Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 16

Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 16
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ LAXDAL.IS SUMARútSAlA Enn MEiRi vERðlækkUn 40-70% afsláttur Salka segir að hún sé hrifin af grænum, brúnum, drapplituðum og öðrum jarðlitum, en klæðist engu að síður fötum í alls kyns ólíkum litum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR þetta og þegar ferlið var komið í gang var ákveðið að ég þyrfti að vera á sviðinu að flytja tón- listina, svo endaði þetta með því að vera árslangt verkefni. Þannig að ég flutti eiginlega óvart heim til Íslands frá Berlín í gegnum þetta,“ segir Salka. „Við byrjuðum svo á öðru verki, sem heitir Án titils, og er þróað í samstarfi við nokkra Íslendinga sem eru ekki hvítir og hafa því öðruvísi upplifun af því að alast upp sem Íslendingur. Hand- ritið er í vinnslu en verkið fer lík- lega ekki á svið fyrr en á þarnæsta leikári. Ég fíla mjög mikið að vinna í leikhúsi. Mamma er leikmynda- hönnuður og pabbi er leikari, svo ég var alltaf uppi í leikhúsi þegar ég var krakki. Ég byrjaði svo að vinna í sjoppunni þegar ég var 16 ára og fór svo í ljósadeildina og hægt og rólega yfir í hljóðdeildina eftir að ég fór að læra hljóðtækni,“ segir Salka. „Leikhús hefur því alltaf verið hluti af vinnunni minni og mér finnst mjög gaman að búa til tónlist fyrir leikhús. Mér finnst styrkleikarnir mínir nýtast mjög vel þar.“ Fötin endurspegla ekki kjarnann Þegar kemur að fatastílnum hennar segir Salka að það sé lítið samræmi í honum. „Ef ég er í stuði er ég oft að prófa hluti og í fer í frekar æpandi föt og blanda ýmsu saman. En svo þegar ég er að vinna mikið heima, eins og núna, bý ég hálfpartinn í Jurassic Park-náttbuxunum mínum og er í stuttermabol með snúð og gler- augu,“ segir hún. „Það er fyndið að ég sé sjálfa mig þannig, en svo þegar ég er að fara að spila eða hef eitthvert tilefni til að gera mig til er ég mjög ólík manneskja. Það eru miklir pólar í mínum stíl. Ég er hrifin af grænum, brúnum, drapplituðum og öðrum jarðlitum, en ég klæðist fötum í mjög ólíkum litum. Mér finnst gaman að nota föt til að ákveða hvern ég ætla að leika í dag að ein- hverju leyti,“ segir Salka. „Fötin og stíllinn minn endurspegla ekkert endilega hver ég er í kjarna mínum, það er bara ég nakin heima að elda egg, en fötin mín eru oft meira leikhús.“ Hætt að spá í merkjavöru „Ég pæli miklu minna í merkjum en þegar ég var unglingur. Þá fannst mér eins og það væri glæsi- legra að vera í merkjavöru og það væri þess virði að eyða peningum í hana, en í dag er mér alveg sama um það. Það er gott að frelsa sig undan því og talsvert ódýrara líka,“ segir Salka og hlær. „Núna kaupi ég eiginlega bara notuð föt og leita mikið að fötum sem mér finnst einstök og ég gæti ekki keypt í búð þar sem allt er fjölda- framleitt, heldur hafa sögu, eru úr efni sem mér finnst hafa áhuga- verða áferð eða gæti verið gaman að blanda við eitthvað annað. Þannig að stíllinn minn hefur þróast frá því að vera innantómur og snúast um hvað öðrum finnst flott, yfir í hvað mér finnst spenn- andi áferðarlega séð og finnst dýr- mætt eða fallegt og langar að eiga að eilífu,“ útskýrir Salka. Tónlistarkonur móta stílinn „Áður las ég tískublöð mikið til að fylgjast með því sem var í gangi, en núna fylgist ég eiginlega bara með tískunni á samfélagsmiðlum. Ég skoða TikTok-aðganga hjá hönnuðum og þar sem fólk er að fjalla um götutísku í ákveðnum borgum og þess háttar. En ég sé líka bara rosa mikið af tísku úti um allt án þess að vera að reyna það,“ segir Salka. „Ég reyni samt að velta ekki of mikið fyrir mér hvað er í tísku og það er bara tilviljanakennt hvort klæðnaðurinn minn er í tísku eða ekki. Það eru hins vegar margar tón- listarkonur sem ég lít upp til vegna listarinnar þeirra sem hafa svolítil áhrif á stílinn minn, til dæmis Caroline Polachek og Sevdaliza og mikið af raftónlistarkonum sem eru oft að vinna með blöndu af mjög ýktri tísku og fötum sem eru augljóslega notuð,“ segir Salka. „Ég og Jóhanna, besta vin mitt og hinn helmingurinn af Cyber, höfum líka alltaf espað hvort annað upp í hvernig við klæðum okkur, hán hefur haft mikil áhrif á hvernig ég klæði mig.“ Ódýr föt í uppáhaldi „Ég kaupi fötin mín langmest í Verzlanahöllinni, Hringekjunni, fatamarkaðnum á Hlemmi og öðrum nýrri búðum sem selja notuð föt,“ segir Salka. „Uppáhalds- búðin mín var Rauðakrossbúðin sem var við Skólavörðustíg, en hún var að hætta, sem er mjög sorglegt. Bestu fatakaupin mín eru líklega kjóll sem ég sá í búð í Berlín og langaði rosalega mikið í, en hann kostaði 400 evrur, svo ég keypti hann ekki. En ég sá eftir því og tékkaði aftur á honum en þá var sagt að hann væri seldur, svo ég gafst upp. Ég sá hann svo auglýstan í netsölu í Covid og þá var hann kominn niður í 55 evrur,“ segir Salka. „Ég sendi skilaboð, en þá voru þegar þrír viðskiptavinir á leiðinni að koma að máta hann. En hann passaði ekki á neinn þeirra, svo ég fékk hann. Þetta var mjög eftirminnilegt, því það var svo ótrúlega ólíklegt að ég myndi fá hann, en samt gekk það upp. Ég á líka einn ljósbrúnan karlmannsjakka úr ull með risa axlapúða sem var mjög góð kaup því ég keypti hann á eina evru í Berlín og hef notað hann á næstum hverjum degi síðan,“ segir Salka. „Það er ein af uppáhaldsflíkunum mínum. Verstu fatakaupin mín voru hins vegar örugglega Alexander McQueen-pils sem ég keypti á afslætti en var samt frekar dýrt. Ég var í því á afmælinu mínu 1. ágúst í fyrra en rennilásinn eyðilagðist fyrsta kvöldið,“ segir Salka. „Ég er mjög lengi að fara með föt í viðgerð þannig að það er enn þá ofan í skúffu.“ Notar ósamstæða eyrnalokka Salka er hrifin af því að nota háls- men og ósamstæða eyrnalokka. „Ég á til dæmis eitt hálsmen sem ég nota mikið, sem skartgripa- smiður í New York smíðaði fyrir mig sem er með lítilli tölvu sem á stendur Cyber. Hún bjó til nokkra skartgripi fyrir mig sem tengjast einhverju í lífi mínu sem ég vildi fagna,“ segir hún. „Svo vinn ég líka mikið með að vera með sitt hvorn eyrnalokkinn. Ég á mjög stórt safn af alls konar skrítnum eyrna- lokkum og litla systir mín er líka skartgripahönnuður, svo ég fæ oft að ræna af henni. Ég nota líka nokkur önnur hálsmen og belti og á fullt af alls konar töskum,“ segir Salka. „En ég er löt að færa dótið mitt á milli þeirra svo ég tek yfirleitt svona mánuð í einu með hverja þeirra og breyti svo til.“ n Ef ég er í stuði er ég oft að prófa hluti og fer í frekar æpandi föt og blanda ýmsu saman. En svo þegar ég er að vinna mikið heima, eins og núna, bý ég hálfpartinn í Jurassic Park-náttbux- unum mínum. Salka Valsdóttir 2 kynningarblað A L LT 21. júlí 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.