Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 44
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Það verður ekki töluð vit- leysan á Þingvöllum í kvöld þar sem geðbætirinn Guðni Ágústsson og geðlæknirinn Óttar Guðmundsson efna til kvöldgöngu í minningu þjóð- skáldsins Jónasar Hallgríms- sonar sem hvílir lúin bein á staðnum. ser@frettabladid.is Félagarnir Guðni Ágústsson og Óttar Guðmundsson geta ekki hætt að ganga um velli gamla þjóð- þingsins við Almannagjá – og allra síst á albjartri Jónsmessunótt – en enn einu sinni leggja þeir í hann í kvöld undir kliðmjúkum fjölda- söng Karlakórs Kjalnesinga og að þessu sinni er umræðuefnið annar tveggja mannanna sem hvílir á bökkum Öxarár, þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson sem litaði nítjándu öldina svo skærum litum að enn er þjóðin með glýju í augunum. „Hann er líklega umtalaðasti Íslendingurinn fyrr og síðar, eða því sem næst,“ segir Óttar, sem er búinn að taka fram skóna og er til alls lík- legur á pöllum gamla þingheimsins í kvöld, en gangan byrjar, vel að merkja, klukkan 20.00 á planinu ofan Almannagjár. Síblankur náttúrufræðingurinn Hann ætlar að einbeita sér að helgi- myndinni sem slegið hefur verið upp af Jónasi og spyrja sig og aðra nærstadda hvort hún standist. „Stóra spurningin er auðvitað hvort þessi helgimynd sé raunsönn – og ég held nú að svo sé ekki,“ segir Óttar og heldur áfram, býsna íbygg- inn: „Það er raunar með algerum ólíkindum að þessi síblanki nátt- úrufræðingur skuli skreyta tíu- þúsundkallinn, verðmætasta pen- ingaseðil landsmanna,“ segir Óttar og er við það að skella upp úr. Jónas hafi ekki átt bót fyrir boruna á sér – og svo hafi verið alla tíð, en samt sem áður sé honum hampað með þessum hætti, sem hljóti að teljast öfugmæli. „Svo er hann grafinn upp í dönskum kirkjugarði eins og um einhver dýrlingsbein hafi verið að ræða,“ heldur geðlæknirinn áfram og hnussar svo til hæfilega, en allt megi þetta heita á skjön við brös- ótta ævi Öxndælingsins sem fæddist við dagsbrún nítjándu aldar og náði aðeins 37 ára aldri. „Á bak við þessa mynd, sem er okkur svo kær að við viljum helst ekki sjá annað, er auðvitað breyskur maður,“ bætir Óttar við og dregur upp sína mynd af þjóðskáldinu. „Ég held að Jónas hafi verið afskaplega óhamingjusamur maður alla sína tíð, nema ef vera skyldi árin eftir menntaskólatíð hans þegar hann varð ástfanginn í fyrsta og eina skiptið á ævi sinni.“ Drykkfelldur kvíðasjúklingur Og við Óttari blasir döpur mynd. „Hann var drykkfelldur kvíðasjúkl- ingur sem glímdi við þunglyndi, en þess utan var hann ómannblendinn og óöruggur með sjálfan sig, fyrir nú utan það augljósa að hann var hringtrúlofaður dauðanum eins og títt var um skáld á hans reki. Hann trúði því beinlínis að hann myndi ekki lifa lengi.“ Og Óttar er ekki á því að fótbeins- brot í stigagarmi í kóngsins Kaup- mannahöfn hafi verið dauðasök skáldsins. „Ég held hann hafi dáið úr lungnabólgu og brjósthimnubólgu sem hafi sáð sér upp í heila,“ segir Óttar, en vel megi vera að hann hafi dottið í stiga sakir þess hversu hann hafi verið máttfarinn undir það síð- asta. „En stigabeinbrotið er bara enn ein helgimyndin, ef út í það er farið, þegar hitt er líklegra að lungun hafi bara gefið sig.“ ■ Jónas afhjúpaður á Jónsmessunni Óttar og Guðni leiða gönguna en Óttar segir Jónas hafa verið hringtrúlof- aðan dauðanum eins og títt var um skáld á hans reki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Helgimynd af Jónasi Hallgrímssyni. toti@frettabladid.is Kristín Hjartardóttir geðhjúkrunar- fræðingur og Elín Agla, þjóðmenn- ingarbóndi og heimspekingur, standa fyrir hópfjármögnun á Karolinafund.com til þess að geta reist hirðingjatjald á höfuðborgar- svæðinu. „Hjálpið okkur að reisa tjaldið til að hlúa að menningu og skapa sam- hljóm. Tjaldið er skjól til að rækta tengsl við hvert annað og tengsl við náttúruna,“ segir Elín Agla en tveir dagar eru eftir af söfnuninni og enn vantar nokkuð upp á. „Við erum að safna fyrir undir- stöðupalli fyrir hirðingjatjaldið og því fleiri sem styðja verkefnið, þeim mun styrkari stoðum mun það standa á, bókstaflega,“ heldur Elín áfram um tjaldið og verkefnið, sem þær kalla Þetta Gimli – þjóðmenn- ingarbýli, og felur í sér ákall um menningarbyltingu og veisluhöld. Tjaldið sjálft er handgert, mong- ólskt hirðingjatjald sem bíður í öruggri geymslu eftir undirstöðu og hentugum stað í útjaðri höfuð- staðarins þar sem þær stöllur ætla því að veita viðburðum og veislu- höldum skjól. „Þar sem við getum komið saman og nært tengslin við hvert annað, staðinn okkar og nátt- úruna,“ eins og þær orða það á söfn- unarsíðunni þar sem Þetta Gimli er einnig sagt vera „staður fyrir okkur til að iðka þorpsvitund. Skjól fyrir ímyndunaraflið svo hægt sé að sjá sér fyrir hugskotssjónum aðrar leiðir til að vera í heiminum. Iðkun og viðburðir sem næra bæði okkar sál sem og sál heimsins.“ Söfnunin stendur út föstudaginn 24. júní. „Sum sé á miðnætti á töfra- nóttinni, Jónsmessunótt,“ segir Elín sem vill geta heiðrað fegurðina í öllum sínum birtingarmyndum í hjarta og miðju tjaldsins. ■ Safnað fyrir menningarbyltingu Elín Agla í tjaldinu þegar það stóð á Ströndum fyrir nokkrum misserum. Hafnar- fjarðar Hjarta ÚTISVÆÐIÐ 23. –25. júní ÚTISVÆÐI Frábær dagskrá alla helgina á útisvæði HAPPY HOUR 18-21 Drögum út bjórkort alla dagana 10 tegundir af ísköldum í stærsta bjórgám Evrópu Fimmtudagur Eyþór Ingi og Davíð Sigurgeirsson Heiðar í Botnleðju Föstudagur Hljómsveitin Brot af þvi besta Laugardagur Loksins er Júlladiskó mættur :) 24 Lífið 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.