Skessuhorn - 10.11.2021, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 202116
Skagamenn léku þriðja árið í röð
í efstu deild karla í knattspyrnu í
sumar og enduðu í níunda sæti,
unnu sjö leiki, gerðu sex jafntefli
og töpuðu níu. Þá komust þeir í úr-
slitaleik Mjólkurbikarsins þar sem
þeir töpuðu gegn Víkingi. Blaða-
maður Skessuhorns heimsótti
Jóa Kalla, þjálfara Skagamanna, á
heimili hans á dögunum og fór yfir
tímabilið í heild sinni með hon-
um. Fyrst spurði ég hann hvernig
undirbúningstímabilið hefði geng-
ið og segir hann að það hafi ver-
ið mjög erfitt og hann átti sig á því
þegar hann horfir til baka hversu
mikil áhrif covid ástandið hafi haft
á tímabilið í heild sinni.
„Við náðum eiginlega ekki nein-
um leik á öllu undirbúningstímabil-
inu, hvorki fyrir mót eða í Lengju-
bikarnum þar sem við vorum í
raun með okkar sterkasta lið. Það
hafði gríðarleg áhrif og svo ofan á
það voru allir sparkspekingarnir að
fylgjast með undirbúningsleikjun-
um og höfðu enga trú á okkur út frá
því. En við notuðum mikið af ung-
um strákum sem voru líka oft að
spila út úr stöðu því á tímabili átt-
um við varla miðjumann til að spila.
Undirbúningurinn var erfiður og
krefjandi, við vorum að reyna að
telja mönnum trú um að við værum
búnir að koma öllum hópnum í al-
mennilegt stand og þá myndum við
verða í fínum málum. En svo þegar
deildin byrjar að þá verðum við
fyrir aukaskakkaföllum sem tengja
undirbúningstímabilið inn í þetta
hraðmót sem byrjunin á Íslands-
mótinu er. Við misstum menn í
meiðsli og óþarfa rauð spjöld í byrj-
un sem var olía á eldinn fyrir þessa
sérfræðinga sem voru búnir að spá
okkur slæmu gengi. Það var erfitt
að koma inn í svona mikið mótlæti
svona snemma í mótinu þar sem
mönnum fannst ekkert vera að falla
með okkur.“
Fjórir stórir póstar
sem fóru
Fyrir mót höfðuð þið misst Stefán Teit
og Tryggva Hrafn og í raun enginn
sem kom í staðinn fyrir þá? Var
enginn möguleiki að leysa þeirra stöð-
ur fyrir mót?
„Nei, það var bara þannig að í
fyrra seldum við Hörð Inga fyrir
tímabilið, síðan fer Bjarki Steinn
líka á miðju tímabili og loks Stef-
án og Tryggvi í lok tímabils. Þarna
voru fjórir stórir póstar sem fóru úr
liðinu, þeir stýrðu uppspilinu okk-
ar og voru gríðarlega mikilvægir í
sóknarleiknum og einnig í pressu.
Þetta var gríðarlega mikið áfall en
við þurftum að gera þetta og þetta
er líka það sem við viljum gera.
Við viljum selja leikmenn áfram en
peningarnir sem komu inn á sínum
tíma fyrir þessa leikmenn fóru í það
að stilla reksturinn af hjá félaginu
sem var alveg nauðsynlegt því
annars hefðum við verið í gríðar-
legu basli fjárhagslega. Alex Davey
kom reyndar, en seinna en upphaf-
lega var planað en það var vissulega
erfitt að missa alla þessa hæfileik-
aríku ungu leikmenn. Því þurftu
aðrir ungir leikmenn að stíga upp
eins og Gísli Laxdal, Brynjar Snær
og fleiri strákar sem maður ætlaði
stærra hlutverk en það er erfitt að
setja alla ábyrgðina yfir á þá. En
auðvitað fengu þeir gríðarlega dýr-
mæta reynslu á þessu tímabili og
verða vafalaust betri í framhaldinu.
En grunnurinn hefði þurft að vera
aðeins sterkari áður en við fór-
um inn í tímabilið til að geta spil-
að okkur betur saman með þetta
lið sem varð svo aðalbyrjunarliðið
í síðustu leikjunum í sumar. Ef við
hefðum náð því þá hefði þetta mót
orðið töluvert betra fyrir okkur.“
Ykkur var ekki spáð góðu gengi fyr-
ir mót. Hvernig leit þetta út fyrir þér
þegar mótið hófst og hvert var mark-
miðið?
Jói Kalli svarar að hann hafi alltaf
haft trú á því að þeir yrðu með
betra lið og myndu ná betri árangri
en Keflavík, HK, Fylkir og Leiknir.
Það hefði alltaf verið markmiðið og
þeir hafi haft fulla trú á því að þeir
gætu unnið öll þessi lið, sem svo
kom á daginn og skipt gríðarlega
miklu þegar upp var staðið.
Ef við förum í rólegheitum yfir
tímabilið. Í apríl og maí spilið þið sjö
leiki, sigur gegn HK, tvö jafntefli og
fjögur töp. Sástu þarna fyrir þér að
fallbaráttan yrði ykkar hlutskipti í
sumar?
„Eftir þessa leiki áttaði maður sig
á því að það yrði líklegast þannig.
Það er alltaf þetta hraðmót í byrjun
sem ég hef aldrei skilið en svo spil-
aðist þetta þannig fyrir okkur í lok-
in að þá voru þessir mikilvægu leik-
ir. Við fengum erfiða leiki í byrjun,
enga rosa skelli nema kannski gegn
FH þar sem við misstum menn út
af og Árna Snæ í meiðsli. Það var
kannski upphafið að þessu erfiða
tímabili þar sem við vorum í neðri
hlutanum meira og minna allt
mótið.“
Átti skilið að fá tækifæri
Í júní spilið þið þrjá leiki, eitt jafntefli
og tvö töp. Um miðjan maí meiðist
Árni Snær og í lok júní skiptir þú um
markmann, Dino Hodzic fer út og
Árni Marinó kemur inn. Varstu bú-
inn að hugsa þetta eitthvað og hefðir
þú kannski átt að bregðast við fyrr?
„Ástæðan fyrir því að við tók-
um Dinó inn var sú að hann var
búinn að standa sig mjög vel með
Kára og mikill leiðtogi inn í hópn-
um hjá okkur. Mjög góður í klef-
anum, jákvæð og góð orka í kring-
um hann og frábær á æfingum. Við
vorum búnir að hugsa hann sem
markmann númer tvö á eftir Árna
Snæ en svo lendir Dínó í veseni
þegar hann byrjar að spila, fær á sig
klaufaleg mörk og þetta gekk ekki
alveg upp hjá honum. Árni Marinó
var búinn að vera öflugur á æfing-
um þannig að hann átti alveg skil-
ið að fá tækifærið og við ákváðum
að gefa honum það. Hann er mjög
efnilegur markvörður, auðvitað er
alltaf erfitt að koma inn og spila í
efstu deild en hann gerði það virki-
lega vel. Hann var heilt yfir frábær
á þessu tímabili og ánægjulegt að
hann skyldi hafa tekið þessa stöðu
og neglt hana þegar hann fékk
tækifærið.“
Júlí er á svipuðum slóðum, fjög-
ur töp en sigur á móti toppliði Vals á
þeim tíma. Þarna hefur ekki náðst að
kveikja einhvern neista sem oft kemur
með svona óvæntum sigri?
„Fyrir þennan leik tókum við þá
ákvörðun að setja meiri ábyrgð á
ákveðna leikmenn þar sem minnk-
aðir voru óvissuþættirnir og reyna
að skilgreina okkur á auðveldari
hátt, sérstaklega í varnarleiknum.
Við settum skýrari línur í hlut-
verki hvers leikmanns og það gekk
upp. Ég fann það líka eftir þennan
leik að það varð einhver hugarfars-
breyting. Menn fóru að taka meiri
ábyrgð, létu heyra meira í sér inni á
vellinum sem oft hafði vantað. Það
kom einhver ákveðin trú eftir að
hafa unnið Val, sérstaklega sóknar-
lega og við gátum byggt á því þó
við náðum ekki stöðugleika í liðinu
strax á eftir að þá var hægt að horfa
á þennan leik og byggja upp fyrir
það sem eftir var af mótinu.“
Félagsskiptaglugginn opnaði í
byrjun júlí og spurður hvort ekki
hefði mátt bæta í hópinn segir Jói
Kalli að fyrst og fremst hafi honum
fundist vanta reynslu í vörnina og
það hefði verið leyst með hollenska
varnarmanninum Wout Dröste.
„Annars fannst mér við ekkert
þurfa meira út af því að ég sá alveg
að það bjó meira í þessum mann-
skap heldur en hann hafði náð að
sýna. Ég vildi gefa þessum strákum
tækifæri til þess að sýna það. Við
vorum að fá menn úr meiðslum,
menn voru að komast í betra form
og með meira sjálfstraust þannig að
við vildum bara hafa okkar mann-
skap til að klára þetta mót.“
Trúin var alltaf til staðar
Ágúst var af svipuðu meiði, einn sig-
urleikur gegn HK og fjórir tapleikir.
Þarna var allt á móti ykkur og nánast
allt sem benti til þess að þið væruð að
fara þráðbeint niður í Lengjudeildina.
Hvernig var staðan þarna á mann-
skapnum og var trúin ennþá til stað-
ar hjá ykkur?
Jói Kalli segir að þeir hafi horft
mikið í Valsleikinn og haft þá trú
að þeir gætu unnið hvaða lið sem
er. „Það er samt erfitt að tönnlast
á því þegar tapleikirnir eru orðn-
ir svona margir en það breytti því
ekki að við ákváðum líka sem hópur
að hafa það þannig hvernig sem úr-
slitin yrðu að við ætluðum að mæta
með sama hugarfar á hverja ein-
ustu æfingu. Það átti ekki að vera
þvingað andrúmsloft því það hjálp-
ar engum heldur að gera það sem
við höfum alltaf gert, vera með já-
kvætt hugarfar og vinnuumhverfi
og halda andanum góðum í hópn-
um. Samhliða því þegar þú ert
með jákvætt hugarfar á æfingum
og menn eru tilbúnir að leggja sig
fram þá fann ég það að við vorum
að taka framförum þó úrslitin væru
ekki alltaf góð. Við vorum að bæta
okkur og mér fannst vera stígandi
í því sem við vorum að gera inni á
vellinum. Trúin var alltaf til staðar
hjá mér, ég benti mönnum á að ef
við gætum gert það sem við vorum
að gera vel á æfingum og færa það
inn í leikina að þá gætum við unnið
hvaða lið sem er.“
Er ekki erfitt að halda jákvæðninni
í svona mörgum tapleikjum?
„Það fór auðvitað hellings orka
í það hjá mér að vera jákvæður og
vinna þetta á þessum nótum. Ég er
búinn að vera svo lengi í þessum
fullorðinsbolta og hef alveg reynsl-
una í því. Ég hef haft þjálfara sem
hafa skellt skuldinni yfir á leikmenn
og verið neikvæðir og leiðinlegir og
það hefur verið þvingað andrúms-
loft að mæta á æfingar. Þetta er eina
leiðin sem mér finnst vert að fara,
að vinna á jákvæðan hátt þó mað-
ur vilji auðvitað setja kröfur á sína
leikmenn en það voru ekki margir
sem höfðu trú á okkur.“
„Við viljum vera lið sem er að berjast
í efri hluta deildarinnar“
Spjallað við Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfara Skagamanna, um tímabilið í sumar
Jói Kalli á heimili sínu.
Jói Kalli og fjölskylda fyrir nokkrum árum síðan! Ljósm. úr safni