Fréttablaðið - 26.07.2022, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 26.07.2022, Blaðsíða 15
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS Fasteignablaðið 30. TBL. 26. JÚLÍ 2022 Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali. Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is Miklaborg og Jórunn, lög- giltur fasteignasali, kynna: Hléskógar 21 í Seljahverfi í Reykjavík. Húsið er um 280 fm fallegt einbýli á 1.016 fm endalóð. Það hefur ævintýralegan garð og var hannað af Jóni Björnssyni. Húsið er með forstofu, skála í suðaustur hluta og útiskála, upphitaða geymslu á lóð og upp- hitaðan garðskála. Aðkeyrslan er stórglæsileg, en þar er hlaðið handrið að garði og stórt og mikið stimplað plan og innkeyrsla sem skapa mikinn íburð þegar komið er að húsinu. Bílskúrinn er svo tvöfaldur. Aðkoman að húsinu er einnig sérlega glæsileg, en gosbrunnur og garðstyttur setja mikinn svip á umhverfið. Húsið stendur á endalóð og er því alveg út af fyrir sig, en þetta er einstök staðsetning innan hverfis. Húsið er steypt og hannað af Jóni Björnssyni arkitekt og byggt á þremur pöllum. Það var reist árið 1975 og stendur á stórri 1.016 fm lóð, þar sem hár gróður rammar húsið inn á lóðina. Húsið var klætt að utan árið 1993. Á fyrsta palli er inngangur sem var byggður við húsið síðar og er ekki inni í uppgefnum fer- metrum. Hann er rúmgóður og hefur glugga og góða fataskápa. Þegar komið er inn í holið tekur við mjög rúmgott svefnherbergi sem er skráð á teikningu sem tóm- stundaherbergi og inn af því er fataherbergi. Útgengt er úr svefn- herberginu út í garð. Baðherbergið er f lísalagt og með góðri sturtu og skáp undir handlaug með spegli fyrir ofan. Geymslan er stór og þvottahúsið hefur góða vinnuað- stöðu og innréttingu með glugga. Innangengt er inn í bílskúrana tvo, en þar er bæði rafmagn, hiti, heitt og kalt vatn og þráðlaus opnari fyrir hurðirnar. Á öðrum palli er stórt og bjart eldhús sem er innréttað með fallegri L-laga innréttingu með nýlegum tækjum og góðum borð- krók. Fyrir framan eldhúsið er mjög rúmgóð borðstofa. Þar er líka annað baðherbergi sem er mjög rúmgott og bjart og f lísalagt með vönduðum og glæsilegum flísum. Þar er góð snyrtiaðstaða og bæði baðkar og sturta. Þar er einnig innrétting undir handlaug á baðinu og spegill með lýsingu fyrir ofan. Þrjú svefnherbergi eru á þessum palli. Þau eru öll rúmgóð og björt, en þó sérstaklega hjóna- herbergið, sem hefur fataherbergi. Sjónvarpshol og stofa (garðstofa) sem er upphituð að fullu er mjög björt og rúmgóð með útgengt bæði út í garð, þar sem er heitur pottur, upphitaður garðskáli, pallur með borði og stólum og upphituð geymsla. Úr stofu er einnig útgengt út á svalir í n-vestri með útsýni yfir borgina. Á þriðja palli er stofa, þar er útgengt út á n-vestur svalir, með aukinni lofthæð að hluta. Stofan er sérstaklega björt og rúmgóð. Mögulegt er að opna á milli stofu og garðskála, ef áhugi er fyrir hendi. Í dag er gluggi með sandblásnu gleri þar sem létti veggurinn er. Garðurinn er eitt ævintýri út af fyrir sig, en Björn Jóhannsson landslagsarkitekt og Karl Valur Guðjónsson sáu um hönnun hans. Búið er að gera skála við suðausturhlið hússins, sem gert er ráð fyrir að verði opnaður inn í hjónaherbergið, en seljandi vill að þessi ákvörðun verði tekin af nýjum eiganda. Stór og mikill afgirtur pallur er stór partur af lóðinni fyrir utan trjágróður sem umlykur lóðina og skapar mikla sérstöðu. Á pallinum er heitur pottur, borð og stólar, garðskáli sem er upphitaður og tilbúinn með alla aðstöðu til að gleðjast saman. Síðan er geymsla sem er upphitað hús á palli og þar er einnig rafmagn. Um er að ræða fjölskylduvænt hús í notalegu umhverfi, þar sem nágrannasamvinna ríkir. Húsið hefur allt til alls til að stórfjöl- skylda geti notið sín og staðsetn- ingin er einstök innan hverfisins. Ekki hika við að panta skoðun. ■ Allar nánari upplýsingar gefur Jórunn Skúladóttir í síma 845- 8958 eða í gegnum tölvupóstinn jorunn@miklaborg.is. Stórt og fjölskylduvænt hús á einstökum stað Aðkoman að húsinu er glæsileg og gosbrunnurinn setur svip á umhverfið. Húsið er umlukið fallegum gróðri. Pallurinn er stór og mikill og afgirtur. Birting: Fimmtudagur 14.júlí 2022 Síðumúla 31 | 108 Reykjavík | 517 3500 | fyrirtækjasala.is __________________________________________________ Áhugaverð og fáanleg fyrirtæki sem hafa skilað góðri afkomu og arðsemi. • Netverslun með heimilisvörur og -tæki • Ferðaskrifstofa með VIP áherslu á USA • Vinsæl Pizzeria og veitingarstaður KEF • Efnissala, Vín- og bjórgerð • Verslun með lífstílsvörur í eigin húsnæði • Ferðaþjónusta – Siglingar og veiði • Hótel á Austfjörðum - Mjög öflugur rekstur • Varahlutaverslun - eigin innflutningur • Hársnyrtistofa - Góður rekstur og mikið um fastakúnna til fjölda ára. • Verktakafyrirtæki - Öflugt fyrirtæki í byggingu og viðhaldi fasteigna. ... svo er meira inná fyrirtækjasala.is ... eða bara hafa samband við okkur Óskar Mikaelsson lg. fasteigna og fyrirtsali s. 773-4700 Björgvin Óskarsson s. 773-4500 bjorgvin@atv.is Björgvin Óskarsson s. 773-4500 bjorgvin@atv.is Óskar Mikaelsson lg. fasteigna og fyrirtsali s. 773-4700 Áhugaverð og fáanleg fyrirtæki sem hafa skilað góðri afkomu og arðsemi. • Netverslun með heimilisvörur og -tæki • Ferðaskrifstofa með VIP áherslu á USA • Vinsæl Pizzeria og veitingarstaður KEF • Efnissala, Vín- og bjórgerð • Verslun með lífstílsvörur í eigin húsnæði • Ferðaþjónusta – Siglingar og veiði • Hótel á Austfjörðum - Mjög öflugur rekstur • Varahlutaverslun - eigin innflutningur • Hársnyrtistofa - Góður rekstur og mikið um fastakúnna til fjölda ára. • Verktakafyrirtæki - Öflugt fyrirtæki í byggingu og viðhaldi fasteigna. ... svo er meira inná fyrirtækjasala.is ... eða bar haf samband við okkur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.