Skessuhorn - 10.11.2021, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021 17
Fjölbrautaskóli Vesturlands
á Akranesi
• JAFNRÉTTI
• VIRÐING
• FJÖLBREYTILEIKI
ALLAR UPPLÝSINGAR
UM NÁMSBRAUTIR OG
NÁM VIÐ FVA ER AÐ
FINNA Á WWW.FVA.IS
- VINGJARNLEGT VIÐMÓT -
- PERSÓNULEG SAMSKIPTI -
- ÖFLUG NEMENDAÞJÓNUSTA -
- FRÁBÆR AÐSTAÐA -
- LÍFLEGT FÉLAGSLÍF -
HEIMAVIST - MÖTUNEYTI
NÁMSVER - NÁMSAÐSTOÐ
- TÖLVUVER -
HVERS VEGNA
FVA?
Stúdents próf af bóknámsbrautum: Félagsfræðabraut, Náttúru fræða
braut og Opinni stúdentsbraut. Einnig býðst undir búningsnám á
framhaldsskóla braut. Afreksíþróttasvið í boði á öll um brautum. Starfs
rétt indanám í húsasmíði, rafvirkjun, vélvirkjun, félags liðabraut og
sjúkraliðabraut.
Hægt er að stunda nám til stúdents prófs samhliða öllu starfsréttinda
námi.
KOMDU Í FVA!
INNRITUN STENDUR YFIR
INNRITUN FER FRAM Á WWW.MENNTAGATT.IS
NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
GUÐRÚN S. GUÐMUNDSDÓTTIR, NÁMS- OG STARFSRÁÐGJAFI - GUDRUNS@FVA.IS
JÓNÍNA HALLA VÍGLUNDSDÓTTIR, ÁFANGASTJÓRI - JONINA@FVA.IS
INNRITUN LÝKUR
30. NÓVEMBER 2021
Fjölbrautaskóli Vesturlands • Vogabraut 5, 300 Akranes • 433 2500 • skrifstofa@fva.is
Ótrúleg björgun
Svo rann upp september og þar fór af
stað ótrúleg atburðarás. Lið sem var
búið að vinna þrjá leiki allt sumarið
þurfti þrjá sigurleiki og ekkert annað
til þess að bjarga sér frá falli. Hvern-
ig er að horfa til baka og hvernig fóruð
þið að þessu?
„Það breyttist í raun ekkert
svakalega mikið nema það að þetta
voru allt úrslitaleikir og líka leikir
þar sem við vorum að mæta liðum
í kringum okkur í fallbaráttunni.
Sigurleikurinn gegn Fylki gaf okk-
ur bæði von og trú á sama tíma og
líka það að leikmennirnir fundu allt
í einu að þetta væri mögulegt. Eft-
ir á að hyggja var þetta auðvitað
ótrúleg björgun en mér fannst við
vera betri en liðin í kringum okkur.
Þegar upp er staðið að þá færðu það
sem þú leggur inn í svona dæmi þó
svo að þessir sigurleikir hafi komið
seint. Það eru þessi stig sem eru í
boði sem þú tekur sem ráða úrslit-
um hvort þú fellur eða ekki.“
Hafði gott af fríinu
Svo til að toppa þetta fóruð þið í bik-
arúrslitaleik eftir 18 ára eyðimerkur-
göngu. En í aðdraganda leiksins
varstu gagnrýndur fyrir að fara til
Tenerife í stutt frí. Hvað fannst þér
um þá gagnrýni?
„Mér fannst það bara fyndið en
þetta var bara það sem fólki fannst
og einhverjum fannst þetta skrýtið.
Þetta var búið að vera mjög krefj-
andi tímabil fyrir mig og liðið.
Svo kemur þetta tveggja vikna frí
og ég ákvað í samráði við félag-
ið og mína aðstoðarmenn að fara
út í fimm daga, frá þriðjudegi til
laugardags og þá var vika í leik. Svo
var einnig landsleikjahlé og nokkrir
leikmenn ÍA hvort sem er í lands-
liðsverkefnum. Fyrri vikan var létt
og skemmtileg til að taka mestan
hitann af mönnum, ná þeim niður
á jörðina, núllstilla þá og sú seinni
uppbygging inn í leikinn. Ég hef
enga skoðun á því að fólk hafi sett
út á það að ég hafi farið út, þetta var
ákvörðun sem ég tók í fullu samráði
við mína yfirmenn og ég hafði bara
mjög gott af þessu stutta fríi.“
Í bikarúrslit
Bikarúrslitaleikurinn var loka-
punktur tímabilsins og segir Jói
Kalli að tilfinningin fyrir leikn-
um hefði verið nokkuð góð og
spennustigið í liðinu fyrir leik verið
gott. „Við höfðum trú á því að við
gætum lagt leikinn þannig upp að
við gætum strítt Víkingi. Við ætl-
uðum að treysta á hraða og áræðni,
sérstaklega hjá Gísla og Viktori.
Eins og leikurinn fór af stað að
þá var Víkingur meira með bolt-
ann en við beinskeyttari og leik-
urinn hefði orðið allt annar ef við
hefðum náð forystunni. Víkingur
er með frábæra vörn og markmann
til að verja forystu og því var erfitt
að fá á sig mark rétt fyrir hálfleik
og það verður að segjast að við fór-
um hálf vankaðir inn í hálfleikinn.
En það breytir því ekki að við kom-
um af ágætis krafti inn í seinni hálf-
leikinn, spiluðum betur á löngum
köflum og hefðum getað minnkað
muninn. Menn vissu alveg að þetta
yrði erfitt en mér fannst við aldrei
gefast upp í þessum leik þó við
hefðum lent tveimur mörkum und-
ir. Margir af þessum strákum voru
að spila sinn fyrsta bikarúrslitaleik
en ég fann það aldrei að menn væru
eitthvað sáttir með það að vera
bara komnir þangað. Við töluðum
um það að leiðin í úrslitin væri til
þess að vinna bikarinn og við höfð-
um alveg trú á því. En í svona úr-
slitaleikjum færðu kannski ekki eins
mikið af færum eins og í venjuleg-
um leikjum í deildinni, þú þarft að
nýta færin þín í svona leik til að eiga
möguleika á að landa titli.“
Leikmannamálin
Nú eru lausir samningar við
nokkra leikmenn ÍA. Hvernig standa
þau mál?
„Við erum að vinna í því að semja
við þessa leikmenn sem við viljum
halda. Arnar Már hefur stigið til
hliðar, Óli Valur hið sama. Dínó
er farinn í Kára, Elias Tamburini
verður ekki áfram og Aron Krist-
ófer er genginn til liðs við KR. Við
tókum þá ákvörðun að endurnýja
ekki við þessa leikmenn, við höf-
um samið við Alex Davey og það er
ekki í okkar höndum með Ísak Snæ.
Við viljum hins vegar semja við
Hall Flosa, Árna Snæ, Sindra Snæ
og Óttar og sú vinna er í gangi að
reyna að semja við þá leikmenn sem
við viljum halda.“
Stundum þarf að
sveigja út af
Nú hefur maður heyrt gagnrýnis-
raddir um lítið vægi heimamanna
í liðinu. Fyrir tveimur árum var
kynnt stefnumörkun hjá KFÍA þar
sem kom fram að byggja ætti liðið
upp á yngri leikmönnum og ekki ná
í aðkomuleikmenn ef þeir væru yfir
27 ára. Hvað finnst þér um þetta?
„Ég skil hana alveg að mörgu
leyti. Það er erfitt að skilgreina
heimamenn og uppalda leikmenn.
Það var birt í sumar grein um töl-
fræði um heimamenn í liðinu sem
mér fannst ekki alveg sanngjörn.
Við erum með leikmenn eins og
Árna Marinó, Jón Gísla, Brynj-
ar Snær og Gumma Tyrfings sem
komu flestir til okkar mjög ungir
og hafa spilað með ÍA í yngri
flokkunum. Stundum þarf að
sveigja aðeins út af leiðinni sem
þú hefur valið en stefnan hefur
ekkert breyst og við munum halda
áfram að vinna í takt við þessa
stefnu.“
Nú hefur þú þjálfað liðið frá því um
haustið 2017. Hvernig finnst þér þessi
tími hafa verið og ertu sáttur við ár-
angurinn?
„Þessi tími hefur verið upp og
niður þegar maður horfir til baka.
Ég tók við liðinu eftir fall og við
fórum beint upp aftur sem var alltaf
markmiðið. Ég er gríðarlega stoltur
með það að hafa verið í efstu deild
síðan þá en það sem ég er mest
sáttur með og finnst mikilvægt
hlutverk hjá mér sem þjálfara er að
hjálpa ungum strákum að fá tæki-
færi til þess að komast út í atvinnu-
mennsku. Ég tel mig geta miðl-
að af minni reynslu sem leikmað-
ur og hjálpað þeim og bent þeim á
hvað til þarf að geta náð langt í fót-
bolta. Það drífur mig mikið áfram
að geta verið að vinna í félagi og
vinna á stað þar sem ungir strák-
ar fá tækifæri til að sýna sig. Þar
sem þeir fá tækifæri til að gera mis-
tök og spila meistaraflokksfótbolta
frekar snemma sem hjálpar þeim að
komast í landsliðin og að komast
út. Einnig er ég ánægður með það
að við höfum verið að þróa leikstíl-
inn okkar með það fyrir augum að
leikmennirnir okkar geti blómstr-
að, geti sýnt sínar bestu hliðar og
við séum að spila leikstíl sem önn-
ur lið eru að spila á hinum Norð-
urlöndunum. Það eykur líkurnar
að leikmennirnir okkar veki athygli
og komist í þennan glugga að geta
komist út. Þó ég sé ekki alveg með
tölfræðina á hreinu þá held ég að
við höfum aldrei selt svona marga
leikmenn á svona stuttum tíma
á þessum árum frá því ég tók við.
Það hefur að ég held bjargað okkar
rekstri og ég er mjög ánægður með
það.“
Erum með unga og
efnilega leikmenn
„Á sama tíma hefði ég viljað ver-
ið statt og stöðugt að taka skref til
þess að koma okkur hærra í töfl-
unni. Það var frábært að komast í
bikarúrslit en við viljum vera ofar í
deildinni og viljum ekki vera í fall-
baráttu. Þetta helst allt í hendur að
við höfum verið að selja leikmenn
og lítið komið í staðinn. Það sem
hefur verið að gerast ár frá ári að
rekstur félagsins var ekki í topp-
málum og við þurftum að selja
leikmenn til að rétta okkur af. Ég
held að ef við horfum til framtíðar
að þá er reksturinn núna í góðum
málum og við erum með unga og
efnilega leikmenn hérna sem geta
hjálpað okkur að stíga næstu skref.
Við viljum sem fyrst vera lið sem er
að berjast í efri hluta deildarinnar.
Þannig að þegar ég horfi til baka
að þá er fullt af jákvæðum hlutum
en alltaf eitthvað sem hefði getað
verið gert betur. Ég hef alveg horft
til baka á gagnrýninn hátt á sjálfan
mig og reynt að bæta mig ár frá ári
sem þjálfara og mun halda áfram að
gera það,“ segir Jói Kalli, þjálfari
ÍA, að lokum.
vaks
Byrjunarlið Skagamanna í leiknum gegn Víkingi. Ljósm. ak
Jói Kalli í leik með Skagamönnum. Ljósm úr safni