Skessuhorn - 10.11.2021, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 202112
Í dag hefjast framkvæmdir við
Faxatorg á Akranesi og verður um-
ferð um þessi fjölförnu gatnamót
því takmörkuð. Ástæðan er sú að nú
er hafin vinna við tengingu nýrra
lagna sem annars vegar liggja undir
nýrri Faxabraut og hins vegar með-
fram Þjóðbraut með tengingum við
Dalbrautarreit. Hringtorgið verður
á næstu vikum endurgert samhliða
þessum lagnaframkvæmdum. Nú í
fyrsta áfanga verður grafin lagna-
skurður gegnum akbraut sunnan
við Faxatorg, samanber meðfylgj-
andi mynd frá Akraneskaupstað.
„Vegfarendur á leið um Stillholt
og Skagabraut komast ekki gegn-
um torgið í átt að Garðabraut eða
Þjóðbraut. Á sama tíma verður
opnað fyrir umferð um Faxabraut.
Vegfarendur eru beðnir að fara um
svæðið með varúð, því enn er verið
að vinna á svæðinu. Þetta er fyrsti
áfangi í lokun á Faxatorgi,“ segir í
tilkynningu frá tæknideild Akra-
neskaupstaðar. Þá segir að á næst-
unni verði meira um lokanir við
Faxatorg, en það kynnt nánar þegar
fyrir liggur hvernig að þeim verður
staðið. mm
Matvælastofnun barst tilkynning
frá Arnarlax mánudaginn 30. ágúst
um gat á nótarpoka einnar sjókví-
ar Arnarlax við Haganes í Arnarf-
irði. Gatið uppgötvaðist við neðan-
sjávareftirlit og er viðgerð nú lokið.
Samkvæmt upplýsingum Arnarlax
var gatið á um tveggja metra dýpi
og reyndist vera um það bil 2x2
metrar að stærð. Í þessari tilteknu
kví voru um 120.000 laxar með
meðalþyngd 0,8 kg. Neðansjávar-
eftirlit var áður framkvæmt mánuði
áður og var nótarpokinn þá heill.
„Eftirlitsmaður Matvælastofnunar
hefur skoðað aðstæður og viðbrögð
fyrirtækisins og er atvikið til með-
ferðar hjá stofnuninni. Arnarlax
lagði út net í samráði við Fiskistofu
til að kanna hvort strok hafi átt sér
stað. Netanna var vitjað síðdegis á
mánudag og þriðjudag. Á mánudag
komu tveir fiskar í netin sem reynd-
ust að öllum líkindum sjóbirtingar
og á þriðjudag veiddist einn lax sem
var rúm 2 kg. Fiskarnir verða send-
ir til Hafrannsóknastofnunar til
greiningar.“
Þá segir í uppfærðri frétt Mat-
vælastofnunar um sama mál að við
DNA greiningu hafi verið hægt að
tengja strokulaxinn við hæng með
kóða E3 en hrogn undan þeim
hæng fóru til klak- og seiðastöðvar
Arnarlax að Gileyri við Tálknafjörð
10. júlí 2019. Þaðan voru seiðin
flutt í fjórum ferðum í sjókvíar
við Haganes á tímabilinu 17. sept-
ember til 4. október 2020. Seiðin
voru þá á bilinu 95 til 135g og voru
sett í kvíar 5, 11, 12 og 13. „Það er
því hægt að fullyrða að laxinn sem
veiddist í net við Haganes eftir að
gat kom á kví nr. 11 var sannarlega
úr þeirri kví. Stærð strokulaxins
reyndist vera 51,5 cm og 1.300g,“
segir í frétt Mast um málið.
mm
Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um
320 á tímabilinu 1. nóvemer 2020
til sama dags í ár. Hafa þeir í fyrsta
skipti rofið 17 þúsund íbúa múr-
inn, eru nákvæmlega 17.025. Af
einstökum sveitarfélögum fjölgaði
hlutfallslega langmest í Helgafells-
sveit á Snæfellsnesi þar sem íbúa-
fjöldinn hækkaði um 15, eða
21,5%. Þar búa nú 79. Það er jafn-
framt mesta fjölgun á landsvísu.
Íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi
fækkaði hins vegar mest allra, eða
um 15% og eru þeir nú 102 tals-
ins. Íbúum fjölgaði á Akranesi um
188 á árinu, eða um 2,5% og nálg-
ast nú átta þúsund íbúa markið,
eru í dag 7.853. Í Hvalfjarðarsveit
fjölgaði um 43 íbúa sem jafngild-
ir 6,7% fjölgun. Þar búa nú 687. Í
Borgarbyggð fjölgaði um 96 íbúa
sem jafngildir 2,5% fjölgun og eru
íbúar nú 3.861. Í Dalabyggð fjölg-
aði íbúum um 36, eða um 5,8% og
eru nú 662 búsettir þar. Í Stykkis-
hólmsbæ fjölgaði um tíu manns,
eða um 0,8%, og eru íbúar nú
1207. Fækkun var í Grundarfirði
um 37 íbúa sem jafngildir -4,3%,
eru nú 883. Í Snæfellsbæ fækkar
lítillega, eða um 9 íbúa, sem jafn-
gildir hálfu prósenti. Íbúar í Snæ-
fellsbæ eru nú 1679. Loks í Skorra-
dal fækkaði íbúum um þrjá, eða um
4,6%, eru nú 62.
Íbúum fjölgaði í öllum landshlut-
um á árinu. Hlutfallslega var fjölg-
unin mest á Suðurlandi eða um
3,2% og á Suðurnesjum um 2,5%.
Vesturland er í þriðja sæti með
1,9% fjölgun.
mm
Í vinnu við endurskoðun á stjórn-
unar- og verndaráætlun Þjóð-
garðsins Snæfellsjökuls er víðtækt
samráð haft við hagsmunaaðila. Á
vef Umhverfisstofnunar er fjallað
um einn mikilvægasta hagsmuna-
hópinn, þ.e. unga fólkið í Snæfells-
bæ. „Einn hópur hagsmunaaðila er
unga fólkið í Snæfellsbæ sem hafði
margt fram að færa um stefnumót-
un og framtíðarsýn þjóðgarðsins á
fundum sem Umhverfisstofnun hélt
með þeim nýlega. Fyrsti fundurinn
var með nemendum í Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga þar sem hug-
myndavinnan var frjó og skemmti-
leg. Sömu sögu má segja frá Grunn-
skóla Snæfellsbæjar þar sem um 20
nemendur í 5.-10 .bekk tóku þátt í
Ólafsvík og allir nemendur í Lýsu-
hólsskóla.“
Þessir samráðsfundir eru hugs-
aðir sem eins konar barnaþing um
þjóðgarðinn en samkvæmt 12. gr.
Barnasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna er réttur barna að láta skoð-
anir sínar í ljós í málefnum sem þau
varðar og á það við um stefnumót-
un þjóðgarða. Fundirnir á Snæfells-
nesi voru fyrstu samráðsfundir með
börnum sem Umhverfisstofnun
stendur fyrir og eru liður í að bæta
samráð og samstarf við almenning
um náttúruverndarmál. Samráðs-
fundir hafa verið haldnir með ýms-
um hagsmunaaðilum í tengslum við
stjórnunar- og verndaráætlun þjóð-
garðsins og þar á meðal íbúafundur.
Nemendur skólanna voru spurð-
ir að því hvort þeim fyndist mik-
ilvægt að taka þátt í verkefni eins
og þessu, að móta stefnu og fram-
tíðarsýn þjóðgarðsins, og voru þeir
einhuga um að það væri mikilvægt.
Margar góðar hugmyndir og sjón-
armið komu fram á fundunum sem
munu nýtast vel í áætlanagerðina,
segir í frétt Umhverfisstofnunar.
mm/ Ljósm. Umhverfisstofnun
Framkvæmdir hafnar
við Faxatorg á Akranesi
Gat kom á sjókví
í Arnarfirði
Svipmynd frá vinnunni í Lýsuhólsskóla.
Samráð haft við ungmenni um
Þjóðgarðinn Snæfellsjökul
Nemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í hugmyndavinnu um verkefnið.
Á Akranesi fjölgaði íbúum um 188 síðustu tólf mánuði, í Borgarbyggð fjölgaði um 96, í Hvalfjarðarsveit um 43, Í Dalabyggð
um 36, Í Helgafellsveit um 15 og í Stykkishólmi um 10.
Íbúum á Vesturlandi fjölgaði
um 320 síðustu tólf mánuði