Fréttablaðið - 21.07.2022, Síða 20

Fréttablaðið - 21.07.2022, Síða 20
Markmið UMFÍ með Unglinga- landsmótum er að bjóða upp á hefðbundnar íþróttagreinar en auk þess að kynna nýjar eða lítt þekktar greinar til leiks. Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Velkomin á Unglingalands- mót UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina! Í góðum ævintýrum þurfa sögu- hetjurnar gjarnan að gera þrjár tilraunir til að ná árangri. Auð- vitað tekst það alltaf í síðustu til- raun. Við hjá UMFÍ höfum þurft að fresta Unglingalandsmóti tvö ár í röð, en nú stendur þriðja atrennan yfir og er allt útlit fyrir að okkur takist að halda glæsilegt mót í ár. Unglingalandsmót UMFÍ hafa farið fram reglulega frá árinu 1992 og árlega frá árinu 2002 um versl- unarmannahelgina, og spanna þau því nú 30 ára sögu. Að þessu sinni er Unglingalands- mótið haldið á Selfossi. Mótin hafa vaxið og sannarlega sannað gildi sitt sem glæsilegar fjölskyldu- og íþróttahátíðir, þar sem saman koma börn og ungmenni ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá. Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11–18 ára reyna með sér í fjöl- mörgum íþróttagreinum en sam- hliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Þátttakandi þarf ekki að vera í íþrótta- eða ung- mennafélagi til þess að geta tekið þátt; allir geta verið með og lögð er áhersla á að keppendur taki þátt á sínum forsendum og hafi gleðina að leiðarljósi. Lýðheilsan í fyrsta sæti Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) frá því í vor kemur fram að yfir 60% Evrópubúa glíma við offitu og um þriðjungur barna er í sömu stöðu, þar sem hlutfallið fer hækkandi. Óheilbrigður lífsstíll hefur leitt til aukningar á langvinnum sjúk- dómum í Evrópu og leiðir það til verulegs kostnaðar og álags á heilbrigðiskerfi Evrópuþjóða. Ljóst er að góð lýðheilsa er grundvöllur að farsælu lífi. UMFÍ leggur áherslu á öflugt íþrótta- og æskulýðs- starf og vill með því leggja sitt af mörkum til þess að búa komandi kynslóðum sem best heilsusamleg uppvaxtarskilyrði. Markmið UMFÍ með Unglinga- landsmótum er að bjóða upp á hefðbundnar íþróttagreinar en auk þess að kynna nýjar eða lítt þekktar greinar til leiks. Þannig viljum við stuðla að því að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi, sem hvatt getur til þátttöku og aukinnar hreyfingar. Fjölskyldan nýtur lífsins saman Unglingalandsmót UMFÍ er fjölskylduhátíð. Þar fá þátttak- endur tækifæri til þess að njóta hreyfingar á heilbrigðum for- sendum. UMFÍ er landssamband 26 sambandsaðila og 400 aðildar- félaga þeirra um land allt. Hlut- verk UMFÍ er að efla, styrkja og byggja upp fólk, með skipulögðu íþrótta-, félags- og æskulýðsstarfi. Við viljum að allir geti tekið þátt í íþróttum og hreyfingu og verið hluti af öflugri liðsheild í samfélag- inu. Þannig vinnum við saman að því að bæta heilsu landsmanna og samfélagið um leið. Fram undan er tími þátttakendanna þar sem mestu máli skiptir að mæta, vera með og reyna eitthvað nýtt. Á milli keppnisgreina njótum við þess að vera saman með fjölskyldunni og fylgjast með öðrum viðburðum sem í boði eru. Þannig virkjum við Ungmennafélagsandann sem felur í sér að bæta sjálfan sig og sam- félagið um leið, en hann endur- speglast í gildum UMFÍ: Gleði – Traust – Samvinna. Mestu skiptir að vera með Unglingalandsmót UMFÍ er stór viðburður. Undirbúningur þess og framkvæmd kalla á samvinnu og mörg handtök. Hornsteinninn í mótahaldinu er góður vilji sveitar- félaga til að starfa með héraðs- samböndum og íþróttafélögum í heimabyggð. Á móti veitir það þeim tækifæri til að laða að þátt- takendur sem kynnast sveitar- félaginu og nýta þá þjónustu sem það hefur upp á að bjóða. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka Sveitarfélaginu Árborg og starfs- mönnum þess, sem að mótinu koma, sem og starfsmönnum og sjálfboðaliðum á vegum HSK og UMFÍ, sem hafa lagt hönd á plóg til að gera landsmót UMFÍ að þeim vinsæla viðburði, sem það jafnan er. Góða skemmtun á Unglinga- landsmóti UMFÍ um verslunar- mannahelgina. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ n Lýðheilsa og fjölskyldan í fyrsta sæti á mótinu Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ. MYND/AÐSEND Unglingalandsmótið verður sett föstudaginn 29. júlí klukkan 20.00 á Selfossvelli. Æskilegt er að allir þátttakendur mæti á mótssetn- inguna og gangi inn á mótssvæðið með öðrum þátttakendum. Á setningunni verður mikið fjör, tónlist og dans. Þeir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, verða viðstaddir setninguna. Allir eru velkomnir á mótssetninguna, þátttakendur, foreldrar, systkini og bara allir sem vilja vera í góðum félagsskap. Mótinu verður slitið á Selfoss- velli 31. júlí, klukkan 23.45. Herleg- heitunum lýkur svo með glæsilegri flugeldasýningu. Allir með á mótinu Börn og ungmenni á aldrinum 11 –18 ára geta tekið þátt í keppnis- greinum á Unglingalandsmóti UMFÍ. Skráning er á heimasíðu UMFÍ; umfi.is. Skráningu lýkur mánudaginn 25. júlí. Þátttakendur og allir aðrir mótsgestir geta tekið þátt í afþreyingardagskránni. n Mótssetning og mótsslit Þátttakendur ganga inn á völlinn. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, verður viðstaddur setningu mótsins. Margt fleira er í gangi hjá UMFÍ en Unglingalandsmót UMFÍ. Í júní var haldið Landsmót UMFÍ 50+ fyrir fimmtíu ára og eldri. Íþróttaveisla UMFÍ verður haldin nú í ágúst og september í samstarfi við Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK). Veislan samanstendur af fjórum skemmtilegum viðburðum sem allir fara fram á höfuðborgar- svæðinu. Við hvetjum alla til að kynna sér viðburðina og taka þátt. Hægt er að fá allar upplýsingar um viðburði á umfi.is. n Íþróttaveisla í allt sumar ALLT UM HLAUPIÐ Á ITHROTTAVEISLA.IS FORSETA HLAUP HLUTI AF ÍÞRÓTTAVEISLU UMFÍ OG 100 ÁRA AFMÆLI UMSK ÁLFTANESI 3. SEPTEMBER UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS UNGMENNASAMBAND KJALARNESÞINGS 2 kynningarblað 21. júlí 2022 FIMMTUDAGURUNGLINGALANDSMÓT UMFÍ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.