Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 24
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202124
Sigríður dóra Sigurgeirsdóttir tók
nýlega við af Sigurði guðmunds-
syni sem framkvæmdastjóri ung-
mennasambands Borgarfjarðar, en
hún hefur undanfarin ár verið tóm-
stundafulltrúi hjá umSB. Á dögun-
um kíkti blaðamaður við hjá Siggu
dóru, eins og hún er jafnan kölluð,
á skrifstofu sambandsins við Skalla-
grímsgötu í Borgarnesi og það lá
beinast við að spyrja Siggu dóru
hvernig henni lítist á nýja starfið?
„mjög vel, ég er rosa spennt fyr-
ir þessu og það er alltaf gaman að
prófa eitthvað nýtt. Ég hef starfað
hjá umSB síðustu fimm ár sem
tómstundafulltrúi en fyrir sjö árum
færði Borgarbyggð tómstundamál-
in yfir til ungmennasambandsins.
Við höfum verið tveir starfsmenn
hérna, ég og Sigurður sem fram-
kvæmdastjóri, en pálmi Blængs-
son var á undan honum í því starfi.
Ég hef verið með þeim í sama húsi
allan þennan tíma og þó við séum
ekki að sinna sömu verkefnum þá
hef ég komið mér inn í ýmis mál.
Sem tómstundafulltrúi sá ég um
frístundina, félagsheimilið Óðal
og ungmennaráðið og allt sem við
kemur börnum.“
Sigga dóra segir að hún hafi ver-
ið beðin um að stíga inn tímabund-
ið sem framkvæmdastjóri og þá hafi
Svala Eyjólfsdóttir verið ráðin í 60
prósent starf sem tómstundafulltrúi
en eftir áramót verði Svala í fullu
starfi. Fyrstu dagana sem fram-
kvæmdastjóri segir Sigga dóra að-
allega hafa falist í að koma sér inn í
verkefnin, hafa samband við deild-
irnar og aðildarfélögin innan sam-
bandsins og láta vita af sér, en þetta
taki allt tíma. „Ég er búin að vera
í samskiptum við sunddeildina sem
hefur ekki verið starfandi í mörg ár
en það er loksins eitthvað að gerast
þar og það er mjög spennandi. Það
er búið að semja við sundkennara
um þjálfun og boðið verður upp á
sundæfingar einu sinni í viku fram
að áramótum og æfingar hefjast
fyrstu vikuna í október.“
Frjálsar íþróttir
í frjálsu falli
Fyrir utan gluggann á skrifstofu
Siggu dóru sér blaðamaður glitta
í hina glæsilegu aðstöðu til frjáls-
íþróttaiðkunar sem var gerð áður
en Landsmót umSB var haldið í
Borgarnesi árið 1997. Hins veg-
ar má segja að ansi lítið hafi gerst
síðan þessi aðstaða kom varðandi
frjálsar íþróttir í bænum og mið-
ur að ekki hafi verið byggt upp öfl-
ugra starf meðal barna og unglinga
í Borgarbyggð síðustu tvo áratugi.
Burtséð frá þessum vangaveltum
blaðamanns segir Sigga dóra varð-
andi önnur aðstöðumál að það sé
farið að vanta nýtt íþróttahús í
Borgarnesi og einnig gervigrasvöll
á æfingasvæðinu á Skallagrímsvelli
til að hægt sé að æfa knattspyrnu
allt árið. „meistaraflokkar Skalla-
gríms í körfubolta eru á undanþágu
vegna þess að íþróttahúsið er ein-
faldlega ólöglegt því það er of lít-
ið samkvæmt nýjustu stöðlum og
reglum. Þá þarf knattspyrnufólkið
okkar að æfa og spila annars staðar
marga mánuði á ári því aðstaðan er
engin á veturna. Ég hefði verið til í
að sjá þessi mál vera komin aðeins
lengra en það þýðir lítið annað en
að vera bjartsýn um að þetta kom-
ist á eitthvað skrið því það er búið
að bíða lengi eftir að eitthvað gerist
í þessum málum,“ segir Sigga dóra
að endingu. vaks
Á föstudaginn í síðustu viku var
mikið fjör á Fosshóteli Stykkis-
hólmi þegar haldin var formleg
opnunarhátíð á nýendurbættum
300 manna ráðstefnu- og veislu-
sal, nýjum bar, veitingastað, nýjum
herbergjum og glæsilegri aðstöðu.
Að sögn Barða Jóhannssonar mark-
aðsstjóra Fosshótela er aðstaðan í
Stykkishólmi tilvalin fyrir árshátíð-
ir, tónleika, ættarmót eða aðra við-
burði og býður upp á ýmsa mögu-
leika. Ekki skemmir að Stykkis-
hólmur er í aðeins um tveggja tíma
akstursfjarlægð frá höfuðborginni.
Hótelið var opnað fyrir gestum
og gangandi klukkan 16 á föstu-
daginn þar sem fólki gafst færi á
að skoða nýju herbergin og hótelið
þar til formleg dagskrá hófst í ný-
uppgerða hátíðarsalnum. gunnar
Svanlaugsson stjórnaði dagskránni
og Hólmarar fluttu stutt ávörp. Þá
tók tónlistarfólk úr bænum við, þau
László petö, Lárus Ástmar Hann-
esson, Kristjón daðason, Þór-
hildur pálsdóttir og Sveinn Arnar
davíðsson. Eftir stutt hlé á dag-
skránni komu bræðurnir Friðrik
dór og Jón Jónsson og héldu uppi
stemningu fyrir Hólmara fram eft-
ir kvöldi. Tónleikum þeirra var út-
varpað í beinni útsendingu á Bylgj-
unni. „Í lok kvöldsins voru allir
í skýjunum með þennan frábæra
dag,“ segir Barði Jóhannsson hjá
Fosshótelum.
arg/ Ljósm. sá
Á púttmóti eldri borgara við klúbb-
húsið á Hamarsvelli í Borgarnesi
í síðustu viku hitti blaðamaður
Skessuhorns guðmund Eyþórsson
sem var einn af mörgum hjálpar-
hellum mótsins. Eftir að hafa spjall-
að stuttlega við hann kom í ljós að
guðmundur ólst upp í gamla hús-
inu á Hamri, sem nú er klúbbhús,
og bjó þar í 14 ár frá árinu 1960
með foreldrum sínum og systkin-
um. En man guðmundur eftir því
hvenær hann varð fyrst var við golf-
ara slá golfkúlum í kringum heim-
ilið?
„golfararnir voru byrjaðir hérna
upp úr 1970 og þá á litlu svæði
hérna úti á túni. En það er ekki fyrr
en eftir að við förum héðan sem
að golfklúbburinn fær þetta, lík-
lega eftir 1980. Þetta er sko ekkert
í fyrsta skiptið sem ég er að leika
mér hérna á hólnum. Það var mjög
gott að vera hérna sem krakki. Ég
var í skóla í Borgarnesi og stundaði
alla mína skólagöngu þar og geng-
um iðulega í skólann hvernig sem
viðraði. Síðan flutti ég í Borgarnes
um tvítugt og fór að vinna allskonar
störf þangað til ég hóf að læra kjöt-
iðn. Ég var að vinna sem kjötiðn-
aðarmaður eftir það í Borgarnesi,
Keflavík og svo lengi í Búðardal
sem deildarstjóri hjá Kaupfélaginu
í tólf ár í kjötvinnslunni.“
Eftir störf við kjötiðn í Búðardal
tók guðmundur þá ákvörðun að
hefja nám við Samvinnuháskólann
á Bifröst og lauk fjögurra ára námi,
fyrst í frumgreinadeild en síðan í
háskóladeildinni. Síðan „álpaðist“
hann til að fara að kenna en hafði
enga trú á því. Nokkru síðar fékk
hann svo áhuga fyrir því og aflaði
sér kennsluréttinda í Háskólanum
á Akureyri og var tvo vetur þar við
nám með vinnu.
„Ég útskrifaðist sem rekstrar-
fræðingur á Bifröst árið 1998 og
það er ýmislegt í því námi sem
hjálpar manni í kennslu, sálfræðiá-
fangar og annað tengt kennslu. Í
framhaldi af því fór ég að kenna í
Búðardal í grunnskólanum og svo
fluttum við úr Búðardal í Borgar-
nes árið 2004. Þá fór ég að kenna
á Varmalandi og var þar í fjögur ár
við kennslu og síðan kenndi ég einn
vetur í grunnskólanum í Borgar-
nesi. Ég var kennari í menntaskól-
anum í Borgarnesi í fjögur ár, eftir
það í fimm ár á Kleppjárnsreykjum
og síðan lá leiðin aftur í Borgar-
nes.“
Fann sig vel
í kennslunni
guðmundur segist hafa fundið sig
mjög vel í kennslunni en aðalástæð-
an fyrir því að hann hætti að starfa
sem kjötiðnaðarmeistari var sú að
það komu að hans mati misvitr-
ir nýútskrifaðir menn úr háskóla-
námi sem þóttust geta gert hlut-
ina öðruvísi og betur. „Þeir voru að
reyna að stjórna því hvernig maður
framleiddi vöruna og vildu ráða því
hvað við iðnaðarmennirnir vorum
að gera. Þeir höfðu auðvitað aldrei
unnið við þetta, en kannski þess
meira í excel og höfðu einhverja
hugmynd hvernig ætti að græða
peninga. En gæði vörunnar skipti
þá kannski minna máli. Þeir vildu
setja meira vatn í skinkuna heldur
en mér fannst boðlegt og það voru
aðallega svona hlutir sem ýttu mér
í það að fara að læra eitthvað ann-
að.“
guðmundur er nýhættur að vinna
en hann var í afleysingakennslu í
fyrravetur. Hann er 69 ára gamall
og konan hans, Ingibjörg Vigfús-
dóttir, er ennþá að vinna enda er
hún fimm árum yngri. Hann segist
í rólegheitum vera að venjast því að
vera að gera ekki neitt en er nýbyrj-
aður í púttinu og finnst það mjög
skemmtilegur félagsskapur enda
ekki óvanur að leika sér á hólnum
á Hamri. Hann hefur hins vegar
miklar áhyggjur af sínu æskuheim-
ili og vonar að eitthvað verði gert
fljótlega: „mér finnst að það megi
koma fram að það ætti fljótlega að
fara að huga að því að bjarga þessu
húsi því það er að láta á sjá bæði að
innan sem utan enda orðið örugg-
lega meira en hundrað ára,“ segir
guðmundur að lokum.
vaks
Mikið fjör á Fosshóteli
Stykkishólmi á föstudaginn
Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson skemmtu gestum.
Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri UMSB. Ljósm. vaks.
Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt
Guðmundur Eyþórsson við æskuheimili sitt.
„Það þarf að bjarga þessu húsi“
Segir Guðmundur Eyþórsson sem bjó á Hamri í æsku
Klúbbhúsið við Hamarsvöll í Borgarnesi. Ljósm. vaks