Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 48
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Kolbeins Marteinssonar n Bakþankar Stundum er ágætt að staldra við ef maður finnur ónotatilfinningu ágerast í maganum. Þá getur verið gott að skoða aðstæður í umhverf- inu og reyna að skilja hvað er í gangi. Sjálfur tel ég mig hafa séð nokkur óveðursský á himni. Fasteignaverð hefur aldrei verið hærra. Allt selst og eftirspurnin er óseðjandi. Byggingakranar eru úti um allt höfuðborgarsvæðið, alls staðar er verið að byggja. Fjárfestir sem ég þekki sagði mér að allir í golfklúbbnum hans væru meira og minna að byggja blokkir. Verð- bólga er farin að valda vandræðum og vextir fara hækkandi og munu hækka enn frekar. Almenningur sem hefur fjármagnað íbúðakaup sín með óverðtryggðum lánum mun finna að slíkar vaxtahækk- anir hafa hratt mikil áhrif. Sala á bílum með bílalánum hefur sjaldan verið meiri. Olíu- verð er komið í svipaðar hæðir og árið 2008. Reynslan sýnir að þegar olíuverð er svo hátt hefur það slæm áhrif á heimshagkerfið og kreppa fylgir í kjölfarið. Bílastæðin við Leifsstöð eru yfirfull og kredit- kortaeyðsla Íslendinga erlendis hefur aldrei verið meiri. Hluta- bréfamarkaður hér á landi hefur vaxið gríðarlega eftir ævintýralega ávöxtun þó nú sé farið að hökta. Komur fólks á Vog með kókaín- fíkn hafa aldrei verið fleiri. Allt eru þetta kunnuleg stef sem minna á Ísland fyrir 15 árum. Árið 2007 hefur oft verið nefnt sem táknmynd veislunnar sem endaði með hruni. Verkefnið núna er að tryggja að ársins 2022 verði ekki minnst með sama hætti og við getum vel leyft okkur bjart- sýni. Hagkerfi okkar stendur á traustum grunni og enginn hefur enn borðað gull. Þegar haustar safnar bóndi forða fyrir veturinn. Það eigum við líka að gera og muna að á eftir vetri kemur alltaf vor. n Fimmtán ár Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Allt fyrir veisluna Skreytingar Borðbúnaður Búningar Tækjaleiga Sigraðu innkaupin með appinu Afmælishátíð BYKO á Suðurnesjum og á Granda á laugardag, 25. júní kl. frá 13-16 14:00 Hjálmar Örn 14:15 Hreimur 14:50 Ávaxtakarfan 15:25 Emmsjé Gauti 13:00 Eva Ruza 13:15 Ávaxtakarfan 13:50 Emmsjé Gauti 14:25 Lína Langsokkur Suðurnes Grandi FÁÐU GEFINS FUGLAHÚS TIL AÐ SMÍÐA OG TAKTU ÞÁTT Í LEIK Á SAMFÉLAGSMIÐLUM #MITTFUGLAHUS Kandífloss, bollakökur og pylsur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.