Fréttablaðið - 26.07.2022, Qupperneq 6
Stofnendur íslenska smáfor-
ritsins Lilja app voru meðal
fyrirlesara á Evrópska kven-
leiðtogaskólanum sem fram
fór í Prag í síðustu viku.
Stofnandi skólans fullyrti við
þetta tilefni að fyrirlestur
íslenska hópsins hefði verið sá
mikilvægasti á viðburðinum.
ninarichter@frettabladid.is
NÝSKÖPUN Smáforritið Lilja app
varð í þriðja sæti í nýsköpunar-
keppninni Gullegginu í byrjun
febrúar. Forritið sigraði síðan í
Womens Innovators-hraðlinum
sem fór fram í maí, á vegum Women
Tech Iceland og Huawei.
„Við vorum í kjölfarið boðnar út
til Prag og beðnar að halda erindi,“
segir Inga Henriksen, annar stofn-
enda og eigenda forritsins.
Inga og Árdís R. Einarsdóttir,
eigendur Lilja app, þekkja heimil-
isof beldi af eigin raun. Þær f luttu
áhrifamikla tölu á tilf inninga-
þrunginni stund í Martinický-höll-
inni í Prag á föstudag, og uppskáru
gríðarleg viðbrögð. Stofnandi
sumarskólans sagði fyrirlesturinn
vera mikilvægasta erindið sem flutt
hefði verið alla vikuna.
„Appið er hugsað sem forvörn
gegn kynferðisbrotum. Því er ætlað
að gefa vissan fælingarmátt og létta
á sönnunarbyrði í þeim málum,
ásamt því að vera fyrir þolendur
heimilisof beldis. Ekkert sambæri-
legt er til í heiminum í dag.“
Inga segir grunninn að smáfor-
ritinu vera fyrirtækjalausnina sem
við komi viðkvæmum málum innan
fyrirtækja. „Fyrirtækjalausnin á að
gera appinu kleift að vera öllum að
kostnaðarlausu.“
Inga segir að í gærmorgun hafi
farið fram fundur hjá tékkneskum
tæknirisa sem hyggst innleiða smá-
forritið og þróa það að fullu. „Svip-
aðan áhuga er að finna víðs vegar
að, svo að það verður spennandi
að fylgjast með framhaldinu,“ segir
Inga.
Evrópski kvenleiðtogaskólinn, á
ensku Summer School for Female
Leadership in the Digital Age, var
haldinn í þriðja sinn frá stofnun
og er fjármagnaður af Evrópska
þjálfunarsjóðnum, ETF og kín-
verska tæknirisanum Huawei. Þar
fá 29 ungar konur á aldrinum 18 til
20 ára, ein frá hverju aðildarlandi
Evrópusambandsins auk þátt-
takanda frá Úkraínu og annars frá
Vestur-Balkanlandi, tækifæri til að
sitja námskeið hjá leiðtogum á sviði
alþjóðasamskipta, netöryggismála,
stjórnmála og viðskipta.
Stofnandi og stjórnandi sumar-
skólans er Berta Herrero, forseti
jafnréttis- og fjölbreytileikanefndar
Evrópudeildar Huawei. Áður gegndi
Berta stöðu yfirmanns almanna-
tengsla hjá Huawei í Evrópu. Hún
hefur auk þess gegnt stöðu aðstoð-
armanns varaforseta Evrópuþings-
ins. Berta starfaði um árabil sem
blaðamaður hjá El Mundo í Madrid.
Varðandi tildrög Leiðtogaskól-
ans segir Berta að á menntaskóla-
árunum hafi hana skort almenni-
lega yfirsýn yfir þá möguleika sem
henni stóðu til boða, og viðhorf til
kvennastarfa hafi spilað þar hlut-
verk.
„Ég hafði ekki endilega yfirsýn
yfir alla þá möguleika sem konur
hafa aðgang að. Að einhver eins
og ég gæti orðið verkfræðingur,
stjórnandi á sviði netöryggismála
eða hvað sem er. Viðhorfið var ekki
innstillt á það,“ segir hún.
„Það sem við reynum að gera hér
í leiðtogaskólanum og ég reyni að
gera persónulega í mínu starfi er
að veita ungum konum yfirsýn yfir
þann mikla fjölbreytileika í námi
og atvinnu sem þeim stendur til
boða. Þetta er ekkert endilega alltaf
spurning um peninga,“ segir hún.
„Nemendur í leiðtogaskólanum
sýna að allt er hægt. Við höfum
frá upphafi fengið meira en 6.000
umsóknir. Áhuginn er þarna og
metnaðurinn er þarna. Við þurfum
að jafna tækifærin og þangað til
það tekst er þörf á prógrammi á
borð við þetta.“
Í leiðtogaskólanum er sterkur
fókus á geðheilsu og f jögurra
manna teymi sinnir þátttakendum
eftir þörfum. Meðal fyrirlesara í
Prag voru meðlimir Evrópuráðs og
Evrópuþingsins, fulltrúar nýsköp-
unarráðs Evrópu og stafrænir leið-
togar hjá fremstu fjölmiðlasam-
steypum heims. Þá voru fulltrúar
netöryggisstofnana og Geimferða-
stofnunar Evrópu á mælendaskrá.
Ljóst er að rík þörf er á lausnum
í þessum málaflokki og tölfræðin
talar sínu máli.
Samkvæmt gögnum frá WHO frá
árinu 2013 eru 18 konur myrtar á
dag í Evrópu og þar af eru 12 þeirra
morða framin af einstaklingi sem
er nátengdur fórnarlambinu. Það
gera 6.570 morð á ári í Evrópu. Sé
horft utan álfunnar eru tölurnar
miklu hærri, eða 52.560 konur á ári.
Þá verða 150 milljónir stúlkna fyrir
nauðgun eða kynferðisof beldi á
hverju ári. ■
Sveitarfélagið Horna-
fjörður viðurkennir
ekki að framkvæmd
þess hafi verið í trássi
við jafnræðisreglu.
Bæjarráð Hornafjarðar
Við þurfum að jafna
tækifærin og þangað til
það tekst er þörf á
prógrammi á borð við
þetta.
Berta Herrero,
stofnandi
Evrópska kven
leiðtogaskólans
ser@frettabladid.is
FASTEIGNIR Fermetraverð á litlum
íbúðum á höfuðborgarsvæðinu
braut 800 þúsund króna markið
í síðasta mánuði í fyrsta skipti og
stendur það nú í rúmlega 819 þús-
undum króna. Hér er um íbúðir að
ræða sem eru undir 80 fermetrum
að stærð.
Samkvæmt því sem fram kemur í
nýrri samantekt viðskiptagreining-
ar Deloitte á þróun húsnæðisverðs
á milli maí og júní í ár er íbúða-
markaðurinn svo sannarlega ekki
að hægja á sér.
Þar kemur fram að að meðaltali
hefur orðið 7,5 prósenta hækkun á
íbúðarverði á höfuðborgarsvæðinu
á milli maí og júní, en meðalverð
seldra íbúða er þar nú 70 milljónir
króna.
„Maður hefði haldið að það væri
að hægjast á spennunni á húsnæðis-
markaði, en svo er alls ekki,“ segir
Ýmir Örn Finnbogason, yfirmaður
viðskiptagreiningar hjá Deloitte,
„og sérstaka athygli vekur hvað
litlu íbúðirnar eru að seljast við háu
verði. Maður sárvorkennir unga
fólkinu fyrir vikið,“ segir Ýmir Örn.
Þá er mikil fjölgun í sölu stærri
íbúða á höfuðborgarsvæðinu, sem
eru yfir 120 fermetrum, en í júní síð-
astliðnum seldust ríflega 30 prósent
fleiri íbúðir í þeim stærðarflokki en
í maí.
Ýmir Örn segir alla vísa í þessum
efnum benda í sömu átt. „Kaup-
samningum er að fjölga, en 4 prósent
f leiri samningar voru gerðir í júní
en í maí í vor,“ segir hann og metur
það svo að vaxtahækkanir Seðla-
bankans séu greinilega ekki að bíta,
að minnsta kosti ekki enn um sinn.
„Þetta er orðinn mjög erfiður
markaður fyrir fyrstu kaupendur
með hækkun vaxta og litlu framboði
sem ýtir verðinu svona mikið upp,“
bendir Ýmir Örn á og segir ástandið
sjást best á því hvað verðhækkanir
hafi verið miklar frá því á síðasta ári.
„Tólf mánaða hækkun íbúðaverðs
á höfuðborgarsvæðinu mælist nú 27
prósent,“ segir Ýmir Örn Finnboga-
son hjá Deliotte. ■
Fermetraverð á litlum íbúðum í
borginni hefur aldrei verið hærra
Ýmir Örn
Finnbogason,
yfirmaður við
skiptagreiningar
hjá Deloitte
Samkvæmt samantekt viðskiptagreiningar Deloitte á þróun húsnæðisverðs á
milli maí og júní í ár er íbúðamarkaðurinn svo sannarlega ekki að hægja á sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Íslenskt app fyrir þolendur
ofbeldis slær í gegn í Prag
Frá Martinickýhöllinni í Prag þar sem leiðtogaskólinn fór fram. FRÉTTABLAÐIÐ/NÍNA RICHTER
Inga Henriksen og Árdís R. Einarsdóttir, stofnendur smáforritsins Lilju.
MYND/SKJÁSKOT
gar@frettabladid.is
SVEITARSTJÓRNIR Hornfirðingar
segjast ekki ætla að una úrskurði
innviðaráðuneytisins um að sveit-
arfélagið hafi ekki farið að lögum
þegar lóðarhöfum einum við Haga-
leiru var synjað um að fá gatna-
gerðargjöld felld niður.
„Sveitarfélagið fékk ekki upplýs-
ingar um að kæra væri til umfjöll-
unar í ráðuneytinu og fékk ekki
tækifæri til að koma sínum sjónar-
miðum á framfæri,“ segir um málið í
fundargerð bæjarráðs Hornafjarðar.
Ráðuneytið hafi í tvígang synjað
sveitarfélaginu um endurupptöku
málsins.
„Engar skýringar eða leiðir eru til
að rekja það að kæra lá fyrir í ráðu-
neytinu þar sem of langur tími var
liðinn til að rekja tölvupósta,“ segir
bæjarráðið. Eftir ítarlega skoðun og
samráð við lögfræðing og Samband
íslenskra sveitarfélaga ætli bæjarráð
ekki að una úrskurði ráðuneytisins.
Því verði lóðarhöfunum synjað um
endurgreiðslu gatnagerðargjalda
eins og áður hafi verið ákveðið.
Upphæðin sem um er að tefla mun
nema tæpum þremur milljónum
króna.
„Sveitarfélagið Hornaf jörður
viðurkennir ekki að framkvæmd
þess hafi verið í trássi við jafnræðis-
reglu, enda séu sterk rök fyrir því að
svo sé ekki,“ segir bæjarráðið. Ekki
hafi verið um mismunun að ræða
því þeir sem fengu frest á fram-
kvæmdum hafa ekki verið að sækja
um lóð eftir að reglur um tímabund-
inn afslátt af gatnagerðargjöldum
runnu út. Úrskurður ráðuneytisins
sé ekki bindandi fyrir sveitarfélagið,
sem að auki telji að málsmeðferðin
hafi verið haldin slíkum ágöllum
að niðurstöðunni verði ekki unað.
Sveitarfélagið eigi ríka hagsmuni í
málinu. ■
Hornfirðingar endurgreiða ekki gjöld
þrátt fyrir úrskurð innviðaráðuneytis
Kæra var ekki
borin undir
sveitarfélagið
Hornafjörð,
segir bæjarráð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
PJETUR
6 Fréttir 26. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ