Skessuhorn - 10.11.2021, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Spurningakeppnin Bókaormar
Brekkubæjarskóla er orðin fastur
liður í skólastarfi í 4. – 7. bekk í
Brekkubæjarskóla á Akranesi. Í
ár var þetta í níunda skiptið sem
keppnin fór fram. Lestur yfir sum-
artímann er jafn mikilvægur og
lestur að vetri til og er þetta einn
liður í því til að hvetja til sumarlestr-
ar. Það er gert þannig að nemend-
ur í 3. – 6. bekk fá að vori lista yfir
þær bækur sem liggja til grundvallar
í spurningakeppninni um haustið og
þeir sem áhuga hafa geta því byrj-
að að undirbúa sig strax fyrir kom-
andi keppni. Gott samstarf er við
Bókasafn Akraness og er bókalist-
inn ásamt eintökum af bókunum að-
gengilegur þar á meðan skólasafnið
er lokað yfir sumarið. Þegar þess-
ir sömu nemendur mæta í skólann
að hausti í 4. – 7. bekk, halda þeir
áfram að lesa og keppnin hefst upp
úr miðjum október eða eftir vetrar-
frí.
Úrslitaviðureignin að þessu sinni
var á milli liða 7. bekkjar og 4.
bekkjar. Keppt er um farandbikar
og fær árgangurinn nafnið sitt árit-
að á bikarinn. Einnig fær vinnings-
liðið í ár að velja 5-10 bækur sem
verða keyptar inn fyrir skólasafnið.
Úrslitin urðu þau að 7. bekkur vann
með fimm stiga mun. Liðið skipuðu
Dagný Bára Guðjónsdóttir, Iðunn
Eybjörg Halldórsdóttir, Marinó
Bjarki Brynjarsson og Anna Guðný
Gautadóttir, sem var leikari hópsins.
Lestur er bestur. Áfram bóka-
ormar!
Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir,
skólasafni Brekkubæjarskóla
Framkvæmdir standa nú yfir á
bílaplani við Íþróttamiðstöðina í
Stykkishólmi en þar mun rísa raf-
hleðslustöð fyrir bíla. Frá þessu
segir á vef Stykkishólmsbæjar en
Stykkishólmsbær hefur samið við
Ísorku um að reisa 150 kílóvatta
hraðhleðslustöð á umræddu svæði.
Bæjarstjóra var falið af bæjarráði að
vinna að því að hraða uppbyggingu
hraðhleðsluinnviða í Stykkishólmi
og stuðla að því að 150 kílóvatta
stöð yrði sett upp í bænum.
Á fundi skipulags- og
byggingarnefndar voru lagðar
fram tillögur að staðsetningum á
rafhleðslustöðvum fyrir bíla í landi
bæjarins og taldi nefndin staðsetn-
ingu á bílaplani við Íþróttamið-
stöð Stykkishólms fremsta kost.
Unnið er nú að uppsetningu í
samræmi við tillögur nefndarinn-
ar. Stöðin verður þannig staðsett
að hægt er að aka að henni beggja
vegna og hlaða tvo bíla í einu.
Gert er ráð fyrir að tveimur stöðv-
um verði bætt við í nánustu fram-
tíð. vaks/ Ljósm. stykkisholmur.is
Liðin sem kepptu til úrslita. 4. bekkur – rauðir, var skipað: Helgu Lind, Kötlu Lind,
og Karen Önnu. Skjöld Þór leikara hópsins vantar á myndina. Vinningslið 7. bekkj-
ar – svartir var skipað: Marinó Bjarka, Iðunni Eybjörgu og Dagnýju Báru. Önnu
Guðnýju leikara vantar á mynd.
Bókaormar Brekkubæjarskóla 2021
Lestur er bestur!
Hraðhleðslustöð rís
í Stykkishólmi
OPNUNARTÍMI
ALLA VIRKA DAGA 13-18
HELGAR 11-15
Hafþór Blær
Hafþór Blær
HANDKLÆÐI MEÐ NAFNI
3.790,- 2.990,-
SPORTPOKI MEÐ MERKINGU
SMIÐJUVÖLLUM 32 •AKRANESI
WWW.DOTARI .IS•WWW.SMAPRENT.IS
SmáprentSmáprent
STÆRÐ: 70 X 140 CM STÆRÐ: 29 X 26 CM
SMIÐJUVÖLLUM 32 •AKRANESI
WWW.DOTARI .IS•WWW.SMAPRENT.IS
NÝJAR VÖRUR