Feykir


Feykir - 18.08.2021, Blaðsíða 11

Feykir - 18.08.2021, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: :Far.. Sudoku Krossgáta FEYKIFÍN AFÞREYING Feykir spyr... Hvaða lið vinnur Ensku úrvalsdeildina þetta tímabilið? Spurt á Facebook UMSJÓN: Sæþór Már „Er alveg viss um að mínir menn í United taki þetta í ár enda strax komnir á toppinn eftir fyrstu umferð.“ Bergljót Ásta Pétursdóttir Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum: Ótrúlegt - en kannski satt... Empire State-byggingin er 102 hæða skýjakljúfur í New York og er nafnið dregið af viðurnefni New York fylkis. Hún var heimsins hæsta bygging í rúm fjörutíu ár eða frá árinu 1931 og þar til turnarnir í World Trade Center risu 1972. Eftir hryðjuverkin 11. september 2001 varð Empire State- byggingin sú hæsta í borginni á ný. Ótrúlegt, en kannski satt þá eru 1.575 tröppur frá jarðhæð að toppi byggingarinnar. Tilvitnun vikunnar Það gáfulegasta sem þú getur gert ef þú býrð í helvíti er að láta fara vel um þig. – Charles Bukowski „Eins mikið og mig langar að segja að Liverpool taki bikarinn heim, er ég ansi hræddur um að Chelsea fagni næsta vor. Þeir fá fá mörk á sig og voru að næla sér í eitt stykki Lukaku, held að það sé uppskrift sem geti ekki klikkað.“ Kristófer Már Tryggvason „Ég held að titillinn fari aftur til Manchester borgar, en það er bara spurning hvort liðið taki hann. Leiðinlegt að segja það en United eru líklegri. “ Jóhann Daði Gíslason LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Hér þarf að laga skemmdir. F „Ég ætla að segja Manchester United. Ég held að þetta verði árið sem allt gengur upp hjá Norðmanninum síunga. Ef ég veðja ekki á ManU verður mér afneitað bæði af föður og syni.“ Lee Ann Maginnis Skerið pylsuna í bita og setjið á disk með Doritos í miðjunni. RÉTTUR 3 Pylsa að hætti New York búa - tekið af Paz.is 1 pakki af venjulegum pylsum (5 stk) 1 pakki pylsubrauð Heinz mild sinnep súrkal lauksósa (sjá uppskrift) Aðferð: Gott er að grilla pylsurn- ar en má líka sjóða þær. Hitið brauðið örlitla stund í örbylgju- ofni. Setjið svo á pylsuna, súrkál neðst, svo pylsu ofan, laukssósu þar ofan á og toppið með Heinz mild sinnepinu. Lauksósan: 2 msk. ólífuolía 2 laukar skornir í ræmur 1/2 tsk. kanill 1/2 tsk. Chili powder 10 dropar tabasco sósa pínu salt 85 g Heinz tómatssósa 1/2 bolli vatn Aðferð: Hitið olíu á pönnu og skerið laukinn í langar ræmur. Setjið svo laukinn á pönnuna og leyfið honum að mýkjast ögn. Kryddið svo með kanil, chili powder og tabasco og saltið ögn líka. Hrærið vel saman og hellið svo tómatsósu og vatni yfir og leyfið að sjóða í eins og 15 mínútur. Þessa sósu má gera daginn áður eða eitthvað fyrr og geyma í kæli en gott er að hita hana aðeins upp áður en hún er sett á pylsuna Pylsur, pylsur og aftur pylsur Ef það er eitthvað sem ég fæ nett ógeð af eftir sumarið þá er það pylsa með steiktum lauk, tómatsósu og remolaði, bæði undir og yfir, í pylsubrauði. Sumartíminn hjá minni fjölskyldu einkennist svolítið af þétt skipuðum dögum sem enda oftar en ekki á einhverju sem tekur mjög stuttan tíma að útbúa og þá er allt of auðvelt að henda í pyslur. Dóttir mín hefur síðustu vikurnar sagt við mig að hún borði ekki lengur pylsur því hún er komin með svo mikið ógeð. Ég fór að gramsa á netinu og fann nokkrar skemmtilegar uppskriftir með pylsum í og á örugglega eftir að nýta mér þessar á næstunni en er samt ekki viss um að þessar falli vel í kramið hjá krökkunum en foreldrarnir fá smá tilbreytingu. RÉTTUR 1 Pico de gallo chilipylsa - tekið af grillsnilld.is Chilipylsur eða venjulegar pyslur pylsubrauð guacamole tómatar rauðlaukur kóríander chili hvítlaukur lime kúmen salt og pipar eftir smekk rifinn ostur Aðferð: Útbúið pico de gallo með því að skera niður tómata, rauðlauk, hvítlauk, kóríander og blanda saman í skál. Bætið við kúmen, kreistið lime yfir og saltið og piprið eftir smekk. Grillið pylsur þar til þær eru tilbúnar og hitið brauðið á grillinu. Dreifið pico de gallo í pylsubrauðin með pylsunni. Bætið rifnum osti ofan á til að fullkomna pylsuna. RÉTTUR 2 Seattle style pylsur - tekið af grillsnilld.is Kryddpylsur pylsubrauð kóríander jalapeno ólífur beikonsulta Doritos, Sweet chili Aðferð: Grillið pylsurnar þar til þær eru tilbúnar og hitið brauðið á grillinu. Raðið hráefnum í pylsubrauðið með pylsunni. ( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is Pylsa að hætti íbúa New York. MYND: PAZ.IS 31/2021 11 Vísnagátur Sveins Víkings Eg sá það fljóta á sjónum. Eg sá það á skýjanna her. Eg sá það saurugt í snjónum. Segðu mér hvað það er.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.