Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 2
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 20212
Kosningar fara fram á laugardag-
inn og þá kemur í ljós hvað þjóð-
in kýs yfir sig næstu fjögur árin.
Frambjóðendur um allt land hafa
lofað öllu fögru í undanfara kosn-
inganna eins og oft áður og fróð-
legt verður að fylgjast með næstu
árin hvort eitthvað af þeim lof-
orðum verða efnd. Bubbi Mort-
hens segir í samnefndu lagi: „Brot-
in loforð alls staðar, brotin hjörtu
á dimmum bar, brotnar sálir biðja
um far, burt, burt, heim.“ Því er
bara það eina í stöðunni sem við
getum gert að vona að enginn
hafi lofað of miklu upp í ermina á
sér fyrir þessar kosningar.
Á fimmtudag snýst í austan 5-13
með rigningu en þurrt á N- og A-
landi þangað til síðdegis. Hiti 2 til 8
stig. Á föstudag má búast við aust-
lægri eða breytilegri átt 3-8, skýjað
og lítilsháttar væta í flestum lands-
hlutum. Hiti 2 til 9 stig, kaldast NA-
lands. Á laugardag er gert ráð fyr-
ir austan 10-18 og rigningu en
slyddu á heiðum norðantil á land-
inu. Hiti breytist lítið. Á sunnudag
er reiknað með suðaustanátt og
rigningu en úrkomulítið NA-lands.
Hiti 7 til 13 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Ertu búin/n að taka
ákvörðun um hvað þú kýst 25.
september?“ 52% svarenda sögðu
„Já, harðákveðin/n“ 42% svarenda
sögðu: „Nei, ég er enn í vafa“ 5%
sögðu „Ætla ekki að kjósa“ og 1%
sagði “Hef ekki aldur til að kjósa.“
Í næstu viku er spurt:
Hvað í veðrinu pirrar þig mest?
Sveinn Ragnarsson verkfræðing-
ur keypti nýlega jörðina Stafholts-
veggi II í Borgarfirði. Hann stend-
ur í stórræðum þessa dagana því
hann er að breyta útihúsum. Hús
þessi eiga magnaða sögu, en þau
gegndu áður hlutverki svínahúss,
hesthúss, hænsnahúss og fjárhúss,
en verða nú gistihús. Sveinn er
Vestlendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Áfram fækkar í
hópi smitaðra
VESTURLAND: Samkvæmt
samantekt Lögreglunnar á
Vesturlandi síðastliðinn föstu-
dag hefur verulega fækkað í
hópi smitaðra með Covid-19 í
landshlutanum. Einungis tveir
íbúar á Akranesi voru í einangr-
un. Þar voru átta í sóttkví og
einn að auki í Borgarnesi. Að
öðru leyti var Vesturland veiru-
frítt síðastliðinn föstudag. -mm
Þjóðbraut lokuð
fram í október
AKRANES: Veitur hafa til-
kynnt að lokun Þjóðbraut-
ar á Akranesi mun vara lengur
en áætlað hafði verið. „Nú er
ljóst að lokun mun standa fram
í október,“ segir í tilkynningu.
-mm
Best að hlaða
hlaupahjólin
utandyra
LANDIÐ: Veruleg hætta get-
ur stafað af raftækjum sem eru
í hleðslu inni á heimilum fólks.
Síðastliðinn föstudag kom upp
eldur í íbúð í Reykjavík þar sem
talið er að orsök brunans hafi
verið rafhlaupahjól sem verið
var að hlaða. Í viðtali við Vísi
vildi Jón Viðar matthíasson,
slökkviliðsstjóri á höfuðborg-
arsvæðinu, vara fólk við því að
hlaða slík farartæki inni í íbúð-
um sínum. „Fólk þarf að fara
varlega og hlaða þessi tæki þar
sem er eins öruggt og hægt er.
menn þurfa að vera mjög passa-
samir að þessi tæki liggi ekki
utan í einhverju öðru, og það
séu ekki settar flíkur yfir við-
komandi grip,“ sagði Jón Viðar
í samtali við vísi.is -mm
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
LAGERSALA
HEFST FIMMTUDAGINN 23. september kl. 13:00
Að Kalmansvöllum 1.
70% AFSLÁTTUR OG MEIRA AF ÖLLUM FATNAÐI.
ATH: Gjafakort og inneignir gilda ekki á lagersölu.
OPIÐ
FIMMTUDAGINN 23. september kl. 13:00-18:00
FÖSTUDAGINN 24. september kl. 13:00-18:00
LAUGARDAGINN 25. september kl. 11:00-15:00
Aðalfundur var haldinn í Bátafé-
laginu Ægi í Stykkishólmi síðast-
liðinn sunnudag. Í skýrslu stjórnar
Bátafélagið Ægir sendir frá sér ályktanir
Fjalla þær um strandveiðar, grásleppuveiðar og
andúð við hugmyndir um Þjóðgarð í Breiðafirði
var farið yfir þá vinnu sem innt hef-
ur verið af hendi við að gæta hags-
muna félagsmanna. Hefur megin-
þungi í starfsemi félagsins snúið að
þremur málum frá síðasta fundi. Í
fyrsta lagi að styðja við og bæta fyr-
irkomulag strandveiða, í öðru lagi
að tala fyrir breyttu fyrirkomu-
lagi grásleppuveiða og í þriðja lagi
að fylgjast með hugmyndum um
friðlýsingu fjarðarins og tillögum
í þeim efnum, sem Breiðafjarðar-
nefnd vinnur að, og gæta hagsmuna
félagsmanna gagnvart þeim áform-
um. Samþykkti fundurinn þrjár
ályktanir sem snúa að þessum meg-
inverkefnum félagsins.
Í máli formanns kom fram að
margt hefur áunnist frá síðasta
fundi í framangreindum hagsmuna-
málum og ljóst að rödd félags-
ins er sterk og að hún skiptir máli.
Þá hefur síðasta ár fyrst og fremst
sýnt svart á hvítu hversu mikil-
vægt það er að Bátafélagið Ægir sé
virkt í starfsemi sinni og gæti hags-
muna félagsmanna gagnvart ágjöf
stjórnkerfisins. „Það hefur sjaldan
ef einhvern tímann verið jafn mik-
ilvægt og nú að standa í lappirnar
gagnvart stjórnvöldum sem virðast
vera á vegferð friðlýsingar sem allt
bendir til, komi ekki til kröftugra
athugasemda og staðið verði vörð
um þá sjálfbæru atvinnustarfsemi
sem stunduð er á Breiðafirði, sér
í lagi hvað grásleppu varðar, að sú
vegferð muni koma til með að tak-
marka aðgengi sjómanna að auð-
lindinni með tilheyrandi tjóni fyr-
ir útgerðir, vinnslur og samfélögin
í kringum fjörðinn, þrátt fyrir að
það liggi nú þegar fyrir að veiðar
og önnur nýting er nú þegar sjálf-
bær, enda er tilgangur núgildandi
fiskveiðistjórnunarkerfis að tryggja
sjálfbærar fiskveiðar og því ljóst að
ekki sé þörf á öðrum aðgerðum eða
takmörkunum en þeim sem gerðar
eru á þeim grunni.“
Í máli formanns kom jafnframt
fram að grásleppusjómenn í Stykk-
ishólmi hafi gríðarlegar áhyggjur
af stöðu mála sem er óásættanlegt
fyrir útgerðir við Breiðafjörð. Nú
liggur fyrir að tvær síðustu grá-
sleppuvertíðir hafa ekki allir sjó-
menn setið við sama borð og mikið
tjón hefur orðið í Stykkishólmi fyr-
ir útgerðir, vinnslur og samfélagið
vegna þess að breytingar hafa ekki
verið gerðar á fyrirkomulagi grá-
sleppuveiða. Fram kom að löngu er
orðið ljóst að gera þarf breytingar
á fyrirkomulagi grásleppuveiða og
setja grásleppu í aflamark.
Eftir ávarp formanns sköpuðust
líflegar umræður á fundinum um
skýrslu formanns og þau efnisatriði
sem formaður gerði grein fyrir og
snúa að hagsmunum félagsmanna.
„Ljóst er að félagsmenn hafa miklar
áhyggjur af fyrirhugaðum áformum
um friðlýsingu á firðinum og voru
fundarmenn sammála um að nú-
verandi fyrirkomulag grásleppu-
veiða er óásættanlegt og setja þurfi
grásleppu í aflamark með einhverj-
um hætti,“ segir í fundargerð.
Samþykktu ályktanir
Fyrir fundinn voru lagðar fram þrjár
tillögur að ályktunum til umræðu
og atkvæðagreiðslu. gerði formað-
ur stjórnar grein fyrir þeim og gaf
því næst orðið laust. málefnalegar
umræður sköpuðust um fyrirliggj-
andi ályktanir og tók fundurinn
heilshugar undir þær efnislega og
fól stjórn að lagfæra einstaka orða-
lag í samræmi við umræður á fund-
inum og senda til viðeigandi aðila.
Eftirfarandi ályktanir voru að end-
ingu samþykktar:
Strandveiðar:
Tryggt verði að aflaheimildir dugi
fyrir 48 dögum, fjórum dögum í
viku í fjóra mánuði. Og hvatt verði
til að byggðakvóti verði endurskoð-
aður og notaður fyrir strandveið-
ar. Einnig þarf að auka eignarhald
þeirra sem róa bátunum upp í 50%.
Eignarhaldið þarf að vera þinglýst.
Grásleppuveiðar:
Tvær síðustu grásleppuvertíðir hafa
ekki allir grásleppusjómenn setið
við sama borð. grásleppusjómenn
í Stykkishólmi eru meðal þeirra
sem hafa orðið fyrir mestri skerð-
ingu. Félagið fer fram á það að
grásleppu sjómenn við Breiðafjörð
muni sitja við sama borð og aðrir
grásleppusjómenn á landinu. Fé-
lagið styður það að grásleppan fari
í aflamark og telur það m.a. styrkja
rekstrargrundvöllinn.
Nýting Breiðarfjarðar:
Nú eru uppi hugmyndir um að friða
fjörðinn og jafnvel að gera hann að
þjóðgarði. Félagsmenn telja mik-
ilvægt að farið sé varlega í sak-
irnar við friðunaráform á Breiða-
firði. Nýting matarkistu Breiða-
fjarðar hefur verið mikilvæg fyrir
byggð við fjörðinn í gegnum ald-
irnar. Telja fundarmenn ekki sér-
staka þörf á frekari friðun en þegar
er í Breiðarfirði og mótmæla harð-
lega öllum hugmyndum um Þjóð-
garð í Breiðarfirði.
mm
„Félagið styður það að grásleppan fari í aflamark og telur það m.a. styrkja rek-
strargrundvöllinn.“ Svipmynd frá grásleppulöndun í Stykkishólmi. Ljósm. sá.