Fréttablaðið - 26.07.2022, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
„Sumarið er tíminn,“ er sungið í
vinsælu dægurlagi. Þessa dagana
eru margir landsmenn á ferð
og f lugi og sumarleyfistíminn í
hámæli.
Sjálf er ég stödd norður í landi í
góðu yfirlæti hjá systur minni og
fjölskyldu hennar. Ég las nýlega
minningarorð um góða konu sem
lést því miður langt fyrir aldur
fram. Það sem stóð upp úr að mínu
mati voru minningar um ferðalög
og að hún hafi verið til staðar.
Ferðalag hverrar manneskju
er einstakt. Sumir ferðast um
Karíbahafið en aðrir verja stund
við næsta vatn. Það fyrra þarf
ekki endilega að skapa meiri
hamingju.
Hamingja er hugarfar. Hin 85
ára Nadine Stair kemst vel að
orði þegar hún skrifar um hvað
hún myndi gera ef hún gæti lifað
aftur. Hún nefnir meðal annars
að hún myndi vilja gera f leiri
mistök, slaka á, vera kjánalegri
og taka færri hluti alvarlega.
Sömuleiðis klífa f leiri fjöll, synda
yfir f leiri f ljót og ganga um ber-
fætt. Nadine fjallar um að eiga
f leiri andartök.
Lífið líður áfram frá andartaki
til andartaks. Það sem við skiljum
eftir okkur er hvernig þessum
andartökum var varið og hvar
við vorum þegar þau liðu áfram.
Vorum við til staðar í andar-
takinu með fólkinu okkar eða
með hugann fastan í fortíð eða
framtíð?
Lífið gerist í andartakinu. Þar
verða minningar til og við náum
djúpum tengslum við hvert
annað. Minningarnar í andar-
takinu verða svo eins og gim-
steinar sem við skiljum eftir við
veginn. Nýtum sumarfríið til að
hlaða batteríin, vera til staðar í
andartakinu og safna gimsteinum
í formi minninga. n
Sumarfrí
Kristbjargar
Þórisdóttur
n Bakþankar
FRÍTT
ALLAN HRINGINN
KAFFI
G E R I Ð G Æ Ð A - O G V E R Ð S A M A N B U R Ð
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUR OG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVAL AF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
ENGJATEIGI 17-19,
REYKJAVÍK
S:581 2233
BALDURSNESI 6,
AKUREYRI
S: 461 1150
OPIÐ:
VIRKA DAGA.......KL. 10:00 -18:00
LAUGARDAGA....KL. 12:00 - 16:00
UMBOÐSAÐILAR:
HÚSGAGNAVAL, HÖFN Í HF.
BARA SNILLD, EGILSSTAÐIR
Svefn heilsa&
VERSLANIR: