Fréttablaðið - 26.07.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 26.07.2022, Blaðsíða 2
Urriðaveiðin er miklu dreifðari en við höfum áður séð. Gylfi Ingvason á Skútustöðum Veiðibóndi hefur aldrei áður veitt þrjá risaurriða sama sumarið langt úti í Syðri-Flóa Mývatns. Hann telur urrið- ann elta hornsíli út á mitt vatn í stað þess að halda sig á grynningaslóð. bth@frettabladid.is VEIÐI „Ég hef aldrei áður veitt þrjá fiska sama sumarið sem hafa farið yfir 11 pundin, aldrei,“ segir Gylfi Ingvason, veiðibóndi og reykmeist- ari á Skútustöðum í Mývatnssveit. Veiðibændur veiða samkvæmt skilyrðum í net í Mývatni á tiltekn- um árstímum, einstaka stórfiskur slæðist með á sumrin á stöng. „Mörg ár veiðir maður engan fisk yfir 10 pund. Þetta er því óvanalegt stórfiskasumar og óvenjumikið af mjög fallegum urriða,“ segir Gylfi. Suma stærstu urriðanna sem Gylfi hefur veitt í sumar segir hann hafa verið langt frá landi. Tilgátan er að stórurriðinn, sem alla jafna kann best við sig skammt frá landi í hrauni, elti nú hornsíli um allt vatn. „Urriðaveiðin er miklu dreifðari en við höfum áður séð,“ segir Gylfi. Toppur toppanna í taðreykingu hjá Gylfa er að hans sögn feitur urr- iði úr Mývatni eða Laxá. Þá komi við og við úrvalsfiskar frá öðrum svæð- um í reyk á Skútustöðum. Fiskurinn megi ekki vera magur til að gæðin nái hæstu hæðum. „Það koma góð átuár í Mývatni og Laxá og það koma slæm átuár. Það er fyrst og fremst í góðu árunum sem urriðinn verður svona rosalega þykkur eins og við höfum séð mörg dæmi um í sumar.“ Þegar Fréttablaðið bankaði upp á hjá Gylfa var mikill fjöldi ferða- manna að mynda reykhúsið. Enda eru þeir ekki margir staðirnir í dag sem notast við það sem Gylfi kallar „alvöru taðreykingu“. Gylfi hyggur raunar að aðeins séu um 10 til 20 aðilar eftir á öllu landinu. „Eftir eina kynslóð sé ég ekki fyrir mér að það verði nokkur taðreyking í gangi hér á landi, ekki nema gervi- taðreyking,“ segir Gylfi. Með „gervi- taðreykingu“ á Gylfi við að ekki sé hægt að kalla það taðreykingu að setja einn taðköggul með sagi í nokkra klukkutíma. Raunar er taðreyking, það er nýt- ing á skít húsdýra sem eldsneyti, í hættu úti um allan heim. Rifjar Gylfi upp að Sami einn frá Finnlandi hafi heimsótt hann einu sinni í reyk- húsið. Saminn hafi lýst hvernig Matvælastofnun Finnlands hafði eyðilagt grundvöll taðreykingar í Finnlandi með óbilgjörnum kröf- um. Saminn hafi lifað á taðreyktu hreindýrakjöti í skinntjöldum en kerfið rofið árhundraða sögu. „Ef framleiðsla stenst allar kröfur eru það engin rök gegn taðreykingu að eldiviðurinn hafi upprunalega verið skítur,“ segir Gylfi. „Það er búið að vinna hann og margt líf- rænt ræktað grænmeti sem þykir gott er ræktað af skít,“ segir reyk- meistarinn. n Aldrei upplifað annað eins stórfiskasumar í Mývatni Hnossgætið sem eldri Mývetningar kalla saltreyð. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN Dæmi um stórurriða sem veiddist í Mývatni í liðinni viku. Valkostir á Lækjartorgi Miðbær Reykjavíkur iðar nú af lífi aftur eftir daufa daga á tímum kórónaveirunnar. Á Lækjartorgi er margt um að vera og ýmislegt í boði. Til dæmis er hægt að tylla sér niður í gróðurhúsi og njóta veitinga eða kíkja inn í spilasal þar sem háspennan ræður ríkjum og peningar streyma úr höndum gesta. Það er líka hægt að fylgja vegvísi auglýsingaspjalds og líta á eitt sérstakasta safn Íslands. Nú eða bara skoða símann sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þórlólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði olafur@frettabladid.is VIÐSKIPTI Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor spyr hví ríkis- sjóður krefji ekki kvótahafa um full veiðigjöld sem þeir hafi fengið afslátt af á grundvelli gallaðra árs- reikninga. Bendir Þórólfur á að ríkissjóður krefji öryrkja og ellilífeyrisþega um fulla endurgreiðslu þegar lífeyrir sé ofgreiddur vegna rangra upplýsinga. Þetta kemur fram í grein Þórólfs í Fréttablaðinu í dag. Þar svarar hann grein Birkis Leóssonar endurskoð- anda. Þórólfur segir endurskoðend- ur sniðganga grundvallarreglu árs- reikningslaga um að ársreikningur skuli gefa glögga mynd af afkomu og efnahag þegar þeir endurskoða ársreikninga útgerða sem eiga afla- heimildir. Segir Þórólfur endurskoðendur hafa greitt háar fjárhæðir til að kom- ast hjá málsókn vegna uppáskriftar rangra ársreikninga. SJÁ SÍÐU 11 Endurskoðendur sniðgangi lögin erlamaria@frettabladid.is ANDLÁT Maður sem lést í Brúará á sunnudag var kanadískur ríkis- borgari. Hann fór út í ána til að bjarga syni sínum sem féll í hana. Drengurinn slapp án meiðsla en manninum varð fótaskortur og barst hann niður eftir ánni. Að sögn lögreglu barst maðurinn um 400 til 500 metra eftir ánni, sem er straumþung og mjög köld. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann hann. Lögregla vinnur áfram að rann- sókn málsins og þakkar viðbragðs- aðilum og öðrum vegfarendum sem aðstoðuðu í tengslum við slysið. n Maðurinn sem féll í Brúará er látinn Maðurinn var kanadískur ríkisborg- ari búsettur í Bandaríkjunum. gar@frettabladid.si BANDARÍKIN Mike Pence, vara- forseti Bandaríkjanna í forsetatíð Donalds Trump, segist vera með „Frelsis áætlun“ sem verði vegvísir fyrir leiðtoga íhaldsmanna sem vilji tengjast Bandaríkjamönnum sterkum böndum á þeim sviðum sem varði þeirra forgangsmál. Þetta kemur fram í ræðu sem CNN hafði aðgang að áður en Pence f lutti hana í Washington í gær. Pence stefnir að framboði til forseta Bandaríkjanna. n Mike Pence boðar frelsisáætlun sína Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna 2 Fréttir 26. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.