Feykir - 15.12.2021, Blaðsíða 7
48/2021 7
JÓLAPISTILL BYGGÐASAFNS SKAGFIRÐINGA
Berglind Þorsteinsdóttir skrifar
Móðir allra hátíða
Jólin hafa verið kölluð
móðir allra hátíða. Áður fyrr
var, eins og nú, ekki lítið
um dýrðir fyrir börn sem
hlökkuðu svo til að sjá öll
ljósin tendruð, bæði í torf-
bæjum og kirkjum – en eins
og þið hafið tekið eftir þá var
ansi dimmt í gömlu bæjunum
á veturna, það mætti segja
að veturinn hafi verið eins og
ein stór rökkurganga.
Á aðfangadagskvöld og gaml-
árskvöld voru ljós sett í hvern
krók og kima svo hvergi bæri
skugga á – þetta var sannkölluð
ljósahátíð. Þó ekki fyrr en
húsmæður voru búnar að sópa
allan bæinn, allt þvegið hátt og
lágt, öll nærföt þvegin og
stundum úr rúmunum líka, og
jafnvel mestu sóðarnir brutu
venjuna og voru hreinir og
þokkalegir. Það var nefnilega
gömul trú hér á landi að guð
léti koma þíðvindi og þurrk
rétt fyrir jólin til að fólk gæti
þvegið af sér fötin og fengið
þau þurr sem fyrst – þetta var
kallað fátækraþerrir.
Þegar búið var að gera fínt
kveiktu húsmæðurnar ljósin,
síðan gengu þær út og í kring
um bæinn allt að þrisvar
sinnum og „buðu álfum
heima“ sem kallað var og
sögðu: „Komi þeir, sem koma
vilja, veri þeir, sem vera vilja,
mér og mínum að meinalausu“.
Þessari hefð fylgdi stundum að
konur báru vín á borð fyrir álfa
og segir sagan að það væri
jafnan horfið að morgni.
Ljósagangurinn var ekki
minni á jólanótt. Þegar fólkið
fór að hátta í baðstofunum
passaði húsfreyjan að engin
ljós væru slökkt og þau myndu
endast út nóttina þangað til að
bjartur dagur væri kominn á
ný. Þá tíðkaðist að gefa hverju
mannsbarni kerti bæði þessi
kvöld, en þið kannist kannski
við þá hefð. Eins og segir í
laginu:
Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta kerti og spil.
Margir fóru til kirkju á
aðfangadagskvöld en ef ekki
var farið til kirkju þá hófst
jólalesturinn um kl. 6 – sem er
dálítið líkt því sem mörg okkar
gera í dag nema nú látum við
útvarpið um lesturinn og að
hringja inn jólin. Þá var
bærinn orðinn upptendraður
og allir búnir að þvo sér, greiða
Baðstofan í Glaumbæ. Húsmæður sópuðu allan bæinn fyrir jólin. Allt var þvegið hátt og lágt, nærföt þvegin og stundum úr
rúmunum líka. MYNDIR: BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA
og fara í betri fötin. Þegar lestri
var lokið var farið fram og
borinn inn jólamaturinn:
magáll, sperðlar (s.s. bjúgu) og
ýmislegt hnossgæti og 3-4
laufakökur. Þá var ekki venja
að skammta hangiket á
jólanóttina (það er aðfanga-
dag), allavega ekki hér á
Norðurlandi. Svo eftir að kaffi
kom til, var boðið upp á kaffi
og lummur um kvöldið.
Stundum var líka hnausþykkur
grjónagrautur með sýrópi út á,
síðar rúsínugrautur. Þetta þótti
allt hið mesta sælgæti. En ekki
mátti leika sér á aðfangadag –
hvorki spila né dansa og alls
ekki rífast eða blóta – það
boðaði ekki gott.
Allir þurftu að fá einhverja
nýja flík á jólunum því ann-
ars var sagt að fólk færi í
jólaköttinn sem var óvættur
sem tók þá sem enga nýja flík
fengu. Það er líka til önnur
svolítið skrítin saga um ný föt
á jólunum, þeir sem enga flík
fengu áttu að fara á aðfangadag
þangað sem þeir voru fæddir
– sem var þá yfirleitt eitthvert
herbergi eða hús í bænum
þeirra því þá fæddu konur
börnin sín heima – með fullt
hrútshorn af hlandi eða pissi í
hendinni og skvetta því yfir
rúmið sem þeir höfðu fæðst í.
Þessi saga átti í raun að hvetja
krakka sem höfðu ekki verið
nógu dugleg að læra eða
prjóna fyrir jólin því í gamla
daga prjónuðu krakkar mikið.
En ef allt var með felldu komu
Grýla og Leppalúði ekki og
enginn þurfti að fara í
jólaköttinn – og glatt var á
hjalla hjá börnum og full-
orðnum.
Byggðasafn Skagfirðinga óskar
landsmönnum öllum gleði-
legrar jóla- og ljósahátíðar!
Heimild: Jónas Jónasson, Einar Ól.
Sveinsson, & Halldóra J. Rafnar. (2010).
Íslenzkir þjóðhættir. (4. útgáfa ed.).
Jólatré með kertaljósum. Á aðfangadagskvöld og gamlárskvöld voru ljós sett í hvern
krók og kima svo hvergi bæri skugga á – þetta var sannkölluð ljósahátíð.
Prjónaflíkur. Allir þurftu að fá einhverja nýja flík á jólunum, því annars var sagt að
fólk færi í jólaköttinn.