Feykir


Feykir - 15.12.2021, Side 7

Feykir - 15.12.2021, Side 7
48/2021 7 JÓLAPISTILL BYGGÐASAFNS SKAGFIRÐINGA Berglind Þorsteinsdóttir skrifar Móðir allra hátíða Jólin hafa verið kölluð móðir allra hátíða. Áður fyrr var, eins og nú, ekki lítið um dýrðir fyrir börn sem hlökkuðu svo til að sjá öll ljósin tendruð, bæði í torf- bæjum og kirkjum – en eins og þið hafið tekið eftir þá var ansi dimmt í gömlu bæjunum á veturna, það mætti segja að veturinn hafi verið eins og ein stór rökkurganga. Á aðfangadagskvöld og gaml- árskvöld voru ljós sett í hvern krók og kima svo hvergi bæri skugga á – þetta var sannkölluð ljósahátíð. Þó ekki fyrr en húsmæður voru búnar að sópa allan bæinn, allt þvegið hátt og lágt, öll nærföt þvegin og stundum úr rúmunum líka, og jafnvel mestu sóðarnir brutu venjuna og voru hreinir og þokkalegir. Það var nefnilega gömul trú hér á landi að guð léti koma þíðvindi og þurrk rétt fyrir jólin til að fólk gæti þvegið af sér fötin og fengið þau þurr sem fyrst – þetta var kallað fátækraþerrir. Þegar búið var að gera fínt kveiktu húsmæðurnar ljósin, síðan gengu þær út og í kring um bæinn allt að þrisvar sinnum og „buðu álfum heima“ sem kallað var og sögðu: „Komi þeir, sem koma vilja, veri þeir, sem vera vilja, mér og mínum að meinalausu“. Þessari hefð fylgdi stundum að konur báru vín á borð fyrir álfa og segir sagan að það væri jafnan horfið að morgni. Ljósagangurinn var ekki minni á jólanótt. Þegar fólkið fór að hátta í baðstofunum passaði húsfreyjan að engin ljós væru slökkt og þau myndu endast út nóttina þangað til að bjartur dagur væri kominn á ný. Þá tíðkaðist að gefa hverju mannsbarni kerti bæði þessi kvöld, en þið kannist kannski við þá hefð. Eins og segir í laginu: Bráðum koma blessuð jólin, börnin fara að hlakka til. Allir fá þá eitthvað fallegt, í það minnsta kerti og spil. Margir fóru til kirkju á aðfangadagskvöld en ef ekki var farið til kirkju þá hófst jólalesturinn um kl. 6 – sem er dálítið líkt því sem mörg okkar gera í dag nema nú látum við útvarpið um lesturinn og að hringja inn jólin. Þá var bærinn orðinn upptendraður og allir búnir að þvo sér, greiða Baðstofan í Glaumbæ. Húsmæður sópuðu allan bæinn fyrir jólin. Allt var þvegið hátt og lágt, nærföt þvegin og stundum úr rúmunum líka. MYNDIR: BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA og fara í betri fötin. Þegar lestri var lokið var farið fram og borinn inn jólamaturinn: magáll, sperðlar (s.s. bjúgu) og ýmislegt hnossgæti og 3-4 laufakökur. Þá var ekki venja að skammta hangiket á jólanóttina (það er aðfanga- dag), allavega ekki hér á Norðurlandi. Svo eftir að kaffi kom til, var boðið upp á kaffi og lummur um kvöldið. Stundum var líka hnausþykkur grjónagrautur með sýrópi út á, síðar rúsínugrautur. Þetta þótti allt hið mesta sælgæti. En ekki mátti leika sér á aðfangadag – hvorki spila né dansa og alls ekki rífast eða blóta – það boðaði ekki gott. Allir þurftu að fá einhverja nýja flík á jólunum því ann- ars var sagt að fólk færi í jólaköttinn sem var óvættur sem tók þá sem enga nýja flík fengu. Það er líka til önnur svolítið skrítin saga um ný föt á jólunum, þeir sem enga flík fengu áttu að fara á aðfangadag þangað sem þeir voru fæddir – sem var þá yfirleitt eitthvert herbergi eða hús í bænum þeirra því þá fæddu konur börnin sín heima – með fullt hrútshorn af hlandi eða pissi í hendinni og skvetta því yfir rúmið sem þeir höfðu fæðst í. Þessi saga átti í raun að hvetja krakka sem höfðu ekki verið nógu dugleg að læra eða prjóna fyrir jólin því í gamla daga prjónuðu krakkar mikið. En ef allt var með felldu komu Grýla og Leppalúði ekki og enginn þurfti að fara í jólaköttinn – og glatt var á hjalla hjá börnum og full- orðnum. Byggðasafn Skagfirðinga óskar landsmönnum öllum gleði- legrar jóla- og ljósahátíðar! Heimild: Jónas Jónasson, Einar Ól. Sveinsson, & Halldóra J. Rafnar. (2010). Íslenzkir þjóðhættir. (4. útgáfa ed.). Jólatré með kertaljósum. Á aðfangadagskvöld og gamlárskvöld voru ljós sett í hvern krók og kima svo hvergi bæri skugga á – þetta var sannkölluð ljósahátíð. Prjónaflíkur. Allir þurftu að fá einhverja nýja flík á jólunum, því annars var sagt að fólk færi í jólaköttinn.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.