Fréttablaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 18
Rykfrakkinn er og verður alltaf ein af grunnflíkum hvers fataskáps, fyrir hvaða kyn sem er. Þar sem hann má binda í mittið er hægt að skera út stundaglassvöxt ef viljinn er fyrir hendi. En hann er líka fallegur þegar hann fær að falla niður frjáls. jme@frettabladid.is Rykfrakkinn var einstaklega áberandi á tískupöllunum þar sem vor- og sumartískan var sýnd og heldur flíkin áfram að vera eitt af klæðilegustu tískutrendunum sem eru í gangi. Rykfrakkinn hefur líka komið sér vel í gráa sumrinu á Íslandi, nógu sumarlegur sem sumarflík en líka nógu hlýr til að nota með góðri peysu innanundir á kaldari sumardögum. Flippaðir frakkar Á tískupöllunum fyrr á árinu, þar sem haust- og vetr- artískan var kynnt, var rykfrakkinn einnig áberandi, á nokkuð öðruvísi máta en við eigum að venjast. Sérstaklega var gaman að sjá hönnuði leika sér með frakkaformið, rugla aðeins í því og snúa því ræki- lega á haus. Rykfrakkinn fékk til dæmis að vera kjóll með korseletti hjá Dior, sem sýndi einnig þónokkrar aðrar framandi útgáfur af rykfrakk- anum til viðbótar. Aðrir hönnuðir nýttu sér útklippitrendið sem hefur vakið eftirtekt upp á síðkastið og klipptu út göt í rykfrakkann sem kom einstaklega skemmtilega út. Allt í allt voru rykfrakkar tískupallanna fjölbreyttir í sniði, efnisvali og litavali, bæði sem yfir- hafnir og sem aðalflíkin. Það þarf því ekki að einskorða sig við einn drapplitaðan ryk- frakka í fataskápnum. Hví ekki að skella sér á rykfrakka kjól? n Ruglaðir rykfrakkar Dior var með puttann á púlsinum í vetur fyrir rykfrakka- æðið í haust og sýndi nokkrar skemmtilegar útfærslur. Á tískuvikunni í París í mars mátti sjá þennan gæjalega rykfrakka með útklipptum hliðum frá tískuhúsi Coperni. Rykfrakkinn var upphaflega hannaður í fyrri heimsstyrjöld- inni af breska hernum til notk- unar í skotgröfunum. Þessi ryk- frakki frá Jil Sander á tískuvikunni í París í janúar minnir um margt á fatnað liðsforingja í heimsstyrj- öld framtíðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Þessi sér- staki rykfrakki kemur úr smiðju Y/Project og á eftir að vera einstaklega flottur í haust. 4 kynningarblað A L LT 21. júlí 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.