Feykir


Feykir - 18.08.2021, Blaðsíða 7

Feykir - 18.08.2021, Blaðsíða 7
Nokkur orð um Vancouver... Hin fallega Vancouver á vesturströnd Kanada er jafnaldri Coca Cola eða 139 ára gömul – sem er enginn aldur fyrir stórborg – en íbúar eru í dag um 640 þúsund. Borgin hefur margoft verið á lista yfir þær 10 borgir í heiminum þar sem lífsgæði eru mest. Vancouver er oft kölluð Hollywood norðursins en í Norður Ameríku skipar borgin annað sætið á lista yfir þær borgir þar sem mest er framleitt af kvikmyndum og sjónvarpsefni. Los Angeles og Vancouver eru báðar á vesturströnd Norður Ameríku en vegarspottinn á milli borganna er 2050 kílmetra langur sem gerir tæplega 20 tíma akstur. Í Vancouver er lengsta sundlaug Kanada, Kits Pool, en hún er 137 metra löng eða næstum þrisvar sinnum lengri en lögleg sundlaug á Ólympíuleikum. Hið bráðnauðsynlega og sívin- sæla efni, Botox, var fundið upp í Vancouver. Stanley Park almenningsgarðurinn í Vancouver er 10% stærri en Central Park í New York. Vinsælt er að hjóla í gegnum garðinn eða hjóla eða ganga meðfram hinum svokallaða Seawall. Greenpeace-samtökin voru sett á laggirnar í Vancouver árið 1971 og eru samtökin því fimmtug í ár. Talið er að elsta eplatréið á norðvesturströnd Ameríku sé í Vancouver. Því var plantað árið 1826 við Fort Vancouver. Meðal þekktra söngelskra Vankúvera má nefna Michael Bublé, Bryan Adams, Söru McLachlan, Körlu Rae Jepsen og rapparann Powfu sem hefur verið í samstarfi við Króksarann Ouse sem býr einmitt í næsta húsi við foreldra Áslaugar Sóllilju í Suðurgötunni. Stundum er heimurinn agnarsmár. Mest lesna fréttin í fyrra í Feyki þeirra Vankú- vera (www.vancouverisawesome.com) sagði af pari sem gerði sér lítið fyrir og keypti allt kjötið (tvær fullar innkaupakerrur) í kjötborði Save-On-Foods-verslunar einnar í borginni laugardagskvöldið 14. mars 2020. Semsagt í upphafi Covid-faraldursins í Ameríku og fólk kannski ekki með fullum fimm. Það varð ekki til að auka vinsældir parsins að það grobbaði af því við aðra viðskiptavini að hafa tæmt búlluna. Uppátækið þótti ekki til eftirbreytni og margir tóku þessu afar illa og jafnvel þó þetta hafi nú bara gerst í hinu annars friðsama Kanada varð parið að leita á náðir fjölmiðla til að rétta hlut sinn. Dan Marcotte sagði að hann og vinkona hans væru orðin skíthrædd. „Við erum búin að fá morðhótanir og ég svara ekki lengur í símann þannig að ég er farinn að verða af viðskiptum. Meira að segja mamma mín skammast sín fyrir mig.“ Kvöldstemning í Vancouver. MYND AF NETINU skiptir gríðarlega miklu máli, hvort sem tilgangur þeirra er að birta fréttir, selja varning eða eitthvað allt annað. Ég hóf störf hjá Shopify fyrr á þessu ári í markaðsteyminu þeirra. Shopify er vefverslunar- kerfi sem gerir notendum maður hefur ósjálfrátt myndað sér.“ Hvað er ólíkt með Kanada- mönnum og Íslendingum? „Kanadamenn eru upp til hópa kurteisari. Ég var smá tíma að venjast því að heilsa og kveðja strætóbílstjórana og spjalla við afgreiðslufólk en ég kann mjög vel við það í dag. Þetta eykur samkennd og stundum lend- irðu í mjög góðu spjalli.“ Hefurðu eitthvað ferðast um Kanada? „Við höfum ferðast heilmikið innan Bresku Kól- umbíu. Stendur þá upp úr hjólaferð í kringum vínekr- urnar í Kelowna og svo snjó- brettaferðir til Whistler. Við keyrðum til Klettafjallanna í fyrra til að eltast við púður- snjóinn og það var ekki nema níu klst. akstur. Maður gleymir því oft hvað Kanada er stórt land og bara að komast yfir í næsta fylki er tíu klst. akstur í austur eða 22 klst. akstur í norður! Við höfum síðan bæði þurft að ferðast töluvert til Banda-ríkjanna út af vinnu og höfum þá nýtt tækifærið og lengt ferðir til þess að ná nokkrum frídögum í borgum eins og San Francisco, New York og Seattle.“ Hafði Covid-19 mikil áhrif á líf þitt og lífið í Kanada? „Við vorum með ferðaplön sem ekkert varð úr og svo breytti það miklu fyrir okkur að geta ekki lengur mætt á skrifstof- urnar og hitt vinina. Það tekur á að vera allan daginn heima hjá sér, sérstaklega þegar maður er ekki með almenni- lega vinnuaðstöðu. Við vorum heppin að fá tækifæri til að heimsækja Ísland um seinustu jól, þá ekki búin að hitta fjölskylduna í eitt og hálft ár og þegar við komum til baka þurftum við að fara í tveggja vikna einangrun heima hjá okkur. Það þýddi engin útivera og við þurftum að safna ruslinu okkar saman á svölunum!“ Hvers saknar þú mest að heiman? „Að sjálfsögðu fjöl- skyldunnar og vinanna. En þess fyrir utan þá eru sund- laugarnar efst á listanum og gnauðið í vindinum. Íslenskt nammi og Sauðárkróksbakarí koma þarna strax á eftir.“ Gætir þú deilt einhverri sniðugri eða eftirminnilegri sögu eða uppákomu frá dvöl þinni erlendis? „Það er margt eftir- minnilegt sem kemur upp í hugann. Ég ferðaðist til Hawaii með vinnunni þar sem við tjölduðum á ströndinni (glamping!) og fórum á brim- brettanámskeið. Þá er mjög minnisstætt þegar við sáum Karlakórinn Heimi syngja hérna og súrrealískt að sjá alla þessa Skagfirðinga saman- komna hér í Vancouver. Ég var síðan inn og út af spítala í sex vikur með samfallið lunga sumarið 2017, þar sem ég end- aði á að fara í lungnaaðgerð – ekki alveg skemmtilegasta lífs- reynslan og mér tókst að hræða mömmu mína hressilega. Fjölskylda og vinir hafa svo verið dugleg að heimsækja okkur og það er alltaf ein- staklega gaman að sýna þeim borgina og fá að upplifa Bresku Kólumbíu með þeim. Ég og foreldrar mínir rákumst á leikarana Owen Wilson og Rufus Sewell á sitthvoru kaffi- húsinu sama daginn. Mömmu þótti það ekki leiðinlegt.“ Feykir þakkar Áslaugu Sóllilju fyrir að gefa sér tíma til að segja lesendum frá lífi sínu í Kanada. Fort Vancouver. MYND AF NETINU Dan Marcotte á flutningafyrirtæki og lét gott af sér leiða árið 2017 þegar hann kom nauðsynjum til fólks í neyð vegna skógarelda. „Enginn man lengur eftir því,“ sagði sár og svekktur Dan við fjólmiðla í fyrra. MYND AF NETI Á brettum í nágrenni Vancouver sem er skíðaparadís. sínum kleift að setja upp og reka sína eigin vefverslun.“ Hvað er best við að búa í þínu nýja landi? „Veðrið er klárlega einn af helstu kostunum við að búa hérna í Vancouver. Sumrin eru sólrík og ekki of heit og haustin eru svona týpísk amerísk haust eins og maður sér í bíómyndunum. Hér er mjög vinsælt að taka upp kvikmyndir og sjónvarps- þætti, enda Vancouver stundum kölluð Hollywood norðursins. Annað sem kemur upp í hugann er fólkið, hér er mjög ríkt fjölmenningar- samfélag og það virðist vera að Kanada hafi tekist vel að taka á móti innflytjendum og flóttafólki. Við höfum kynnst fólki sem á uppruna sinn hvaðanæva úr heiminum og það er ekki hægt að leggja mat á hversu dýrmætt það er, bæði upp á vináttu og til að brjóta niður staðalímyndir sem Kvöldgöngutúr við Seawall-inn 31/2021 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.