Feykir


Feykir - 18.08.2021, Blaðsíða 5

Feykir - 18.08.2021, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F 4. deild karla | Kormákur/Hvöt – Hvíti riddarinn 3–1 Hvíti riddarinn mátaður eftir góðan endaleik heimamanna Lið Kormáks/Hvatar tryggði endanlega sæti sitt í úrslitakeppni 4. deildar með sterkum sigri á helsta keppinaut sínum um annað sæti í D-riðlinum. Gestirnir í Hvíta riddaranum komust yfir snemma í síðari hálfleik en heimamenn létu það ekki slá sig út af laginu og blésu til sóknar sem skilaði þremur mörkum áður en yfir lauk. Lokatölur 3-1. Það var markalaust í hálfleik en Ægir Örn Snorrason kom þeim hvíta yfir á 50. mínútu og hleypti spennu í leikinn. Akil De Freitas jafnaði leikinn aðeins fimm mínútum síðar og á 70. mínútu kom Viktor Ingi Jónsson Húnvetningum í bílstjórasætið. Akil De Freitas skellti svo kreminu á kökuna á 80. mínútu og sigur heimamanna í höfn. Fyrir leikinn var reyndar ljóst að allt þurfti reyndar að fara handaskolum hjá liði Kormáks/ Hvatar ef það átti að verða af sætinu í úrslitakeppninni. Liðið hefði þurft að tapa fyrir Hvíta riddaranum og síðan í loka- umferðinni fyrir Samherjum sem sitja í neðsta sæti riðilsins. Miðað við flugið á Húnvetn- ingum var það aldrei að fara að gerast. Síðasti leikurinn Kormáks/ Hvatar í riðlakeppninni fer fram næstkomandi laugardag þegar þeir kappar mæta galvaskir á Hrafnagilsvöll í Eyjafirði þar sem Samherjar taka á móti þeim. Úrslitakeppnin hefst síðan föstudaginn 27. ágúst. /ÓAB 3. deild karla | Tindastóll – Dalvík/Reynir 2–2 Dýrmæt stig töpuðust í uppbótartíma Lið Kormáks/Hvatar hefur spilað vel í sumar. MYND: AÐDÁENDASÍÐA KORMÁKS Það var hart barist á Sauðárkróksvelli 12. ágúst sl. þegar sameiginlegt lið Dalvíkur og Reynis Árskógsströnd mætti heimamönnum í Tindastóli í 3. deildinni. Bæði lið þráðu sigur; Stólarnir til að safna stigum í botnbaráttunni en gestirnir þurftu stigin ef þeir ætluðu að eiga raunhæfan möguleika á að keppa um sæti í 2. deild. Það fór svo að liðin sættust á jafntefli en D/R jafnaði leikinn í uppbótartíma. Lokatölur 2-2. Gestirnir hertóku bæði stúkuna og völlinn og höfðu öll völd fyrsta hálftímann, ákaft studdir af fjölmennum dimmrödduð- um drengjakór sem söng og kvartaði jöfnum kveinandi röddum. Lið D/R virtist fullt sjálfstrausts, var á undan í alla bolta og spilaði boltanum mun betur en heimamenn sem virkuðu daufir og ráðalausir. Gunnlaugur Ingvarsson kom Eyfirðingunum yfir strax eftir níu mínútur en þá kom ágæt sending inn fyrir vörn Stólanna og Gunnlaugur nýtti sér hik í vörn heimamanna og skoraði af öryggi. Jöfnunarmark Stólanna á 29. mínútu kom eins og blaut tuska í andlit gestanna sem höfðu haft öll völd fram að því. Þá rataði frábær hornspyrna Konna beint á kollinn á Marko Zivkovic sem hamraði boltann í markið. Stólarnir náðu síðan frábærri skyndisókn þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálf- leik, unnu boltann og komu honum út á vinstri kant þar sem kantarinn sá gott hlaup hjá Pape. Sendingin var pottþétt og Pape slapp inn fyrir og skoraði af öryggi. Staðan 2-1 í hálfleik. Í síðari hálfleik vörðust heimamenn eins og ljón en tókst hreinlega aldrei að láta boltann ganga innan liðsins svo nokkru næmi. Það leit allt út fyrir að heimamenn næðu að krækja í stigin dýrmætu, enda gestirnir orðnir verulega örvæntingar- fullir þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Jöfnunar- markið kom eftir að gestirnir unnu boltann inni á vallarhelm- ingi Stólanna, náðu góðri send- ingu á fjærstöng þar sem Þröstur Jónasson var einn og óvaldaður og náði frábærum skalla á nær- stöng sem Atli átti ekki roð í. Það féll því bara eitt stig í pottinn hjá Stólunum og ekki í fyrsta skiptið í sumar sem stig tapast á lokamínútum leikja liðsins. Stólarnir eru nú með 14 stig líkt og lið ÍH sem þeir heimsækja einmitt í næstu umferð. Botnlið Einherja vann um halgina góðan sigur á liði Augnablika og eru aðeins stigi neðar en Stólar og ÍH. Fallbar- áttan er því æsispennandi. /ÓAB Pape skallar frá marki Stólanna eftir hornspyrnu gestanna. MYND: ÓAB Húni.is segir frá því að Knattspyrnudeild Fjölnis og Venezia FC hafi náð sam- komulagi um að 17 ára gamall strákur frá Hvammstanga, Hilmir Rafn Mikaelsson, muni ganga til liðs við ítalska félagið á lánssamning. Samn- ingurinn er til eins árs en að lánstíma loknum hefur Venezia rétt á að kaupa Húnvetninginn efnilega. Hilmir Rafn kemur úr öflugu unglingastarfi Fjölnis og í frétt Húnahornsins segir að hann hafi meðal annars verið hluti af hinum sterka 3. flokki sem varð bikarmeistarar á síðasta ári og hafnaði í 2. sæti í Íslandsmótinu. „Hilmir vakti töluverða athygli á sér fyrr á þessu ári þegar hann hlaut eldskírn sína með meistaraflokki og hefur stimplað sig vel inn með fjórum mörkum í 13 leikjum. Þar að auki skoraði hann tvö mörk í tveimur leikjum með U19 landsliði Íslands fyrr í sumar.“ /ÓAB Húnvetnskur knattspyrnumaður í Seríu A Hilmir Rafn til Feneyja Hilmir Rafn fagnar marki með liði Fjölnis. MYND: FB/Fjölnir/Lars Davíð Fákaflug 2021 var haldið sunnudaginn 15. ágúst á félagssvæði Hestamanna- félagsins Skagfirðings á Sauðákróki. Mótið tókst afar vel og sáust fínar einkunnir. Hnokkabikarinn í ár hlaut Guðmar Freyr Magnússon en bikarinn er veittur fyrir árangur í sem flestum greinum, gefinn af Þúfum, Gísla og Mette. Guðmar sigraði bæði í A- flokki og B-flokki ungmenna á Eld frá Íbishóli og Rosa frá Berglandi 1 og varð í þriðja sæti í gæðingatölti á Ljósvík- ingi frá Steinnesi. Mylla frá Hólum og Unnur Rún Sigur- pálsdóttir sigruðu í B-flokki og Lokbrá frá Hafsteinsstöðum og Skapti Steinbjörnss. sigruðu í A-flokki. Hér má sjá sigurvegarana í hverjum flokki fyrir sig. Sjá nánar á Feykir.is. /SMH B flokkur 1. Mylla frá Hólum og Unnur Sigurpálsdóttir 8,58 B-flokkur áhugamanna 1. Blesi frá Skjólgarði og Steingrímur Magnússon 8,25 B flokkur ungmenna 1. Guðmar Freyr Magnússon og Eldur frá Íbishóli 8,71 A-flokkur 1. Lokbrá frá Hafsteinsstöðum og Skapti Steinbjörnsson 8,75 A-flokkur áhugamanna 1 Vakning frá Hóli og Hrefna Hafsteinsdóttir 7,91 A flokkur ungmenna 1. Guðmar Freyr Magnússon og Rosi frá Berglandi I 8,66 Barnaflokkur 1. Fjóla Indíana Sólbergsdóttir og Lipurtá frá Bjarnastaðahlíð 8,53 Unglingaflokkur 1. Ólöf Bára Birgisdóttir og Jökull frá Nautabúi 8,40 Gæðingatölt Meistaraflokkur 1. Dís frá Hvalnesi og Egill Þórir Bjarnason 8,61 Gæðingatölt áhugamanna 1. Lipurtá frá Bjarnastaðahlíð og Fjóla Indíana Sólbergsdóttir 8,42 Fákaflug 2021 Guðmar Freyr hlaut Hnokkabikarinn Guðmar Freyr hlaut Hnokkabikarinn fyrir árangur í sem flestum greinum. MYND AF NETINU 31/2021 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.