Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 8
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 20218
Bjarmi sást frá
Barðaströnd
VESTURLAND: um tíuleyt-
ið á fimmtudagskvöldið í síð-
ustu viku barst Neyðarlínu til-
kynning um að ljósbjarmi hefði
sést þegar horft var frá Neðri
Rauðsdal í átt að grundarfirði.
Tilkynnandi lýsti því eins og
rautt handblys hefði logað í ein-
hverjar sekúndur. Haft var sam-
band við Landhelgisgæsluna
sem aftur hafði samband við
nærstadda báta. Ekki kom neitt
út úr þessari athugun.
frg
Reiðhjóli stolið á
Akranesi
AKRANES: Síðastliðinn föstu-
dag komst eigandi Trek götu-
reiðhjóls að því að hjólinu hefði
verið stolið þar sem það var
læst utan við heimili hans við
Kirkjubraut á Akranesi. Er um
tilfinnanlegt tjón fyrir eigand-
ann að ræða. Hvorki hjólið né
þjófurinn höfðu fundist þegar
blaðið fór í prentun.
frg
Ljóslaus á 108
kílómetra hraða
VESTURLAND: Á laugardag
stöðvaði lögregla erlendan öku-
mann á 108 kílómetra hraða auk
þess að vera ljóslaus. Ökumað-
urinn lauk málinu með stað-
greiðslu sektar sem nam 52.500
krónum.
frg
Aflatölur fyrir
Vesturland
11. til 17. september.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu.
Akranes: 4 bátar.
Heildarlöndun: 14.372 kg.
Mestur afli: Ísak AK–67: 10.972
kg. í tveimur löndunum.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 10 bátar.
Heildarlöndun: 442.208 kg.
Mestur afli: Vörður ÞH-44:
80.709 kg. í tveimur löndun-
um.
Ólafsvík: 11 bátar.
Heildarlöndun: 192.939 kg.
Mestur afli: gunnar Bjarnason
SH-122: 38.670 kg. í þremur
löndunum.
Rif: 7 bátar.
Heildarlöndun: 61.259 kg.
Mestur afli: Þinganes SF-25:
27.858 kg. í einni löndun.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 11.095 kg.
Mestur afli: Bára SH-27: 8.447
kg. í þremur löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Sigurborg SH-12 GRU:
80.361 kg. 12. september.
2. Runólfur SH-135 GRU:
65.269 kg. 13. september.
3. Farsæll SH-30 GRU: 62.036
kg. 14. september.
4. Hringur SH-153 GRU:
47.870 kg. 15. september.
5. Áskell ÞH-48 GRU: 45.400
kg. 12. september.
-frg
Kjósanda sem verður í sóttkví eða
einangrun á kjördag, og getur því
ekki greitt atkvæði á almennum
kjörstað eða almennum utankjör-
fundarstað, er heimilt að greiða at-
kvæði á sérstökum utankjörfund-
arstöðum. Í tilkynningu frá dóms-
málaráðuneytinu segir að kosning á
sérstökum utankjörfundarstað megi
hefjast mánudaginn 20. september.
Sýslumenn, hver í sínu umdæmi,
auglýsa á vefsíðunni syslumenn.is
hvar og hvenær atkvæðagreiðslan
fer fram.
Kjósandi sem greiðir atkvæði á
sérstökum utankjörfundarstað skal
koma í bifreið á kjörstaðinn. Honum
er óheimilt að opna dyr eða glugga
bifreiðarinnar og hann skal vera
einn í bifreiðinni. Kjósandi fær ekki
kjörgögn í hendur heldur upplýsir
hann kjörstjóra um hvernig hann
vill greiða atkvæði, t.d. með því að
sýna blað með listabókstaf framboðs
eða á annan hátt sem kjörstjóri telur
öruggan og nægilega skýran.
mikilvægt er að kjósendur hafi
með sér blað og ritföng til að gera
grein fyrir vilja sínum og hafi með
sér skilríki. Sérstök athygli er vakin
á því að þeim sem er í einangrun er
heimilt að yfirgefa dvalarstað sinn í
bifreið í þeim eina tilgangi að greiða
atkvæði á sérstökum utankjörfund-
arstað skv. heimild í reglugerð frá
heilbrigðisráðherra.
Atkvæðagreiðsla á dval-
arstað kjósanda
Kjósanda sem er í einangrun eða
sóttkví á kjördag er heimilt að
greiða atkvæði á dvalarstað sínum.
Beiðni um atkvæðagreiðslu á dval-
arstað skal beint til sýslumanns í
því umdæmi þar sem viðkomandi
dvelst. Sé dvalarstaður kjósanda inn-
an kjördæmis hans skal beiðnin ber-
ast sýslumanni eigi síðar en kl. 10:00
á kjördag, en sé dvalarstaður kjós-
anda utan kjördæmis hans eigi síðar
en kl. 10:00 fimmtudaginn 23. sept-
ember. Beiðninni skal fylgja stað-
festing heilbrigðisyfirvalda á að við-
komandi sé í einangrun eða sóttkví
fram yfir kjördag og upplýsingar um
hvers vegna þeim sem er í sóttkví er
ekki unnt að greiða atkvæði á sér-
stökum utankjörfundarstað.
Kjósandi fær ekki kjörgögn í
hendur heldur upplýsir hann kjör-
stjóra um hvernig hann vill greiða
atkvæði t.d. með því að sýna blað
með listabókstaf framboðs eða á
annan hátt sem kjörstjóri telur
öruggan og nægilega skýran.
Synja má kjósanda um að greiða
atkvæði á dvalarstað telji sótt-
varnayfirvöld að atkvæðagreiðslu
verði ekki við komið án þess að
tefla heilsu kjörstjóra eða annarra í
hættu. Sú ákvörðun er endanleg.
Á vefslóðinni island.is/covid-
kosning2021 verða nánari upp-
lýsingar um framkvæmd atkvæða-
greiðslunnar og þar verður unnt að
sækja um kosningu á dvalarstað.
mm
Það er ekki malbikað í Búðar-
dal á hverjum degi, en mánudag-
inn 13. september stóðu yfir fram-
kvæmdir við höfnina í Búðardal, í
slagveðursrigningu. Verið var að
ganga frá slitlagi við höfnina, eftir
veituframkvæmdir, að sögn Krist-
jáns Inga Arnarssonar starfsmanns
dalabyggðar. Er svæðið þar með
allt orðið lagt slitlagi og eykur
það bæði öryggi gangandi vegfar-
enda og auðveldar umgengni um
höfnina. Kolur ehf og Colas sáu
um framkvæmdina fyrir sveitar-
félagið.
bj
Systurskipin Áskell ÞH 48 og Vörð-
ur ÞH 44 komu inn til löndun-
ar í grundarfirði síðastliðinn mið-
vikudag. Áskell kom með rúmlega
32 tonn af afla þar sem uppistað-
an var þorskur eða 19 tonn. Vörð-
ur var með rúmlega 42 tonn af afla
og þar af 26 tonn af þorski. Skipin
lönduðu einnig bæði í grundarfirði
12. september samtals rúmlega 100
tonnum af afla. Það er gjögur á
grenivík sem gerir skipin út.
tfk
Áskell og Vörður komu inn til löndunar
Vörður og Áskell við festar í
Grundarfirði en Hringur SH
liggur fyrir framan þau.
Menn voru röskir við malbikunina í Búðardal, því veðurguðirnir voru ekkert að hlífa þeim. Ljósm. Gunnbjörn Óli Jóhannsson.
Malbikað í Búðardal
Atkvæðagreiðsla fyrir þá sem verða í sóttkví
eða einangrun á kjördag