Fréttablaðið - 23.06.2022, Side 36
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær faðir okkar,
Sólon Rúnar Sigurðsson
fyrrverandi bankastjóri,
lést á Landspítalanum þ. 21. júní.
Guðrún Margrét Sólonsdóttir Hannes Heimisson
Sigurður Magnús Sólonsson Arnfríður Hjaltadóttir
Árni Valur Sólonsson Svanlaug Ida Þráinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Vilhjálmur Hafsteinsson
bílamálari,
Bjarkarholti 23,
lést laugardaginn 18. júní á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju þriðjudaginn 12. júlí kl. 13.
Þórdís Guðmundsdóttir
Dagbjört Vilhjálmsdóttir Páll Antonsson
Guðfinnur Vilhjálmsson Sarah Marie Kleveland
Davíð Már Vilhjálmsson Sandra Hjaltalín
afa- og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Rósinkar Aðalbjörnsson
Ásabraut 16,
Reykjanesbæ,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
Fossvogi miðvikudaginn 1. júní.
Útför fór fram frá Keflavíkurkirkju
þann 14. júní síðastliðinn.
Ólöf Guðrún Albertsdóttir
Unnar Örn Rósinkarsson Kristrún Anna Óskarsdóttir
Kristný Lára Rósinkarsdóttir
Þorgerður Halldórsdóttir
Helen Sif Halldórsdóttir Björn Ingvarsson
Hafdís Lára Halldórsdóttir
Halldóra Halldórsdóttir Þórður Sigurel Arnfinnsson
barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Soffía Stefánsdóttir
íþróttakennari,
Árskógum 8 í Reykjavík,
lést síðastliðinn laugardag.
Útför auglýst síðar.
Svana Pálsdóttir
Guðbjörg Pálsdóttir
Soffía Pálsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Brynjar Vatnsdal
Dagbjartsson
Billi
lést þriðjudaginn 14. júní.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 24. júní klukkan 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Bandalag íslenskra skáta
og Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Guðrún Kristinsdóttir
Dagbjartur Kr. Brynjarsson Elsí Rós Helgadóttir
Dagbjört V. Brynjarsdóttir Páll S. Magnússon
Þorleifur J. Brynjarsson Villimey Elfudóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
Dagrún Erla Ólafsdóttir
Sóleyjarima 5,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 16. júní.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 4. júlí kl. 15.
Steinar Rafn Erlendsson
Steinunn Kjartansdóttir
Ólafur Haraldsson
Þórarinn Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
Sigurður Jónsson
læknir,
Borgartúni 30a,
áður til heimilis að Tómasarhaga 15,
lést 9. júni á líknardeild Landspítalans.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki líknardeildar.
Arnaldur Sigurðsson Bergljót Jónsdóttir
Árdís Sigurðardóttir
Olga Sigurðardóttir Halldór Másson
Pétur Jónsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Edda Garðarsdóttir
lést á heimili sínu á Hrafnistu í
Reykjavík aðfaranótt mánudagsins
20. júní. Útförin fer fram frá
Háteigskirkju fimmtudaginn
7. júlí kl. 13.00.
Ragnar Sigurðsson Berglind Þórðardóttir
Snorri Sigurðsson Aðalheiður Leifsdóttir
Hilmar Sigurðsson
Drífa Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Elíasson
rafvirki,
Hringbraut 2b, Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði 13. júní.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Steinunn Jónsdóttir
Þorvarður S. Jónsson Tinna Rut Njálsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Börkur Benediktsson
frá Núpsdalstungu í Miðfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
aðfaranótt mánudagsins 20. júní sl.
Hann verður jarðsunginn frá
Melstaðarkirkju í Miðfirði
miðvikudaginn 20. júlí kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Melstaðarkirkju,
reikn. 0159-15-200356, kt. 460269-6019.
Sigrún Kristín Barkardóttir Kristinn Garðarsson
Björn Helgi Barkarson Ólöf Ásdís Ólafsdóttir
afa- og langafabörn.
Sigríður Snævarr sendiherra
fagnar sjötugsafmæli í dag.
arnartomas@frettabladid.is
„Ég hef átt alveg frábær ár frá því að ég
varð fimmtug,“ segir Sigríður Snævarr
sendiherra, sem fagnar sjötugsafmæli
sínu í dag. „Ég ætla að taka því frekar
rólega enda er þetta þannig dagur, flestir
einhvers staðar í burtu.“
Sigríður stefnir að því að fagna deg-
inum með litlu hófi frekar en fjölmennri
veislu, þar sem henni finnst gaman að
ná alvöru sambandi við fólk. Á hverjum
föstudegi í ár hafa þær Berglind Ásgeirs-
dóttir kallað til borðs í Marshallhúsinu
þar sem aldrei er von á sama fólki.
„Við köllum til alls konar fólk úr
öllum áttum, sem er það sem við dipló-
matarnir kunnum og hefur verið alveg
geggjað. Yngsti gesturinn er fjórtan ára
og sá elsti áttatíu og fjögurra. Þetta er
fólk frá ólíkum sviðum samfélagsins og
hver borgar fyrir sig.“
Spaðaás Íslendinga
Það væri heldur dregið úr ef Sigríði væri
lýst sem að hafa víða ratað. Hún hafði
unnið í tveimur íslenskum sendiráð-
um, þar á meðal í Sovíetríkjunum, áður
en hún var skipuð sendiherra fyrst
íslenskra kvenna árið 1991. Þá hefur
hún starfað sem sendiherra gagnvart á
annan tug landa og sinnt öðrum verk-
efnum fyrir utanríkisþjónustuna víðs
vegar um heim. Sigríður segir að stóri
spaðaás Íslendinga í alþjóðakerfinu sé
að öll fullvalda ríki séu jafnstæð.
„Við höfum komist ansi langt á því
að hafa rödd á alþjóðlegum vettvangi,“
segir hún og bendir á að Ísland eigi
utanríkisþjónustu sem sé eldri en lýð-
veldið.
„Stofnunin var sett á laggirnar 1940
þegar Danmörk var hernumin. Ég er
sjálf svo gömul í hettunni að ég var níu
daga gömul í starfi 1978 þegar mér var
boðið á Bessastaði til Kristjáns Eld-
járns, í fötum af mömmu því ég átti
engin spariföt sjálf.“
Þannig hefur Sigríður verið hluti
af utanríkisþjónustunni í 43 ár. Hún
segir mikilvægt fyrir Ísland að eiga
sterka sendiherra sem sé orðið æ mikil-
vægara starf.
„Ég lít svo á að lífið sé verkefnatengt,
að það séu verkefnin sem máli skipta,
og ég mun halda þeim áfram. Ég er ekk-
ert að hætta strax en miða kannski við
nírætt.“
Viðtalið við Sigríði má lesa í heild á
frettabladid.is ■
Ekkert á leiðinni að hætta
Sigríður hefur starfað í utanríkisþjónustunni í 43 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1923 Hnitbjörg, listasafn Einars Jónssonar, er opnað á
Skólavörðuholti í Reykjavík.
1926 Varðskipið Óðinn, sem ríkisstjórn Íslands lét smíða,
kemur til Reykjavíkur.
1967 Willy Brandt, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands,
kemur í opinbera heimsókn til Íslands.
1968 Keflavíkurganga á vegum Hernámsandstæðinga er
gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 23. júní 2022 FIMMTUDAGUR