Feykir


Feykir - 15.12.2021, Qupperneq 11

Feykir - 15.12.2021, Qupperneq 11
48/2021 11 af fjórum sjálfstæðum smásögum sem þó mynda heild, svokallaðan sagnasveig, en það bókmenntaform er nokkurn veginn miðja vegu milli smásögunnar og skáldsögunnar, með öll einkenni smásagna en heildarblæ skáldsögunn- ar vegna þeirra tenginga sem eru á milli allra Í fyrra kom út bókin Jól undir Spákonufelli en það var Ástrós Elísdóttir sem skrifaði og gaf út. Sögusvið sagnanna er falið í titlinum, en undir hinu dulmagnaða Spákonufelli kúrir þorpið Skagaströnd, heimkynni höfundar síðustu ár. „Sagan er í senn næm, ljúf, óvænt og sprenghlægileg og það er erfitt að komast hjá því að tárast á fallegustu stöðunum en þeir eru margir,“ segir Júlía Margrét Einarsdóttir í umsögn um Jól undir Spákonufelli. Bókin er myndskreytt af Tommaso Milella teiknara. Þetta er fyrsta bók Ástrósar og Feykir lagði fyrir hana nokkrar spurningar. Andlitið á Ástrós hefur dúkkað upp á síðum Feykis af og til síðustu árin en síðan sumarið 2015 hefur Ástrós verið búsett á Skagaströnd ásamt fjölskyldu sinni en áður en hún flutti norður í land var hún fræðslu- stjóri Borgarleikhússins. Á Skagaströnd hefur hún unnið að fjölmörgum verkefnum tengdum leik og söng, m.a. þýtt söng- leiki og gamanverk, tekið að sér námskeiðahald og verkefnastjórnun og unnið að framkvæmd fyrstu barnamenningar- hátíðar landshlutans sem er á dagskrá vorið 2022. Ástrós starfar nú hjá SSNV sem verkefnastjóri Sóknaráætlunar Norður- lands vestra og við atvinnuráðgjöf með sérstaka áherslu á stuðning við menningar- tengda starfsemi. En vindum okkur í spjallið... Gætirðu sagt okkur aðeins frá bókinni Jól undir Spákonufelli? „Ég gaf bókina út fyrir síðustu jól og hún samanstendur Ástrós Elísdóttir á Skagaströnd Ástrós segir sögur af jólum undir Spákonufelli Kápa bókarinnar Jól undir Spákonufelli. Teiknarinn safnaði saman ýmsum karakterum á kápumynd sem ekki koma fyrir í einni og sömu sögunni, þarna má t.d. sjá Þórdísi spákonu, Grýlu og Leppalúða, jólaköttinn og einhverja jólasveina, það sést líka í snjótittling sem kemur fyrir í einni sögunni. MYNDIR. TOMMASO MILELLA var sprottin af nauðsyn, en ég var beðin um að lesa upp jólasögu á litlu jólunum í Höfðaskóla á Skagaströnd og kvöldið áður en að upplestrinum kom var ég að leita að sögu en fann enga sem mér leist á, svo ég ákvað að skrifa frekar sögu sjálf. Jólasögunni var vel tekið og hefur hún verið lesin síðan fyrir yngstu nemendur Höfðaskóla í desember. Þegar ég var svo að ljúka meistaranámi í ritlist árið 2019 ákvað ég að bæta við þennan sagnaheim og skrifaði hinar sögurnar þrjár. Ég sótti svo um styrk í Uppbyggingarsjóð það haust til að gefa bókina út og fékk hann, svo ég fékk spark í rassinn til að ganga í málið árið 2020. Ég stofnaði lítið fyrirtæki með manninum mínum, Mosató ehf., setti bókina upp og gaf hana út.“ Hvar er hægt að nálgast Jól undir Spákonufelli? „Ég er að selja bókina sjálf í gegnum netið en hún er líka til sölu í verslunum Pennans og auðvitað í Spákonuhofi á Skagaströnd. Heimasíðan mín er https://www. undirspakonufelli.com og þar er að finna ýmsar upplýsingar, m.a. um mig og Tommaso Milella, ítalskan fjölskylduvin sem teiknaði allar myndirnar í bókinni – þó hann hafi reyndar enn ekki komið til Íslands.“ Ástrós bendir á að á heimasíðunni er að finna tvær umsagnir um bókina frá öðrum rithöfundum en þar segir Arndís Þórarinsdóttir: „Í Jólum undir Spákonufjalli koma saman lifandi sögusvið, mikil frásagnargleði og sannur jólaandi! Yndisleg aðventubók fyrir alla fjölskylduna.“ Júlía Margrét Einarsdóttir skrifar: „Ástrós tekst að skapa ljóslifandi og gullfallegan töfraheim með piparkökum, snjókornum og mandarínuilmi. Ýmsir þjóðlegir vættir dúkka upp en enginn fær að hitta þau nema auðvitað krakkarnir, því fullorðnir skilja ekki allt. En bókin hentar öllum aldri, krakkarnir sogast inn í galdraveröldina og þeir sem eldri eru með þeim. Sagan er í senn næm, ljúf, óvænt og sprenghlægileg og það er erfitt að komast hjá því að tárast á fallegustu stöðunum en þeir eru margir. Fyrir krakka á öllum aldri sem hlakka til jólanna en líka þá sem hafa enn ekki fundið andann hellast yfir sig er Jól undir Spákonufelli rétta bókin.” „Ég er byrjuð á næstu bók, Sól undir Spákonufelli, en veit ekki hvenær hún kemur út,“ segir Ástrós að lokum. VIÐTAL Óli Arnar Brynjarsson Astrós sæl en myndina gerði teiknari bókarinnar, Tommaso Milella. smásagnanna. Þær gerast allar sama kvöldið, nokkrum dögum fyrir jól, á sama sögusviði - undir Spákonufellinu - og í þeim mætast tveir heimar eða víddir en þó aldrei með sama hætti. Jólahefðir og þjóðmenn- ing eru rauður þráður í gegnum sögurnar, ilmur af greni, mandarínum og piparkökum,“ segir Ástrós Fyrir hverja er bókin? „Hún ætti að höfða jafnt til barna sem fullorðinna jólabarna en þetta er bók sem er gaman fyrir ólíkar kynslóðir að lesa saman og þau sem eldri eru geta hjálpað þeim yngri að koma auga á tengingar og fróðleik sem bundinn er við svæðið og hefðirnar okkar.“ Hvernig kom það til að þú skrifaðir bókina? „Tilurð fyrstu sögunnar Nóttin hans Bjúgnakrækis.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.