Skessuhorn - 10.11.2021, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 20218
Atvinnuleysi var
3,5% í september
LANDIÐ: Samkvæmt sam-
antekt Hagstofunnar var árs-
tíðaleiðrétt atvinnuleysi hér á
landi 3,5% í september. Hef-
ur það ekki verið lægra síðan í
mars 2020 þegar það mældist
2,8%. Árstíðaleiðrétt atvinnu-
leysi lækkaði um 1,5 prósentu-
stig á milli mánaða á meðan ár-
síðaleiðrétt hlutfall starfandi jó-
kst um 0,4 prósentustig. Í sept-
ember er áætlað að 26.200
einstaklingar hafi haft óupp-
fyllta þörf fyrir atvinnu (slaki)
sem jafngildir 12,1% af sam-
anlögðu vinnuafli og mögulegu
vinnuafli. Af þeim voru 22,5%
atvinnulausir, 28,4% tilbúnir
að vinna en ekki að leita, 7,5%
í atvinnuleit en ekki tilbún-
ir að vinna og 41,6% vinnulitl-
ir (starfandi í hlutastarfi og vilja
vinna meira). Samanburður við
september 2020 sýnir að hlut-
fall þeirra sem hafa óuppfyllta
þörf fyrir atvinnu hefur lækkað
um 1,4 prósentustig á milli ára.
-mm
Fyrsta kóræfingin
REYKHÓLAHR: Fyrsta
kóræfing kórs Reykhólakirkju
verður á morgun, fimmtudag,
kl. 20.30 í Reykhólakirkju. Ætl-
unin er að hittast og fara yfir
starf vetrarins, festa æfingatíma
og syngja. Ingimar Ingimars-
son, kórstjóri, hvetur alla unga
sem aldna og öll kyn sem áhuga
hafa á skemmtilegum félagsskap
og söng að mæta og vera með.
-vaks
Aflatölur fyrir
Vesturland
30. nóvember til 5. nóvember.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 4 bátar.
Heildarlöndun: 8.038 kg.
Mestur afli: Emilía AK-57:
2.557 kg. í tveimur löndunum.
Arnarstapi: 2 bátar.
Heildarlöndun: 61.095 kg.
Mestur afli: Kristinn HU-812:
47.614 kg. í fjórum löndunum.
Grundarfjörður: 16 bátar.
Heildarlöndun: 816.710 kg.
Mestur afli: Helga María RE-
1: 142.053 kg. í einni löndun.
Ólafsvík: 15 bátar.
Heildarlöndun: 141.342 kg.
Mestur afli: Brynja SH-236:
29.229 kg. í fjórum löndunum.
Rif: 10 bátar.
Heildarlöndun: 230.201 kg.
Mestur afli: Örvar SH-777:
100.070 kg. í einni löndun.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 12.590 kg.
Mestur afli: Bára SH-27: 7.180
kg. í sex löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Helga María RE-1 GRU:
142.053 kg. 3. nóvember.
2. Örvar SH-777 RIF: 100.070
kg. 31. október.
3. Akurey AK-10 GRU:
93.061 kg. 3. nóvember.
4. Sóley Sigurjóns GK-200
GRU: 80.988 kg. 3. nóvember.
5. Sighvatur GK-57 GRU:
74.590 kg. 3. nóvember.
-fr
Enn er varað við
kræklingsáti
HVALFJ: Matvælastofn-
un varar áfram við tínslu og
neyslu á kræklingi úr Hval-
firði þar sem DSP þör-
ungaeitur greindist yfir við-
miðunarmörkum þegar sýni
voru tekin 22. október sl. DSP
þörungaeitur í kræklingi get-
ur valdið kviðverkjum, niður-
gangi, ógleði og uppköstum.
Einkenni koma fram fljót-
lega eftir neyslu en líða hjá á
nokkrum dögum. -mm
Árgangamóti
ÍA frestað
AKRANES: Árgangamóti ÍA
sem átti að fara fram laugar-
daginn 20. nóvember næst-
komandi hefur verið frestað
vegna óviðráðanlegra orsaka.
Þetta er annað árið í röð sem
mótinu er frestað en því var
frestað í fyrra vegna kórónu-
veirufaraldursins. Næsta ár-
gangamót er áætlað laugar-
daginn 12. nóvember á næsta
ári. -vaks
Ítreka lokun
gönguleiðar
AKRANES: Skólastjórnend-
ur Brekkubæjarskóla sendu í
gær ítrekun til foreldra barna
í skólanum um göngustíginn
sem liggur frá Merkigerði,
milli sjúkrahúss og Kirkju-
hvols, að Brekkubæjarskóla.
Borið hefur á því að börnin
séu að fara þessa gönguleið þó
hún sé lokuð og er þessi lok-
un til að tryggja öryggi þeirra
og annarra. Verið er að hækka
þakið á sjúkrahússálmunni
sem er næst Brekkubæjarskóla
og því mikið um framkvæmd-
ir sem geta verið hættulegar
gangandi vegfarendum. -vaks
Kosinn
formaður KÍ
LANDIÐ: Magnús Þór Jóns-
son, skólastjóri í Seljaskóla
og fyrrum skólastjóri Grunn-
skóla Snæfellsbæjar, hafði sig-
ur í formannskjöri í Kennara-
sambandi Íslands. Úrslitin
voru tilkynnt í gær. Magn-
ús hlaut 41,6% atkvæða,
Anna María Gunnarsdótt-
ir, varaformaður sambands-
ins, varð önnur með 32,5%,
Hanna Björg Vilhjálmsdótt-
ir, kennari í Borgarholts-
skóla, hlaut 16,2% og Heim-
ir Eyvindarson, deildarstjóri
í Grunnskólanum í Hvera-
gerði, 8,3%. Rúmlega 60 pró-
sent félagsmanna greiddu at-
kvæði, 6.676 af 11.068. At-
kvæðagreiðslan hófst á mánu-
dag fyrir viku og lauk klukk-
an tvö í gær. Formannsskipti
í Kennarasambandinu verða á
þingi þess í apríl á næsta ári.
Magnús Þór tekur þá við emb-
ættinu af Ragnari Þór Péturs-
syni og verður fjórði formaður
þess frá upphafi. -mm
Á fundi skipulags- og
byggingarnefndar Borgarbyggðar
5. nóvemer síðastliðinn voru lögð
fram tilboð sex hönnunarstofa í
endurskoðun aðalskipulags Borgar-
byggðar fyrir árin 2010-2022. Allar
þessar hönnunarstofur höfðu kynnt
tillögur sínar á fundi í Hjálmakletti
14. október síðastliðinn. Tilboð
voru svo opnuð í verkið næsta dag.
Stofurnar sem buðu í verkið voru
Landlínur, VSÓ, Verkís, Landmót-
un, Alta og Efla.
Á fundi nefndarinnar síðast-
liðinn föstudag þakkaði skipulags-
og byggingarnefnd stofunum fyr-
ir kynningarnar. Samkvæmt heim-
ildum Skessuhorns reyndist til-
boð Landlína lægst í verkið, en á
það mun hins vegar ekki reyna því
formgalli reyndist á framkvæmd
útboðsins. Í fundargerð skipulags-
og byggingarnefndar segir: Í kjöl-
far þess að tilboð í vinnu við gerð
aðalskipulags voru opnuð bár-
ust athugasemdir frá Samtökum
iðnaðarins, f.h. eins bjóðanda, um
að sveitarfélaginu bæri að bjóða
vinnuna út í almennu útboði. „Afl-
að var álits Ríkiskaupa á réttmæti
athugasemdanna og í kjölfar þess
tekur skipulags- og byggingarnefnd
ákvörðun um að hafna öllum til-
boðum og bjóða verkið út í al-
mennu útboði,“ segir í bókun
nefndarinnar.
mm
Þjóðskrá hefur tekið saman upplýs-
ingar um fasteignaviðskipti á þriðja
ársfjórðungi þessa árs. Seldar voru
1.562 fasteignir til þess hóps sem
er að kaupa sína fyrstu fasteign á
lífsleiðinni. Að meðaltali greiddu
fyrstu kaupendur 45,4 milljón-
ir króna fyrir 96,9 fermetra íbúð,
eða sem nemur 469 þúsund krón-
um á hvern fermetra. „Í dag greiða
fyrstu kaupendur að meðaltali fjór-
um milljónum króna meira fyr-
ir sína fyrstu íbúð en fyrir ári síð-
an, en meðalkaupverð hefur hækk-
að úr 41,4 í 45,4 milljónir króna.
Á síðastliðnum ársfjórðungi var
hækkunin um 700 þúsund krón-
ur,“ segir í samantekt Þjóðskrár.
Mest greiða kaupendur fyrir sína
fyrstu eign á höfuðborgarsvæðinu,
um 51,5 milljónir króna fyrir 91,8
fermetra íbúð. Til samanburðar er
hagkvæmasta verðið á Austurlandi
þar sem fyrstu kaupendur greiða að
meðaltali 28 milljónir króna fyr-
ir 140 fermetra íbúð. Á þriðja árs-
fjórðungi var hlutfall fyrstu kaup-
enda lægst á Norðurlandi vestra
eða um 25% allra kaupenda. Hæst
var hlutfallið á Vestfjörðum eða um
45%. Þó er vakin athygli á að frem-
ur fáir samningar geta legið að baki
viðskiptum í einstaka landshlutum
á hverjum ársfjórðungi.
Fjöldi fyrstu kaupenda hefur ver-
ið yfir 1.500 frá þriðja ársfjórð-
ungi 2020 en fjöldi fyrstu kaupenda
hafði áður hæst farið í 1.427 á öðr-
um ársfjórðungi 2007. mm
Undirbúningskjörbréfanefnd Al-
þingis hefur birt drög að málsat-
vikalýsingu sem nefndin hefur afl-
að sér vegna framkvæmdar al-
þingiskosninga í Norðvesturkjör-
dæmi og talningu atkvæða. Í lýs-
ingunni er farið í afar löngu máli
yfir rannsókn nefndarinnar og þá
sem tengdust framkvæmd kosning-
anna í kjördæminu. Drögin voru
birt á vef Alþingis til að hlutaðeig-
andi gætu gert athugasemdir við
það sem þar kemur fram. Einhver
bið er enn á að vinnu nefndarinnar
ljúki. Fundir hennar eru orðnir 24
talsins auk vettvangsferðar sem far-
in var í Borgarnes fyrir um þrem-
ur vikum. Formaður nefndarinnar,
Birgir Ármannsson alþingismaður,
sagði í viðtali við mbl.is 26. október
að nefndin væri þá í lokasprettinum
í gagnaöflun. Í viðtali við mbl.is í
gær 9. nóvember segir Birgir hins
vegar að hann geti ekkert fullyrt
um hver staðan verði í lok þessar-
ar viku. Hann tekur þó fram: „Við
erum auðvitað að reyna að færa
okkur í átt að niðurstöðu, en það
er alveg ljóst að það eru þó nokkrar
umræður eftir í nefndinni og ekki
víst hvaða tíma það tekur.“
Nú þegar sex vikur eru liðnar frá
kosningum kemur fram á visi.is að
samkvæmt einum nefndarmanni
væri nefndarfólk orðin nokkuð
sannfært um að hún þurfi að fara í
aðra vettvangsferð í Borgarnes því
nýlega hafi hún fengið upplýsingar
í hendur sem gefi tilefni til að skoða
málið betur. Það er því ljóst að viku
eftir viku er verið að lengja tím-
ann sem þessi vinna tekur og óvíst
með öllu hvenær niðurstaða fáist í
þessari rannsókn.
frg
Formgalli reyndist á útboði um
endurskoðun aðalskipulags
Fyrstu kaupa íbúðir fjórum milljónum
króna dýrari en fyrir ári
Frá fundi undirbúningskjörbréfanefndar í Borgarnesi í október. Ljósm. mm.
Undirbúningskjörbréfanefnd
ætlar í aðra vettvangsferð