Skessuhorn


Skessuhorn - 10.11.2021, Side 4

Skessuhorn - 10.11.2021, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 20214 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Eigendavandi Mannfólkið er skrýtin skepnutegund. Slyngari en aðrar og af þeim sökum tókst tegundinni fyrir einhverjum árþúsundum að ná ákveðnum yfirráðum. Varð læ- vísari en aðrar tegundir spendýra; bjó til vopn, fann upp eldinn, veiddi sér til mat- ar og þurfti því að finna upp kolagrillið til að þurfa ekki að éta allt hrátt ofan í sig. Varð engu að síður áfram nokkurs konar blanda af jurta- og kjötætu, gat aldrei ákveðið sig almennilega. Flestir éta því bæði það sem vex úr moldu en bæta svo við öðrum millilið í fæðukeðjuna þegar þeir leggja sér til munns kjöt af dýrum sem höfðu sér til vaxtar étið einhvern gróður. Flestir hafa þó sleppt að éta dýr sem áður höfðu étið önnur dýr. Nota í besta falli skinnin af þeim í flíkur, eða gera þau að gæludýrum heima í stofu. Vissulega var Homo Sapiens stundum étin af öðrum grimmum tegundum, svo sem krókódílum, ljónum og hákörlum, en í dag er fremur fátítt að slíkt hendi. Einna helst að það gerist í ölæði þegar menn hafa kneyfað of mikinn mjöð sem vissulega er unninn úr afurðum jurtaríkisins. Þess vegna er skynsamlegra að eta kjet en vera vegan. Þetta var svona nokkurn veginn stutta útgáfan af sögu mannsins. En að henni sagðri þá ætla ég að tala aðeins um gæludýr, loðnu stofustássin. Hávær umræða hefur á liðnum dögum skapast um kattahald á Akureyri. Nú hefur bæjarstjórn þar tekið djarfa ákvörðun um að eftir fjögur ár verði bannað að sleppa köttum út, án þess að hafa þá í bandi með eigandann á hinum endanum. Ákvörðun þessi varð strax afar umdeild enda hafa allir skoðun á því hvort kettir eigi að ganga lausir á almannafæri. Þeir falla af einhverjum sökum ekki undir sömu reglur og hundar sem líklega á þá skýringu að sjaldnast ráðast kettir á fólk, þótt vissulega séu dæmi um slíkt. Hundar geta hins vegar tekið upp á því að ráðast á fólk og kindur á beit og því þarf ekki að fjölyrða um hversu sjálfsagt er að þeir gangi ekki lausir. En kettir eru ólíkindaskepnur þrátt fyrir frjálsræðið sem þeim er veitt. Kettir og hundar eiga bókstaflega ekkert sameiginlegt, ef frá er talið að bæði eru rándýr (enda slást þeir eins og hundar og kettir). Hundar eru þúsundfalt hollari eigend- um sínum. Kettir eru hins vegar svona hentistefnu dýr sem fara sínar eigin leiðir, alltaf. Það verður því að segjast eins og er að mörg hundruð ára tilraun manns- ins til að halda ketti sem heimilisdýr hefur mistekist. Skoðum til dæmis hvern- ig dýr þessi hugsa til mannsins, prófum að leggja þeim orð í munn. Hundurinn hugsar: „Vá! Þú elsku maður veitir mér húsaskjól, gefur mér að borða og hugs- ar um mig! Þú hlýtur að vera Guð.“ En kötturinn hugsar hins vegar svona: „Vá! Þú elsku maður veitir mér húsaskjól, gefur mér að borða og hugsar um mig! Ég hlýt að vera Guð.“ Ég hef þá bjargföstu trú að bæði kettir og hundar beri eigendum sínum glöggt vitni. Rétt eins og blessuð börnin. Oftast haga þau sér í samræmi við það uppeldi sem þau hafa fengið og svo ráða vissulega genin miklu um hvernig manneskjan verður. Hlýðinn hundur er hlýðinn vegna þess að hann hefur fengið agað og ákveðið uppeldi frá fyrsta degi. Honum er kennt að það eigi að míga og skíta úti, hvenær megi ekki gelta eða flaðra upp um fangið á prúðbúinni frænku sem kem- ur í heimsókn. Alveg að sama skapi held ég að það væri vel hægt að ala ketti upp þannig að þeir yrðu bæði sjálfum sér og eigendum sínum til sóma. Til er fólk sem elur ketti sína upp við aga og reglufestu. Nágrannakona mín á nú bæði hunda og ungan kött. Þar sem hún býr á þriðju hæð hvarflar ekki að henni að ala köttinn upp við sjálfstæða ákvörðun um útiveru þegar honum hentar. Nei, rétt eins og í tilfelli hundanna hennar, er kötturinn settur í þar til gert beisli og veit hann þá sem er, að þá fær hann að fara út. Þessi köttur er því ekki að gera neinar kröfur til útiveru; skítur ekki í blómabeð og sandkassa nágranna sinna, veiðir ekki fugla úr nágrannagörðum, fer ekki inn um glugga til að stela sér mat eða breimar fyrir utan svefnherbergisgluggann hjá mér um miðja nótt. Niðurstaða úr þessari vísindalegu samantekt er þessi: Manninum gekk vel að ná yfirtökum í dýraríkinu, í öllum tilfellum nema í samskiptum við ketti. Bann við lausagöngu katta við innanverðan Eyjafjörð er því í besta falli ósvinna. Þar, eins og annars staðar er um uppeldislegt atriði að ræða. Öðru nafni eigendavandi. Ey- firðingar þurfa að takast á við hann. Magnús Magnússon. Vegfarendur sem aka Akrafjalls- veg, framhjá iðnaðarhverfinu að Höfðaseli á Akranesi hafa sjálf- sagt einhverjir velt fyrir sér stóru hvítu stálgrindarhúsi sem rís nú á lóð BM Vallár. Þar er um að ræða nýtt hús sem hýsa mun veggjasal, þar sem Smellinn veggjaeiningar verða framleiddar. Að sögn Stein- gríms Más Jónssonar, framleiðslu- stjóra BM Vallár á Akranesi, ganga framkvæmdir við húsið vel og eru á áætlun. Er gert ráð fyrir að hús- ið verði tilbúið fljótlega á nýju ári. frg Fulltrúaráð Kjalar stéttarfélags skorar á sveitarfélög í landinu að tryggja starfsfólki sínu styttingu vinnuvikunnar eins og samið var um í kjarasamningum. Í ályktun fulltrúaráðs Kjalar frá fundi þess 5. nóvember segir: „Sveitarfélög- in verða að beita sér fyrir því að fram fari umbótasamtöl á hverj- um vinnustað þar sem starfsfólk- ið útfærir styttinguna og ákveður hversu mikil hún verður. Hjá rík- inu hafa átta af hverjum tíu vinnu- stöðum farið í 36 stunda vinnu- viku og níu af tíu vinnustöðum hjá Reykjavíkurborg. Önnur sveitarfé- lög verða að fylgja því fordæmi og tryggja þar með aukin afköst, betri þjónustu og aukna starfsánægju.“ mm Síðastliðinn fimmtudagsmorgun urðu bændur á Vestra-Reyni varir við að stór grjóthnullungur, hafði losnað úr stalli ofarlega í Akra- fjalli og fallið niður á jafnsléttu. Slóð hans niður fjallið er vel sýni- leg. „Landslag tekur breyting- um. Fengum þennan hnullung úr efstu klettum snemma í morgun, það hefur verið ágætur hraði mið- að við verksummerki. Hann var samt svo tillitssamur að hoppa yfir girðinguna - sleit hana ekki. Það má alltaf þakka fyrir eitthvað,“ skrifaði Haraldur bóndi á Facebook og bætti við; „en kvígunum sem þarna dvelja var talsvert brugðið.“ mm/ Ljósm. hb. Sveitarfélög önnur en Reykjavík eiga langt í land með styttingu vinnuviku. Glæra: Kjölur. Hvetur sveitarfélög til að stytta vinnuviku starfsfólks Hér má glöggt sjá leið steinsins niður hlíðina. Stór hnullungur féll úr Akrafjalli Lilja Guðrún bóndi við bjargið víðförla. BM Vallá byggir nýtt stálgrindarhús

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.