgu Rósu Másdóttur, deildarstjóra á bráða- móttökunni. Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að tuttugu og fimm hjúkrunarfræðingar á bráða- móttöku hefðu sagt upp eða hætt störfum frá áramótum. „Sjúklingar hlaðast upp innan bráðamóttök unnar sem eiga að vera á legudeildum spítalans. Hjúkr- unarfræðingar á bráðamóttökunni hafa þurft að sinna margföldum verkefnum og sjúklingafjölda langt yfir viðmiðum sem eðlileg geta tal- ist. Ofan á óhófleg verkefni er rýmið sem við vinnum í alls ekki gert fyrir slíkan fjölda sjúklinga eða aðstand- enda, sem gerir starfsumhverfið afar óhagstætt og erfitt,“ segir Helga í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins. Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra lýsti áhyggjum af stöðunni í samtali við Fréttablaðið að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Hann segir málið til skoðunar, til skemmri og lengri tíma. „Við erum með landsráð í mönnun og menntun í heilbrigðis- kerfinu til þess að halda utan um þetta,“ segir Willum. Helga segir stöðuna hafa verið viðvarandi á bráðamóttökunni síðustu ár en að hún hafi farið versn- andi síðasta árið. „Aðgerðir til að mæta þessum vanda þurfa að vera breiðar og vona ég að viðbragðs- teymi sem heilbrigðisráðherra hefur skipað komi til með að dreifa álagi betur um heilbrigðiskerfið og að sjúklingar fái rétta þjónustu, tím- anlega og á réttu þjónustustigi.“ n Úrræðaleysi og röng stefnumótun á síðustu árum helsta orsök uppsagna Starfslok Eggerts hafa vakið úlfúð og undrun hjá þeim sem telja hann hafa skilað rekstrarlega góðu búi. Boðað hefur verið til hluthafafundar í Festi þar sem ræða á starfslok hans en ástæða þeirra er óljós. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI thorgrimur@frettabladid.is AFGANISTAN Að minnsta kosti þúsund manns létust í jarðskjálfta í Afganistan í gær. Jarðskjálftinn mældist um 6,1 stig að stærð og voru upptök hans um 45 kílómetra suð- vestan við borgina Khost, héraðs- höfuðborg í suðausturhluta landsins. Gríðarleg eyðilegging varð í Paktika- héraðinu, sem á landamæri að Pak- istan. Þetta er mannskæðasti jarð- skjálfti landsins í rúma tvo áratugi. Fjöldi húsa hefur verið lagður í rúst og talið er að tala látinna kunni að hækka eftir því sem f leiri lík finnast undir húsarústum og þar sem mörg svæðanna sem urðu fyrir skemmdum eru afskekkt og langt frá viðbragðsþjónustu stjórnvalda. Ramiz Alakbarov, sérstökum aðstoð- arfulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Afganistan, taldist svo til að tæplega 2.000 heimili hafi verið eyðilögð í skjálftanum. Afganistan er enn að ná sér eftir margra áratuga stríðsátök og hefur glímt við efnahagskreppu frá því að Talibanar sneru aftur til valda sam- hliða brottför bandaríska hersins frá landinu í fyrra. Eftir endurkomu Talibana á valdastól hafa mörg ríki dregið úr þróunarhjálp til landsins og beitt afganska banka viðskipta- þvingunum. „Ríkisstjórnin starfar eftir bestu getu,“ skrifaði Anas Haqqani, hátt- settur Talibani, á Twitter. „Við vonum að alþjóðasamfélagið og hjálparsamtök hjálpi þjóðinni okkar í þessum erfiðu aðstæðum.“ n Meira en þúsund látin eftir jarðskjálfta í Afganistan Afganir við húsarústir í Paktika eftir jarðskjálftann. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Helga Rósa Másdóttir, deildarstjóri bráðamóttöku Landspítalans 6 Fréttir 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.