Fréttablaðið - 26.07.2022, Side 8
Svo mikið er af blaðlús í þurru
og sólríku veðri í Flatey á
Breiðafirði að sykurríkur
skíturinn úr þeim sest í fiður
fuglsins á staðnum, en það
virðist vera sárasjaldgæft
fyrirbæri í heiminum.
ser@frettabladid.is
LÍFRÍKI Óvenjumargir fuglar í Flat-
ey á Breiðafirði hafa fundist þaktir
hunangsdögg í sumar, ýmist í öllu
fiðrinu eða að hluta, en félagarnir
Sverrir Thorsteinsson og Ævar
Petersen, sem báðir hafa stundað
merkingar og rannsóknir á fuglum
um áratugaskeið, rita grein um
þetta fyrirbrigði í nýjasta hefti Nátt-
úrufræðingsins sem var að koma út.
„Ég er búinn að koma hingað út í
Flatey til að skoða fuglalífið í hálfa
öld,“ segir Ævar, „og Sverrir líklega
í um fjörutíu ár, svo við þekkjum
ágætlega til lífríkisins hér um
slóðir,“ bætir hann við og kveður þá
vera að pakka saman í sumar eftir
tíu daga úthald.
„Við höfum tekið eftir því að
þetta gerist einkanlega í óvanalega
þurrum sumrum, svo sem í ár, en
langvarandi þurrkatíð var í Flatey
upp úr miðjum júní með sólskini,
miklum hlýindum og stilltu veðri,“
útskýrir Ævar, sem er löngu orðinn
hokinn af fuglafræðum sínum, en
ríflega fjörutíu ár eru frá því hann
lauk doktorsprófi í greininni frá
Oxford á Englandi.
Hann segir hunangsdöggina vera
úrgang sem komi frá blaðlúsum,
en býsnin öll sé að finna af þeim í
mýrlendinu í Flatey þar sem mikið
fuglalíf er fyrir. „Þetta er skíturinn
úr lúsinni – og hann er alveg ein-
staklega sykurríkur, svo hann
hreinlega límist á fuglana allt um
kring,“ bætir fuglafræðingurinn
við sem sjálfur hefur óhreinkast af
þessu klístri við endurteknar rann-
sóknir sínar á fuglum í Flatey og
hreiðrum þeirra.
„Þetta sest misjafnlega á fuglana,“
heldur Ævar áfram, „en við höfum
haft sérstakar áhyggjur af þeim
fuglum sem hafa verið alþaktir
hunangsdögginni,“ bætir hann við
og nefnir til sögunnar hrossagauk
einn sem þeir fundu illa leikinn af
þessu klístri sumarið 2010.
„Við fundum hann á hreiðri og
bæði hann og hreiðrið var útatað
klístri. Fyrir vikið töldum við nokk-
uð víst að fuglinn myndi drepast
svona á sig kominn, en okkur til
mikillar undrunar fannst hann árið
eftir á hreiðri og sömuleiðis sumarið
þar á eftir,“ segir Ævar, en þar af leið-
andi hafi verið ljóst að fuglinn hafi
náð að losa sig við klístrið og lifað
ósköpin af.
Þeir hafi þó fundið nokkra dauða
fugla, alþakta hunangsdögg, en ekki
megi þó slá því föstu að þeir hafi
drepist af klístrinu. Raunar vanti
frekari rannsóknir á þessu fyrir-
150 þúsund börn
kanadískra frumbyggja
sættu grófri misnotkun
og ofbeldi.
Þetta er skíturinn úr
lúsinni – og hann er
alveg einstaklega
sykurríkur, svo hann
hreinlega límist á
fuglana allt um kring.
Ævar Petersen,
fuglafræðingur
Hunangsdögg úr blaðlúsum þekur
fiður fuglanna í Flatey á Breiðafirði
Flatey á Breiðafirði. Ævar Petersen hefur rannsakað fuglalífið þar í hálfa öld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Fullorðinn
hrossagaukur í
Flatey á Breiða-
firði, allur
klístraður af
hunangsdögg.
MYND/
KANE BRIDES
Séð ofan á fullorðinn hrossagauk
sem var tekinn á hreiðri í Flatey, allur
klístraður af skítnum úr blaðlúsum.
Fimmtíu tegundir
til af blaðlúsum
Blaðlýs eru smávaxin skordýr,
nokkrir millimetrar á lengd
eða minni. Algengustu litir
þeirra eru grænn, rauður og
brúnn. Lífsferill blaðlúsa
er nokkuð breytilegur eftir
þeim fimmtíu tegundum sem
fundist hafa af þeim hér á
landi. Einfalt fyrirkomulag
er þannig að vængjalaus
kvendýr klekjast úr eggjum
að vori. Þau eiga síðan af-
kvæmi án frjóvgunar yfir
sumarið með svokallaðri
meyfæðingu, en síðan verpa
kvendýrin eggjum sem liggja í
dvala næsta vetur fram á vor.
brigði, en við leit Ævars og Sverris
að erlendum heimildum um það
fundu þeir aðeins eina litla grein
sem greindi frá spörfuglum í Þýska-
landi sem voru klístraðir á baki og
vængjum af völdum lúsaskítsins.
„En miðað við hve lítið hefur
verið skrifað um klístur á fuglum af
völdum þessa úrgangs úr blaðlúsum
virðist það sárasjaldgæft fyrirbrigði
í heiminum,“ segir fuglafræðingur-
inn kunni, sem lætur ekki deigan
síga í rannsóknum sínum þótt ára-
tugur sé liðinn frá því hann fór á
eftirlaun. Áhuginn á faginu sé frá-
leitt að fjara út.
„Ég nenni ekki að sitja á stól og
bora í nefið, maður minn,“ segir
Ævar Petersen að lokum og býst til
brottfarar úr Flatey þar sem hann
hefur verið, svo sem fyrr segir, á
hverju sumri í hálfa öld. n
gar@frettabladid.is
RÚSSLAND Gasstreymi um Nord
Stream-gasleiðsluna frá Rússlandi
til Þýskalands verður minnkað
verulega frá og með morgundeg-
inum. Segir Bloomberg-fréttaveitan
að aðeins verði veitt 33 milljón rúm-
metrum af gasi um leiðsluna, sem er
aðeins helmingur þess sem fer um
hana í dag og einungis fimmtungur
hámarks afkastagetu leiðslunnar.
Rússar skýra skerðinguna með
því að slökkva þurfi á búnaði af
tæknilegum ástæðum. Verð á gasi
hækkaði um tíu prósent í Evrópu í
gær í kjölfar þessara tíðinda. n
Rússar skrúfa
niður í gasinu
Hluti Nordstream-gasleiðslunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
olafur@frettabladid.is
ÞÝSKALAND Væntingar stjórnenda
þýskra fyrirtækja til efnahags-
ástands eru neikvæðari nú en þær
hafa verið undanfarin tvö ár. Margt
bendir til að stærsta hagkerfi í Evr-
ópu sé á barmi efnahagslægðar.
Væntingarvísitala Ifo-stofnunar-
innar féll úr 92,2 í 88,6 milli mán-
aða, mun meira en hagfræðingar
höfðu búist við.
Þýskaland hefur orðið harkalega
fyrir barðinu á verðhækkunum
á olíu og gasi sem stafa af innrás
Rússlands í Úkraínu og afleiðingum
þvingunaraðgerða Vesturlanda
gegn Rússum í kjölfarið.
Á föstudag verða birtar tölur um
landsframleiðslu á öðrum ársfjórð-
ungi og í könnun Reuters meðal
hagfræðinga segir að þeir búist við
að vöxturinn mælist aðeins 0,1 pró-
sent á fjórðungnum. Á fyrsta árs-
fjórðungi óx landsframleiðsla um
0,2 prósent eftir 0,3 prósenta sam-
drátt á fjórða ársfjórðungi í fyrra.
Að sögn Clemens Fuest, forstjóra
Ifo, er mikil svartsýni nú ríkjandi
meðal stjórnenda þýskra iðn-
fyrirtækja og einnig er svartsýni
orðin ráðandi meðal stjórnenda
þjónustufyrirtækja, ekki síst smá-
sölunnar, og meðal byggingarfyrir-
tækja. Útlitið sé ekki einu sinni bjart
í ferða- og hótelgeiranum. „Allir
geirar atvinnulífsins eru svartsýnir.“
Útlitið er lítið betra í Frakklandi
og því virðist sem tvö stærstu hag-
kerfi álfunnar stefni nú hraðbyri í
efnahagslægð. Þetta gæti gerst síðar
á þessu ári eða um áramót, en það er
skilgreint sem efnahagslægð þegar
efnahagssamdráttur er tvo ársfjórð-
unga í röð. n
Þýskaland rambar nú á barmi efnahagslægðar
Flest bendir nú til þess að Þýskaland
stefni í efnahagslægð í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Frans páfi hitti leiðtoga frumbyggja.
erlamaria@frettabladid.is
KANADA „Ég bið auðmjúklega um
fyrirgefningu fyrir illskuna sem
fjöldi kristinna beitti frumbyggja,“
sagði Frans páfi í ræðu í gær.
Páfinn er í Kanada og hitti í gær
kanadíska stjórnmálamenn og leið-
toga frumbyggja.
Talið er að yfir 150 þúsund börn
frumbyggja hafi sætt grófri líkam-
legri misnotkun og líkamlegu og
andlegu of beldi af hendi meðlima
kaþólsku kirkjunnar á árunum 1831
til 1996. Þetta er í fyrsta skipti sem
kaþólska kirkjan biðst formlega
afsökunar vegna málsins.
Á síðast ári fundust líkamsleifar
215 barna við einn af fjölmörgum
heimavistarskólum fyrir börn af
frumbyggjaættum.
Samkvæmt The New York Times
voru börnin tekin með valdi frá fjöl-
skyldum sínum og send í slíka skóla,
þar sem þeim voru innrætt vestræn
gildi í gegnum trúarbrögð. Bæði
líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
átti sér stað í heimavistarskólunum,
auk þess sem börnunum var gert að
afneita menningu sinni og tungu-
máli.
Síðustu ár hafa frumbyggjar í
Kanada fengið afsökunarbeiðni frá
öðrum kristnum trúfélögum, en
algjör þögn hafði ríkt þegar kom að
kaþólsku kirkjunni. Þar til nú.
Frans páfi sagði að það að biðjast
fyrirgefningar væri þó ekki mála-
lyktir. Hann kallar eftir rannsókn á
skólunum og fleiri úrræðum til að
hjálpa nemendum sem enn eru á lífi
og afkomendum þeirra. n
Bað frumbyggja
afsökunar vegna
ofbeldis kristinna
8 Fréttir 26. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ