Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.06.2022, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 23.06.2022, Qupperneq 18
Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Thelma Dögg Guðmundsen hefur fallegan fatastíl sem tekið er eftir. Stíllinn er þægilegur, klassískur og skemmtilegur og lýsir per- sónuleika Thelmu vel. Áhugi Thelmu á fatnaði vaknaði þegar hún byrjaði að vinna í fataverslun aðeins 16 ára gömul. Thelma er 31 árs förðunarfræðing- ur og áhrifavaldur með brennandi áhuga á öllu sem við kemur staf- rænum markaðsmálum. „Ég starfa sjálfstætt í fjöl- breyttum verkefnum, aðallega á samfélagsmiðlum. Ég er kennari í Make-up Studio Hörpu Kára, sé einnig um stafræn markaðsmál þar og tek líka að mér slík verk- efni fyrir önnur fyrirtæki,“ segir Thelma sem nýtur sín í vinnunni. „Ég var manneskja sem fann mig ekki í hefðbundnu starfi en hef í dag byggt upp fjölbreytt starf sem ég hef ég mikla ástríðu fyrir.“ Áhugamál Thelmu liggja í öllu sem viðkemur því að bæta andlega og líkamlega líðan. „Hreyfing, jóga nidra, fjall- göngur, hugleiðsla og sund eru til dæmis áhugamál sem hafa sprottið upp út frá því. Að ferðast er mikið áhugamál og hef ég haft tæki- færi að ferðast til fjölda framandi landa og mismunandi menningar- heima, sem mér finnst gefandi. Þar stendur Bali upp úr, sem er magnaður staður sem ég stefni á að heimsækja aftur við fyrsta tækifæri. Fyrst til að vinna fyrir H&M Fatnaður hefur lengi verið áhuga- mál hjá Thelmu. „Áhuginn spratt þegar ég byrjaði að vinna í fataverslun 16 ára gömul. Á einn eða annan hátt hef ég unnið í kringum fatnað, til að mynda núna í verkefnum á samfélagsmiðlum með ýmsum fatamerkjum.“ Thelma hefur meðal annars unnið stór verkefni með Vero Moda og H&M. Svartur blazer og góðar gallabuxur ómissandi Thelma Dögg hefur verið við- loðandi tísku- bransann frá því á unglingsaldri. FRÉTTABLAÐIÐ/S IGTRYGGUR ARI „Ég var þá fyrsti aðilinn á Íslandi til að vinna samfélagsmiðlaverk- efni fyrir H&M þegar það byrjaði hér á landi og var þar í hópi með nokkrum aðilum frá Norðurlönd- unum. Þar var Angelica Blick einn stærsti áhrifavaldur Svíþjóðar en ég hef lengi litið upp til hennar þegar kemur að verkefnum á samfélagsmiðlum. Þetta var virki- lega skemmtilegt verkefni sem endaði með ferð til Ósló á viðburð í sænska sendiráðinu á vegum fyrir- tækisins fyrir vel unnin störf. Það var frábær reynsla og gaman að sjá og fá að kynnast fólkinu á bak við svo stórt fatafyrirtæki og upplifa svona ferð.“ Mikil þægindakona Í bernsku spáði Thelma fljótt í tísku. „Frá því að ég var lítil pældi ég mikið í fatnaði og lagði mamma mikið upp úr því að ég klæddist fallegum fatnaði, sérstaklega á sunnudögum. Það hef ég tekið áfram úr minni æsku og finnst ávallt gaman að klæða mig upp. Á sama tíma er ég mikil þæginda- kona og hef verið frá því ég man eftir mér. Ég hef alltaf haft skoðun á því hverju ég klæðist.“ Fatastíllinn breyttist örlítið eftir fæðingu Thelma lýsir fatastíl sínum sem fjölbreyttum og að það fari eftir dögum í hverju hún fíli sig hverju sinni. „Þar spila árstíðir líka inn í. Ég hef aldrei verið týpan sem getur tekið saman föt deginum á undan. Ég hef aldrei reynt að fylgja vissum stíl og ég held að það geri fatastíl meira skemmtilegan og afslapp- aðri. Stíllinn minn hefur breyst örlítið eftir að ég átti strákinn minn fyrir einu og hálfu ári síðan. Ég er enn að finna mig þar og kynnast líkamanum mínum eftir barnsburð. Þar spilar fataval inn í og finnst mér ýmis snið og flíkur henta jafnvel betur núna en gerðu áður og öfugt. Þrátt fyrir það finnst mér fatastíllinn minn síðustu ár hafa einkennst af þægindum í bland við klassískar flíkur og flíkur sem mér finnst standa upp úr. Ég hef alla tíð verið með ofnæmi fyrir óþægilegum fötum svo þessi blanda hentar mér ein- staklega vel.“ Finnst þér skipta máli í hverju þú kemur fram við formlega viðburði? „Ef ég klæðist fatnaði sem mér líður vel í þá skilar það sér í líðan og þá oftast líka í framkomu. Ég hef tileinkað mér að fylgja innsæinu, bæði daglega og fyrir fínni við- burði. Númer eitt, tvö og þrjú er að manni líði vel í eigin skinni sama hvað öðrum finnst, sama hvort það tengist fatnaði eða öðru.“ Þegar konur vilja láta bera virðingu fyrir sér, finnst þér þá skipta hvernig þær klæða sig? „Það er ótrúlegt hvað fólk hefur mikla þörf á að hafa skoðanir á fatavali hjá konum, í hverju þær ganga og hvað er ekki í lagi í þeim málum. Mér finnst við vera á leið í rétta átt með að breyta því og vonast til að það verði úrelt ef við höldum umræðunni gangandi. Fyrir mér felst hvorki traust né virðing í fatnaði né fylgihlutum heldur í manneskjunni sjálfri. Skoðanir, gjörðir, athafnir, eiginleikar eða hvað sem það er, er ávallt óháð fatnaði og stíl. Hvaða kyn sem rætt er um eiga þessir eiginleikar ávallt að vera metnir út frá manneskjunni.“ Leðurjakkinn frá mömmu Þegar kemur að sniðum, er eitthvað sem heillar þig frekar en annað? „Ég er rosa hrifin af „oversized“ yfirhöfnum. Oftast kýs ég buxur með víðara sniði niður þar sem mér þykir þær henta mér betur. Ég er líka hrifin af að blanda saman mismunandi sniðum og finnst það alltaf hitta í mark.“ Uppáhaldsflíkur Thelmu eru vanalega flestar yfirhafnir. „Ég tek yfirhafnir í ástfóstur. Svartur blazer hefur ávallt verið í uppáhaldi. Ég á æðislega leðurkápu og leðurjakka frá mömmu sem mér þykir afskaplega vænt um. Mamma gekk í leðurjakkanum þegar hún var ólétt af mér svo það hefur mikla merkingu fyrir mig.“ Aðspurð segist Thelma ekki eiga sér neinn uppáhaldshönnuð. „Mér finnst hins vegar frábært hvað íslenskir hönnuðir eru að gera flotta hluti og þá sérstaklega konur. Ég elska að sjá aðrar konur gera flotta hluti og í fatabrans- anum sem hefur þá verið sérstak- lega áberandi undanfarið.“ Thelma á sína uppáhaldsliti. „Ég er mjög hrifin af jarðlitum og er fataskápurinn mest í þeim litum í bland við svart og hvítt. Ég segi það ekki, það eru flíkur í skápnum í skærari litum og finnst mér ótrúlega gaman að breyta til öðru hvoru og klæðast þeim, því mér finnst mikilvægt að festast ekki of mikið í sama litavali í fötum.“ Grófir skór uppáhalds Thelma segist fyrst og fremst heillast af grófum skóm. „Síðustu ár hafa grófir skór verið í uppáhaldi, aðallega boots. Mér finnst flott að blanda saman fínum efnum í fötum við grófa skó og er ég miklu óhræddari við það nú en áður. Þegar kemur að hælum vel ég alltaf þægindi; ég er búin með tímabilið þar sem maður lét sig hafa óþægilega skó. Þegar ég fatt- aði að það segir ekkert til um glæsi- leika lagði ég slíka skó á hilluna. Þess vegna henta flestir skórnir mínir fyrir nánast öll tilefni, bæði hælar og lágbotna skór.“ n Fylgist með Thelmu Instagram @thelmagudmunds. Topp flíkur Thelmu í fataskápnum: n Góðar gallabuxur n Svartur blazer n Hvít skyrta í yfirstærð n Klassísk dragt n Rykfrakki n Grófir skór (boots) 4 kynningarblað A L LT 23. júní 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.