Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 38. tbl. 22. árg. 15. september 2021 - kr. 950 í lausasölu
Fjármála- og tryggingaráðgjöf
á einum stað í útibúum Arion banka
Þú getur hitt ráðgjafa frá Verði í
útibúum Arion banka á Höfða,
Smáratorgi, Selfossi og í Borgarnesi.
Pantaðu fund í útibúi eða fjarfund
á arionbanki.is.
arionbanki.is
Ný og öflug
vefverslun
ALLA LEIÐ
Hleypum lífi í
sjávarbyggðirnar!
Eyjólfur Ármannsson
Oddviti í Norðvesturkjördæmi
Kosið verður til Alþingis Íslend-
inga laugardaginn 25. september.
Yfirkjörstjórn Norðvesturkjör-
dæmis mun á kjördag hafa aðsetur
á Hótel Borgarnesi. Þar mun jafn-
framt fara fram talning atkvæða úr
kjördæminu. Formaður yfirkjör-
stjórnar er Ingi Tryggvason lög-
fræðingur. Ingi segir í samtali við
Skessuhorn búast við að fyrstu töl-
ur úr NV kjördæmi gætu verið birt-
ar um ellefuleytið um kvöldið. Aka
þarf með atkvæði um langan veg,
allt frá Ísafirði og Sauðárkróki, og
því segir hann ekki hægt að búast
við að talningu atkvæða ljúki fyrr
en í fyrsta lagi um fjögurleytið um
nóttina, ef allt gengur að óskum.
Þá segir hann fleiri þætti spila inn í
hvenær talningu geti lokið, svo sem
færð og veður að kvöldi kjördags en
sömuleiðis fjölda utankjörfundar
atkvæða. Hátt hlutfall þeirra hægir
verulega á talningu atkvæða.
Hjá sýslumanninum á höfuð-
borgasvæðinu voru óvenjumargir
búnir að kjósa utan kjörfundar í síð-
ustu viku og má búast við að sama
eigi við í öðrum kjördæmum. Ingi
segir að vel hafi gengið að manna
hóp talningarfólks, en um 25 manns
taka þátt í henni, að stærstum hluta
vant talningarfólk frá kosningum
undanfarinna ára. mm
Atkvæði verða talin
á Hótel Borgarnesi
Nemendur í öðrum bekk Grunnskóla Grundarfjarðar nýttu morgun síðastliðins fimmtudags til að tengjast náttúrunni. Það gerðu þau með því að fara út á táslunum og
finna blautt grasið undir iljunum. Einhverjum fannst þetta svolítið kalt og fengu far á baki kennarans en flest höfðu þau gaman að þessu. Haldið hefur verið upp á Dag
íslenskrar náttúru þennan dag frá árinu 2010 en þá var ákveðið að tileinka íslenskri náttúru sérstakan heiðursdag til að undirstrika mikilvægi hennar. 16. september
varð fyrir valinu þar sem hann er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar sem hefur verið ötull baráttumaður náttúruverndar í gegnum tíðina. Ljósm. tfk
Rigningu
og roki spáð á
kjördag
Veðrið getur spilað stóran þátt í
kjörsókn og nú þegar haustlægðirn-
ar ganga yfir hver af annarri er gott
að fylgjast vel með veðurspám áður
en haldið er út. Að sögn Haraldar
Eiríkssonar, veðurfræðings á Veð-
urstofu Íslands, ætti veðrið ekki að
stoppa neinn í að mæta á kjörstað
á laugardaginn. Þess ber að geta að
enn eru nokkrir dagar í kjördag og
skjótt geta veður skipast í lofti, eins
og við Íslendingar þekkjum mæta-
vel. Samkvæmt spá fyrir laugar-
daginn má búast við allhvassri eða
hvassri austanátt 10-18 m/s um allt
land. Rigning og jafnvel slydda á
heiðum á norðanverðu landinu.
Íbúar á Vesturlandi ættu kannski
að annað hvort vakna snemma og
halda á kjörstað eða einfaldlega
gefa sér nægan tíma til að ákveða
hvað skuli kjósa því versta veðrið
verður yfir miðjan daginn. arg