Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 16

Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 16
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202116 miklar framkvæmdir standa nú yfir á Stafholtsveggjum II í Borgar- firði. Verið er að breyta útihúsum úr kjúklingahúsi í gistiheimili. Það er Sveinn Ragnarsson verkfræðing- ur sem stendur að breytingunum en hann keypti jörðina í desember 2019. Sveinn rekur verkfræðistof- una FR ráðgjöf. Húsin á jörðinni eiga sér reyndar óvenjulega fjöl- breytta sögu því áður hafa þau hýst tamningastöð og svínabú og þar áður sauðfjárrækt, loks kjúklinga- hús og nú gistihús fyrir fólk. Skessuhorn kíkti í heimsókn til Sveins og spurði hann fyrst hvernig hefði staðið á því að hann hefði far- ið út í þessa fjárfestingu. Hann svar- ar og segist hafa átt sumarbústað í Hvalfjarðarsveit. Þar hafði hann gert eiginlega allt sem hægt er að gera við slíkan bústað, gróðursett í hvert horn auk þess að byggja alla þá palla við bústaðinn sem hægt var. Hann var því farinn að svipast um eftir skika þar sem hann gæti tek- ið til hendinni. Sveinn frétti af því að Brautarholt væri til sölu en jörð- in er um 150 ha að stærð. Hann lét það hins vegar ekki duga að kaupa Brautarholt heldur keypti hann einnig Stafholtsveggi II sem liggur að Stafholtsveggjum I, en Stafholts- veggir II er um 10 hektara land- spilda, staðsett í miðtungu í Staf- holtstungum og í um 25 km fjarlægð frá Borgarnesi. Aðkoman að Staf- holtsveggjum II er frá Borgarfjarð- arbraut um núverandi heimreið sem er sameiginleg fyrir Stafholtsveggi I og II en lagður verður nýr afleggj- ari að Stafholtsveggjum II sem mun tengjast núverandi heimreið aust- an við íbúðarhús Stafholtsveggja I. Nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjón- ustu í landi Stafholtsveggja II tekur til 5,8 ha svæðis. Í hinu nýja deili- skipulagi segir meðal annars: „Inn- an svæðisins er skilgreind lóð fyrir hótel, lóðir fyrir svefnskála, skála með salernis- og eldunaraðstöðu, þjónustuhús og íbúðarhús ásamt fylgibyggingum.“ Þrjátíu smáhýsi í bígerð Skipulagssvæðið hentar vel til upp- byggingar ferðaþjónustu þar sem svæðið liggur hátt og er óhentugt til jarðræktar. Þaðan er víðsýnt og fagurt útsýni yfir Borgarfjarðarhér- að. Sveinn lýsir því þannig: „Það var ekki fyrr en ég kom hingað í góðu skyggni sem ég uppgötvaði hversu svakalega flott útsýnið er yfir Borg- arfjörðinn.“ Eins og áður segir er ráðgert að breyta alifuglahúsunum í hótel með allt að 40 herbergjum, veitingasölu og mögulega annarri aðstöðu fyr- ir ferðamenn, t.d. þvottaaðstöðu, afþreyingarrými og fleira. Einn- ig stefnir Sveinn í framtíðinni á að reisa 22 svefnskála og átta stærri skála ef þörfin verður fyrir hendi. minni skálarnir verða ekki með sal- ernis- eða eldunaraðstöðu, en þess í stað er gert ráð fyrir aðstöðu í sér- stöku þjónustuhúsi sem er í nálægð við þá. Stærri skálarnir verða aftur á móti með salernis- og eldunarað- stöðu. Að sögn Sveins er planið að fara rólega í uppbygginguna. „Þeg- ar maður er farinn að fá tekjur fer maður kannski hraðar í þetta.“ Ráðgert er að annað þjónustu- hús verði reist fyrir baðaðstöðu og að þar verði útisvæði með heitum laugum og pottum. Ekkert íbúðar- hús er á jörðinni, en Sveinn segir að ef vel gangi geri hann ráð fyrir því að byggja íbúðarhús samhliða upp- byggingu ferðaþjónustunnar. upp- bygging ferðaþjónustunnar verð- ur áfangaskipt. Byrjað verður á að breyta alifuglahúsunum í hótel í 2-3 áföngum og samhliða að byggja íbúðarhús. Snorri setti niður staur Jörðinni Stafholtsveggjum var á sín- um tíma skipt upp í Stafholtsveggi I og II, Varmaland/Laugaland og Brautarholt. Jörðin var þekkt fyrir jarðhita sem var nyrst í landinu, þ.e. Stafholtsveggjahver eða Veggjahver, en þar er nú Varmaland/Laugaland. Aðspurður um möguleika á heitu vatni á jörðinni segir Sveinn að þeg- ar hafi verið boruð hola sem kom vel út. Sveinn segist þekkja marga í hinum svokallaða andlega geira. „Snorri á Fossum kom í heimsókn og við settum niður staur þar sem hann sagði að væri 72 gráðu heitt vatn á 70 metra dýpi. Ég er reyndar ekki búinn að sannreyna þetta en ég hef trú á þessu því ég hef heyrt þetta úr annarri átt líka,“ segir Sveinn. Þá bendir Sveinn á að heitt vatn er að finna í nágrenninu, í áður nefndum Veggjahver. Núverandi hús á jörðinni eru þrjú og uppbyggingin skiptist því í meg- inatriðum í þrennt. Í fyrsta áfanga er ætlunin að útbúa 17 gistirými fyrir alls 34 gesti. Jafnframt verð- ur gestamóttaka og veitingaaðstaða útbúin. Þegar öll húsin verða tilbú- in verða gistirými alls 40 fyrir um 80 gesti. Garnanöfn á götunum Þegar rýnt er í mynd af nýju skipu- lagi Stafholtsveggja vekja gatna- nöfn svæðisins nokkra athygli. Þar má finna nöfnin Skálagörn og Laugagörn. Þegar Sveinn er spurð- ur út í þetta segir hann: „Afi minn sem var bóndi á Kvíum í Þverár- hlíð var ásamt fleirum að leggja veg upp Þverárhlíðina frá Borgarfjarð- arbraut. meðal annars var þar lang- ur og beinn kafli sem þeir kölluðu Löngugörn. Þegar Sigurbjörg hjá Landlínum sagði að ég yrði að láta göturnar heita eitthvað þá var þetta það eina sem mér datt í hug,“ segir Sveinn og hlær.“ Ætla ekki í samkeppni við fínni hótelin í Borgarfirði Að sögn Sveins verður viðskipta- módelið hjá honum í líkingu við Fossatún. Sveinn segir þó að hús- in sem hann hyggst reisa séu tals- vert frábrugðin húsunum í Fossa- túni. Hann bendir á að nóg er af gistirými í dýrari kantinum í Borg- arfirði og bendir þar á Hótel Húsa- fell, Fosshótel og Varmaland. „Ég er ekki að fara í samkeppni við þessa aðila. Verðið fyrir gistingu hér verð- ur lægra en þar. mér finnst bara já- kvætt að nýir gistimöguleikar séu að koma til sögunnar, þetta styð- ur allt hvað annað og fyrir bragð- ið verða til meiri afþreyingarmögu- leikar.“ göngustígur eða slóði ligg- ur frá Stafholtsveggjum að Varma- landi og er því örstutt fyrir gesti að ganga spölkorn til þess að komast í ýmsa þjónustu, svo sem í sundlaug og á veitingastað. Í skipulagsauglýsingu segir um umhverfisáhrif að talið sé jákvætt að deiliskipulagið leiði af sér uppbygg- ingu á verslun og þjónustu þar sem eldri landbúnaðarbyggingar voru hættar að þjóna hlutverki sínu, en fá nú nýtt hlutverk sem hótel. Rekstur nýs hótels hefur jákvæð hagræn og félagsleg áhrif á samfélagið þar sem hann leiðir af sér fjölgun starfa inn- an sveitarfélagsins. Það er mat land- eiganda að skortur er á hagstæðri gistingu í Stafholtstungum. upp- byggingin mun verða mikilvæg við- bót við þá gistingu sem er í boði í næsta nágrenni og auka val ferða- mannsins á mismunandi gistimögu- leikum. Þörfin mun aukast Í tillögu að breytingum á skipulagi fyrir Stafholtsveggi II segir m.a: „mikill uppgangur hefur verið í ferðaþjónustu í Borgarfirði síðustu misserin. Til að mynda 4,3 faldaðist fjöldi erlendra ferðamanna í Borgar- firði á árunum 2010 – 2019 og voru um það bil 903.000 árið 2019, sem Mikil uppbygging framundan að Stafholtsveggjum II í Borgarfirði Stefnt að opnun gistiheimilis næsta sumar Sveinn Ragnarsson fyrir framan hús sem verið er að breyta í hótel. Búið er að mála hluta húsanna að Stafholtsveggjum II svört. Franskir gluggar verða í hótelbyggingunni. Búið er að skipta um járn á þakinu á hluta húsanna. Smáhýsi, svipað þessu, munu verða reist á jörðinni.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.