Skessuhorn


Skessuhorn - 10.11.2021, Síða 14

Skessuhorn - 10.11.2021, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 202114 Í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti hefur verið opnuð ljósmyndasýn- ing Gunnars Freys Gunnarsson- ar ljósmyndara. Í sýningarskrá seg- ir: „Sýningin fjallar um þróun, um breytingu og flæði sem marka um- skipti í hugmyndafræði nútímans – sýnir heim sem fer frá því að vera heltekinn af heimsfaraldri en stefn- ir til nýrra tímamóta. Myndirnar endurspegla sköpun, þróun og nýtt upphaf. Þær eru teknar víða um land en nokkrar sýna nærtæk form og landslag af Austurlandi.“ „Gunnar Freyr er fæddur og uppalinn í Danmörku en flutti til Íslands árið 2015 með þann draum að gera náttúruljósmynd- un að atvinnu. Hann stundaði nám við Ljósmyndaskólann í Reykjavík árið 2016 og hefur síð- an lagt rækt við ástríðu sína fyr- ir íslensku landslagi. Hann hefur starfað sem atvinnuljósmyndari síðustu fimm ár og hefur unun af að upplifa Ísland gegnum mynda- vélarlinsuna og deila þeirri upp- lifun með öðrum gegnum magn- aðar ljósmyndir af landi og þjóð. Myndir Gunnars hafa birst víða um heim og ein af þeim viður- kenningum sem hann hefur hlot- ið er að vera norrænn sendiherra Canon.“ Sýningin verður uppi þangað til í byrjun ársins 2022, er sölu- sýning og allir velkomnir að líta við. Einnig er hægt að panta myndir af heimasíðunni Gunnars Freys; https://www.icelandicex- plorer.com mm Síðastliðinn mánudag, 8. nóvem- ber, var Alþjóðlegur dagur gegn einelti. Ingunn Ríkharðsdóttir leik- skólastjóri á Garðaseli á Akranesi setti saman smá pistil í tilefni dags- ins um það hvernig starfsmenn á leikskólanum vinna með verkefnið Vináttu (Barnaheill). Í pistlinum vísar Ingunn í Vináttuverkefnið. Gefum henni orðið, þar sem hún byrjar á að vísa í Júlíu Rafnsdóttur verkefnastjóra hjá Barnaheill: • „Eins og lítið sár sem hleyp- ir inn sýkingu sem veldur bólgu… • Eins og lítil rifa á lakki bíls sem hleypir inn vatni og súrefni sem veldur ryði sem breiðist út… • Eins og eggjaskurn sem brotnar og innihaldið flæð- ir út… • Eins og dropinn sem holar steininn… Þannig er eineltið. Það rífur varnirnar, það býr til berskjöldun. Það brýtur lakkið, hleypir inn sýk- ingu og sjálfsmyndin flæðir út. Ein- elti er oft fyrsti dropinn í langri áfalla- og veikindasögu einstak- lings. Eineltið getur verið upp- hafspunktur í langri sorgarsögu.“ Þannig ritar Júlía Rafns dóttir, verk- efnastjóri Barnaheilla. Dagurinn 8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn ein- elti í samfélaginu. Einelti má aldrei líðast í neinni mynd og er t.d. brot á Barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna en þar er kveðið á um vernd allra barna gegn ofbeldi og að ekki skuli mismuna börnum eftir stöðu þeirra. Útilokun, niðurlæging og að fá ekki að tilheyra hópnum er einelti og okkur ber skylda til að vinna gegn því, aðstoða þá sem í því lenda og veita þeim stuðning. Þegar samkenndin víkur, augum er lokað og vandamálið hunsað – þá erum við að bregðast. Vináttuverkefni Barnaheilla Þessi forvarnarvinna þarf að byrja í leikskólum því einelti eða sam- skiptamynstur, sem getur leitt til eineltis eða útilokunar, má oft rekja niður í leikskólann. Því er mikil- vægt að leikskólinn byggi upp ör- uggt félagslegt umhverfi og jákvæð- an skólabrag, þar sem einelti fær ekki að þróast. Leikskólar á Akra- nesi hafa innleitt Vináttuverkefni Barnaheilla, sem er forvarnarverk- efni með sérsniðnu námsefni, sem hentar vel þroska leikskólabarna. Námsefnið er í máli og myndum, söng og sögum, þar sem börnin fá tækifæri til að æfa sig í sértækum aðstæðum og máta eigin tilfinn- ingar og upplifun og segja frá. Verkefninu fylgir stór og hlýleg- ur bangsi, Blær, sem verður ígi ldi vináttunnar í hópnum og þá fá öll börn að gjöf sinn eigin Blæ, sem fylgir þeim í gegnum leikskólann, er vinur þeirra og veitir traust og huggun ef þarf. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á fjórum gildum: • Umburðarlyndi – að viður- kenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans • Virðingu – að viðurkenna og taka til tillit til barnanna í hópnum og vera góður fé- lagi • Umhyggju – að sýna öllum börnum áhuga, samkennd, samlíðan og hjálpsemi. • Hugrekki – að þora að láta heyra í sér og geta sett sér mörk. Að vera hugrakkur og góður félagi sem bregst við óréttlæti. Hlutverk og ábyrgð hinna fullorðnu Foreldrar barna og hinir full- orðnu eru fyrirmyndir og hafa ríka ábyrgð þegar kemur að því að móta þá grunnþætti í félagsþroska barna sem gerir þau að góðum fé- lögum. Foreldrar eru mikilvægir samherjar skólanna og saman og samstíga geta þessir aðilar náð miklum árangri. Uppbyggjandi og jákvæð samskipti eru lykilþættir í góðri samvinnu. Aðgát skal höfð í nærveru sál- ar er orðatiltæki sem inniber góð gildi. Því skiptir máli að hinir full- orðnu séu góðar fyrirmyndir barn- anna í orði og verki og þeir gæti að því hvernig þeir tala um önn- ur börn og foreldra þeirra í ná- vist barna. Það getur skipt máli að koma á sameiginlegum hefð- um með öðrum foreldrum og leik- skólanum varðandi afmælisdaga barnanna, heimboð og annað, sem leitt getur til útilokunar barns eða barna. Foreldrar þurfa að hlusta á börn sín, hvetja þau til að segja frá og styðja þau og leiðbeina þegar þess þarf. Þá þarf líka að hvetja börn til að sýna hugrekki og styðja félaga sína sem eru í vanda. Börnin okkar Öll börn skipta máli og félagsleg líðan þeirra er ein af grunnforsend- um í skólastarfi og í samfélaginu okkar. Öll börn eru okkar börn – höfum það hugfast og tökum ábyrgð. Ingunn Ríkharðsson, skólastjóri á Garðaseli Ljósmyndasýning Gunnars Freys í Snorrastofu Má ég líka vera með? – Í tilefni dags gegn einelti Það þarf að hvetja börn til að sýna hugrekki og styðja félaga sína sem eru í vanda. Vinátta Barnaheilla https://www.barnaheill.is/is/forvarnir/vinatta Ingunn Ríkharðsdóttir, skólastjóri á Garðaseli

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.