Fréttablaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 36
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Leiðindaveður? Er ekki betra að vera í tíu gráðum en fjörutíu gráðum? Við Bjarg í Reykjahlíð snæddu þau Annette og Robert frá Hol- landi morgun- matinn sinn í bongóblíðu. Kannski sáu þau sólarlagið um kvöldið þar sem fjallið Vind- belgur reyndi enn og aftur að stela senunni. Á Húsavík voru farþegar um borð í hvalaskoðunarbátum ansi sprækir. Stúlkan sem batt bátinn sagði óvenjumikið af stórum hvölum, sem vekti gleði ferðafólks. Á sama tíma reyndi einn gesturinn inngöngu í guðshúsið Húsavíkurkirkju. Það var lokað en kom kannski ekki mikið að sök, því haldið hefur verið fram að almættið sé á kreiki þessa dagana úti í náttúrunni á ís- lensku hásumri. Ísland er risið úr dvala eftir Covid-árin. Þar sem áður var varla hræðu að sjá er nú urmull fólks á ferð og flugi. bt@frettabladid.is Ísland er meira en Reykjavík. Ísland er líka úti á landi. Dæmi eru um dreif býl svæði þar sem hvert einasta gistirými er nú bókað og uppselt. Fréttablaðið og sjón- varpsstöðin Hringbraut eru á ferð um landið og er sama hvar borið er niður í samtölum við gesti okkar. „Við erum hér vegna hinnar stór- fenglegu náttúru,“ segja þeir. Einn er þó sá kúnnahópur sem vart hefur látið sjá sig úti á landi í sumar. Þessi hópur er við sjálf. „Það vantar alveg Íslendingana, sagði kona á Húsavík. „Ætli það séu ekki bara allir úti á Spáni þar sem fólk er að steikjast?“ sagði önnur. „Leiðindaveður? Er ekki betra að vera í tíu gráðum en fjörutíu gráð- um?“ sagði sú þriðja. n Ísland án Íslendinga ninarichter@frettabladid.is Bandaríski stórleikarinn og hjarta- knúsarinn Brad Pitt hefur slegið í gegn á frumsýningarferðalagi spennumyndarinnar Bullet Train. Aðstandendur myndar- innar hafa fylgt verkinu til Par- ísar, Berlínar og London og má segja að leikhópurinn hafi leikið á als oddi fyrir fjöl- miðlana. Brad Pitt hefur ekki síst vakið athygli fyrir vandaðan og frum- legan fatastíl, en hann hefur klæðst litríkum settum úr líni fyrir pressuna. Pitt mætti í brúnu línpilsi á rauða dregilinn í Berlín sem klæddi hann einstak- lega vel og þar sannað- ist enn eina ferðina að kyngervi og aldur hefur ekkert að segja þegar kemur að getu fólks til að vera smart í pilsi. n Línklæddur Brad Pitt vekur lukku Brad í grænum lit í London og létt hörefni er fullkomið í hitabylgjunni sem gengur yfir Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn. Ný og öflug fasteignaleit Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is Hinn litríki fatn- aður Brad Pitt á kynningartúrnum er eftir hönnuðinn Haans Nicholas Mott. Pilsið í brúna settinu hefur heldur betur slegið í gegn. Bleik skyrtan tónar vel við brúna litinn. 24 Lífið 21. júlí 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.