Skessuhorn - 15.09.2021, Síða 39
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 2021 39
ÍA tryggði sér sæti í úrslitum í bik-
arkeppni 2. flokks kvenna í knatt-
spyrnu á þriðjudaginn í liðinni viku
þegar liðið sigraði sameiginlegt lið
Selfoss/Hamars/Ægis/KFR í und-
anúrslitum bikarsins á JÁVERK
vellinum á Selfossi. Lilja Björg
Ólafsdóttir, maría Björk Ómars-
dóttir og Ylfa Laxdal unnarsdóttir
skoruðu mörk ÍA í leiknum í örugg-
um sigri en áður hafði ÍA unnið lið
FH í 8 liða úrslitunum eftir víta-
spyrnukeppni. Fram undan er bikar-
úrslitaleikur gegn sameiginlegu liði
Breiðabliks og Augnabliks föstudag-
inn 24. september klukkan 17 og fer
hann fram í Akraneshöllinni.
ÍA og Breiðablik/Augnablik hafa
leikið tvo leiki í sumar í 2. flokki
kvenna A deild og Kópavogsstúlk-
ur unnið þá báða, þann fyrri 3-2 og
seinni 4-2. Breiðablik/Augnablik er
Íslandsmeistari í 2. flokki en þær
voru efstar í A deild með 30 stig,
FH var í öðru sæti með 28 stig og
ÍA í því þriðja með 21 stig en áttu
einn leik eftir gegn Fylki í deildinni
sem fram fór í gær eftir að blaðið fór
í prentun.
Þess má geta að í síðasta leik
ÍA gegn Haukum í Lengjudeild-
inni í síðustu viku voru alls fimm
stelpur í byrjunarliði ÍA og fimm
sem voru varamenn af þeim sem
hófu leik í leiknum gegn Breiða-
blik/Augnablik.. Þá vakti athygli
blaðamanns að í leiknum kom inn
á Sunna Rún Sigurðardóttir sem
er fædd árið 2008 og því aðeins
13 ára gömul á árinu en í 2. flokki
eru stelpur fæddar 2002-2004.
Sunna Rún er dóttir knattspyrnu-
hjónanna Sigurðar Sigursteins-
sonar og margrétar Ákadóttur,
systir Arnórs og Inga Þórs sem
leika með Venezia á Ítalíu og ÍA
og þykir Sunna Rún nokkuð efni-
leg knattspyrnukona.
vaks
Kári endaði ekki á góðu nótunum
í síðasta leik liðsins í 2. deild í bili
að minnsta kosti. Kári lék gegn liði
magna á grenivíkurvelli á laug-
ardaginn og varð að sætta sig við
enn eitt tapið. Káramenn komust
þó yfir í leiknum á 19. mínútu með
marki Ármanns Inga Finnbogason-
ar en guðni Svavarsson jafnaði fyr-
ir heimamenn á 37. mínútu og jafnt
í hálfleik 1-1.
Það voru síðan leikmenn magna
sem tryggðu sér sigurinn með
tveimur mörkum á tveimur mín-
útum. Fyrst skoraði Angantýr
máni gautason á 77. mínútu og
mínútu síðar var það guðni Sig-
þórsson með sitt annað mark fyrir
magna, lokastaðan 3-1 fyrir norð-
anmenn. Athygli vekur að aðeins
tveir leikmenn voru á varamanna-
bekk Kára í leiknum, markvörður-
inn Bjarki Rúnar Ívarsson sem kom
inn á í sínum fyrsta leik í sumar
með Kára á 71. mínútu og formað-
ur Kára, Sveinbjörn geir Hlöð-
versson sem fékk að leika lausum
hala síðustu mínúturnar eftir að
fyrrnefndur Angantýr hafði feng-
ið rautt spjald skömmu áður. Þess
má geta að Sveinbjörn er 25 árum
eldri en yngsti leikmaður Kára í
leiknum sem var Ellert Lár Hann-
esson en hann er fæddur árið 2004.
Þá voru Káramenn án þjálfara síns í
leiknum því Ásmundur Haraldsson
var upptekinn í verkefnum með A-
landsliði kvenna sem var að undir-
búa sig fyrir leik gegn Hollandi sem
fram fór í gærkvöldi.
Kári lauk tímabilinu í neðsta sæti
með níu stig í 22 leikjum og Fjarða-
byggð fylgir þeim niður í þriðju
deildina með ellefu stig. Þróttur
Vogum hafnaði í efsta sæti í deild-
inni og tryggði sér sæti í Lengju-
deildinni á næsta ári ásamt liði KV
úr Vesturbænum sem náði öðru
sætinu eftir mikla baráttu við lið
Völsungs frá Húsavík. vaks
Skagamenn fóru létt með Fylki í
pepsi max deildinni í knattspyrnu
þegar liðin mættust á Akranesvelli
á sunnudaginn. Fyrir leikinn voru
Skagamenn á botni deildarinn-
ar með 15 stig en Fylkir með stigi
meira og því allt lagt í sölurnar hjá
báðum liðum að ná sigri til að forð-
ast falldrauginn. Lokatölur leiks-
ins 5-0 fyrir Skagamenn og úrslit-
in þýða að enn er von hjá Skaga-
mönnum að halda sér í deild þeirra
bestu.
Það dró til tíðinda strax á tólftu
mínútu leiksins þegar Skagamenn
fengu vítaspyrnu eftir að leikmað-
ur Fylkis, Þórður gunnar Hafþórs-
son, fékk boltann í hendina innan
teigs og var vikið af velli í kjölfar-
ið. Steinar Þorsteinsson skoraði úr
vítinu og Skagamenn einu marki
yfir og einum manni fleiri það sem
eftir lifði leiks. Snemma í byrjun
seinni hálfleiks skoraði Hákon Ingi
Jónsson annað mark Skagamanna í
leiknum og á síðasta korteri leiks-
ins gerðu heimamenn þrjú mörk.
Fyrst var það Jón gísli Eyland sem
skoraði fyrir utan teig, Ingi Þór
Sigurðsson þrumaði síðan boltan-
um í fjærhornið eftir góða send-
ingu Ísaks Snæ Þorvaldssonar og á
lokamínútunni renndi Eyþór Aron
Wöhler boltanum fram hjá mark-
manni Fylkis og fimm marka sigur
Skagamanna í höfn.
HK náði síðan sigri á mánu-
dagskvöldið gegn Stjörnunni eftir
að hafa skorað sigurmarkið einum
færri undir lok leiksins. Staðan í
botnbaráttunni í pepsi max deild-
inni er því þannig fyrir síðustu um-
ferðina að HK er í tíunda sæti með
20 stig, ÍA í því ellefta með 18 stig
og Fylkir er fallinn í Lengjudeildina
með 16 stig. Því er ljóst að Skaga-
menn verða að vinna lið Keflavík-
ur til að eiga möguleika á að halda
sér uppi og treysta á í leiðinni að
Breiðablik sigri HK. Þá er spenn-
an mjög mikil í toppbaráttunni því
þar getur Víkingur Reykjavík orðið
Íslandsmeistari með sigri á Leikni
Reykjavík í síðustu umferðinni en
Víkingur var síðast meistari fyrir
þrjátíu árum eða árið 1991. Síðasta
umferð pepsi max deildarinnar er
áætluð á laugardaginn og hefjast
allir leikir kl. 14.
vaks
Eftir að hafa tapað fimm leikjum í
röð í Lengjudeildinni náði Víking-
ur Ólafsvík loks sigri gegn grinda-
vík á laugardaginn. Aðstæður voru
ekki upp á það besta í grindavík,
grenjandi rigning, mikill vindur og
völlurinn nánast á floti. Leikurinn
byrjaði fjörlega því á fimmtu mín-
útu skoraði Harley Bryn Willard
fyrir Víking en aðeins mínútu síð-
ar jafnaði Josip Zeba fyrir heima-
menn. Besti maður vallarins, Bjart-
ur Bjarmi Barkarson, kom Víkingi
aftur yfir eftir tæpar 30 mínútur og
Kareem Isiaka bætti þriðja markinu
við rétt fyrir leikhlé og staðan 1-3 í
hálfleik fyrir Víking.
grindavík minnkaði muninn strax
í byrjun seinni hálfleiks með marki
frá gabriel dan Robinson en það
var síðan Kareem Isiaka sem gull-
tryggði annan sigur Víkings í sum-
ar með sínu öðru marki skömmu
fyrir leikslok. guðjón Þórðarson,
þjálfari Víkings, sagði í viðtali eftir
leik að það þurfi að búa til nýtt lið í
Ólafsvík og að það verði breytingar.
Það þurfi að púsla saman liði, reyna
að stækka heimahópinn og búa svo
til stöðu fyrir útlendingana sem
þeir þurfi á að halda.
Víkingur endaði í neðsta sæti
með átta stig í 22 leikjum og Þrótt-
ur Reykjavík féll með þeim í 2.
deild með fjórtán stig. Fram sigraði
í Lengjudeildinni með yfirburðum,
vann 18 leiki, gerði fjögur jafntefli
og tapaði ekki leik. með þeim upp í
pepsi max deildina fer lið ÍBV sem
hefur þegar tryggt sér sæti í efstu
deild en þeir eiga einn leik eftir í
deildinni um næstu helgi. vaks
B-lið 2. flokks ÍA tók við Íslands-
meistaratitlinum á mánudags-
kvöldið eftir sigur gegn KA/ dal-
vík/ Reynir/ magni í Akraneshöll-
inni. Liðið sem spilar undir merkj-
um ÍA/ Kári/ Skallagrímur í sum-
ar lék 18 leiki í deildinni, vann 16,
gerði tvö jafntefli og tapaði engum
leik. Liðið endaði með 50 stig og
markatöluna 84-18 en í öðru sæti
var lið Stjörnunnar/ KFg/ Álfta-
ness með 36 stig. markahæstir voru
Franz Bergmann Heimisson með
17 mörk, Steindór mar gunnars-
son með 11 mörk og gabríel Ísak
Valgeirsson með 10 mörk. Þjálfarar
liðsins eru Sigurður Jónsson og El-
inbergur Sveinsson. vaks
Byrjunarlið Kára gegn Magna á laugardaginn. Ljósm. sgh
Kári tapaði sjötta leiknum í röð
Skagamenn að fagna titlinum. Ljósm kfía.
ÍA Íslandsmeistari í 2. flokki karla
Skagastelpur fagna sigrinum. Ljósm. Lára Dóra Valdimarsdóttir
2. flokkur kvenna ÍA í úrslit
í bikarnum
Guðjón Þórðarson mun stýra liðinu
áfram. Hann segir verkefni vetrarins
að púsla saman liði, stækka heima-
hópinn en bæta síðan við útlendingum
eins og þurfa þykir. Ljósm. af.
Víkingur kvaddi Lengju-
deildina með sigri
Stuðningsmenn gegndu lykilhlutverki í hvatningu sinna manna um helgina.
Ljósm. sr.
Skagamenn unnu stórsigur
en þurfa einn í viðbót