Fréttablaðið - 23.06.2022, Síða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 23. júní 2022
Guðrún Erla Leifsdóttir, eigandi Timberland á Íslandi, er hér fyrir miðju með gula skóinn sem gerði Timberland að heimsfrægu merki. Með henni eru Margita
Keire, verslunarstjóri í Timberland, Kringlunni og Katla Jóhannsdóttir, verslunarstjóri í nýju Timberland-versluninni í Smáralind. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Timberland þekkt fyrir fyrsta
vatnshelda leðurskóinn
Um helgina opnaði Timberland á Íslandi nýja og glæsilega verslun í Smáralind. Viðtökurnar
fóru fram úr björtustu vonum. Í tilefni tuttugu ára afmælis Timberland á Íslandi fannst eig-
endum verslunarinnar vert að fagna áfanganum með opnun nýrrar verslunar í Smáralind. 2
Kate Bush á sviði árið 1979.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
oddurfreyr@frettabladid.is
Tónlistarkonan Kate Bush segir
að það sé mjög mikilvægt fyrir sig
að ný kynslóð hafi uppgötvað lag
hennar Running Up That Hill eftir
að það var nýlega notað í sjón-
varpsþáttunum Stranger Things.
Lagið hefur notið ótrúlegrar
velgengni að undanförnu og hefur
slegið þrjú vinsældamet eftir að
hafa komist í fyrsta sæti vinsælda-
lista í Bretlandi og á Írlandi.
Í nýlegu viðtali við BBC segir
hún að hún hafi búist við að lagið
fengi athygli, en velgengnin hafi
virkilega komið henni á óvart
og það sé eins og heimurinn hafi
gengið af göflunum. Henni þykir
yndislegt að fullt af fólki sem hafði
aldrei heyrt um hana hafi upp-
götvað tónlist hennar í fyrsta sinn.
Sló þrjú met
Lagið hefur líka náð fyrsta sæti í
Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Svíþjóð og
Sviss, síðan fjórða sería Stranger
Things var frumsýnd og það náði
fjórða sæti í Bandaríkjunum.
Eitt af metunum hennar var að
vera lengst til að ná fyrsta sæti, en
það tók heil 37 ár frá útgáfu lagsins.
Bush setti líka met fyrir lengsta
tímabil milli þess að ná fyrsta sæti,
en það gerðist síðast fyrir 44 árum
þegar lagið Wuthering Heights
komst í fyrsta sæti.
Þriðja metið var svo að vera elsta
konan til að ná fyrsta sæti á vin-
sældalistum í Bretlandi, en hún er
63 ára. n
Kate Bush hissa
á velgengninni