Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 14
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202114
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Alþingiskosningar
2021, Akranesi
Kjörfundur vegna Alþingiskosninga 25. september 2021, fer fram í
íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum og hefst kjörfundur kl. 09:00 og lýkur
í síðasta lagi kl. 22:00.
Íþróttahúsið Jaðarsbökkum, gengið inn um norður anddyri.
I. kjördeild Akralundur til og með Esjubraut
II. kjördeild Esjuvellir til og með Jaðarsbraut
III. kjördeild Jörundarholt til og með Smiðjuvellir
IV. kjördeild Sóleyjargata til og með Þjóðbraut
Kjósendur eru hvattir til að kjósa snemma á kjördag og
hafa meðferðis persónuskilríki.
Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 899-9180.
Netfang: kosning@akranes.is
Kjósendur eru hvattir til að gæta að eigin smitvörnum
í samræmi við gildandi reglur á hverjum tíma.
Akranesi, 9. september 2021
YFIRKJÖRSTJÓRN AKRANESS
Hugrún O. Guðjónsdóttir, formaður
Einar Gunnar Einarsson
Björn Kjartansson
borgarbyggd.is
dauða langreyði rak á land í Steins-
vör á Akranesi á miðvikudagsmorg-
un í síðustu viku. uppgötvuðu
starfsmenn Olís hvalrekann þeg-
ar þeir mættu til vinnu. dýrið var
innan umráðasvæðis Akraneshafnar
og í fyrstu var talið að um hrefnu
að ræða. Hafrannsóknastofnun gaf
hins vegar út á fimmtudag að við
greiningu hefði komið í ljós að um
langreyði væri að ræða og væri dýr-
ið um 12 metra langt. umhverf-
isstofnun var gert viðvart en ekki
mátti hreyfa við dýrinu fyrr en
starfsmenn stofnunarinnar höfðu
tekið sýni og mælt það. Tveimur
dögum síðar var hræið dregið á haf
út og því sökkt.
Skammt er hvalreka á milli á
svæðinu en síðla í ágúst rak dauða
langreyði á land í Kjaransstaða-
fjöru. Sú hafði borist til landsins
framan á stefni flutningaskips sem
lagði að Hafnarfjarðarhöfn en bor-
ist þaðan yfir flóann. frg
Þróun rafrænna sjúkraflutninga-
skýrslna er að ljúka, prófunarferli að
hefjast og stefnt að því að innleið-
ing þeirra hefjist í byrjun næsta árs.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðu-
neytinu segir að þessi tækni marki
tímamót; auki öryggi sjúklinga með
skjótu aðgengi sjúkraflutningafólks
að upplýsingum um skjólstæðinga
sem gagnast við ákvarðanatöku á
vettvangi og skráning nýrra upp-
lýsinga verður samstundis aðgengi-
leg heilbrigðisstarfsfólki sem tek-
ur við meðferð sjúklingsins í kjölfar
sjúkraflutnings. „markmiðið með
rafrænum sjúkraflutningaskýrslum
er að auka gæði skráninga, bæta að-
gengi að upplýsingum og efla gæða-
vísa og gæðastjórnun í utanspítala-
þjónustu.“
Sem dæmi um eiginleika sem nýt-
ast vel á vettvangi er sjálfvirkur úr-
lestur mælinga í skýrslu frá ýmsum
búnaði sem sjúklingur er tengdur
við eins og t.d. hjartariti og súrefn-
ismettunar- og blóðþrýstingsmæli.
Einnig verður auðveldara að fylgja
eftir þjónustu sem tekur við í kjöl-
far flutnings, hvort heldur á heil-
brigðisstofnunum eða í heilsugæslu.
„með rafrænni skráningu verður auk
þess loksins mögulegt að ná saman
tölulegum gögnum á landsvísu um
sjúkraflutninga og hagnýta gögnin
til rannsókna og vinnu í tengslum
við gæðavísa.“ mm
Bátur sökk með sextíu kindum
um 50 metrum frá Stykkishólmi á
sunnudaginn. Í frétt á vef RÚV í gær
segir að allar kindurnar hafi farið í
sjóinn auk tveggja manna sem voru
í bátnum, þá sakaði ekki. Tuttugu
kindur drukknuðu en aðrar kom-
ust á þurrt, sumum var bjargað en
aðrar syntu sjálfar í land. Verið var
að flytja kindurnar úr Brokey áleið-
is í sláturhús á Hvammstanga, með
viðkomu í Stykkishólmi. Bergur
Hjaltalín, annar mannanna í bátn-
um segir í samtali við RÚV að ekki
hafi verið nægur þungi undir bátn-
um og þegar féð hafi farið út í aðra
hlið hans hafi báturinn lagst. Björg-
unarsveitin Berserkir var kölluð til
en fólk sem var statt á höfninni
var einnig fljótt að fara út í báta og
koma til hjálpar. arg
Ljúka þróun rafrænna sjúkraflutningaskýrslna
Langreyði rak á land í Steinsvör
Flutningur á eyjafé. Ljósm. úr safni
Skessuhorns.
Sextíu kindur
fóru í sjóinn