Feykir - 15.12.2021, Side 15
48/2021 15
staðið yfir í ríflega aldarfjórðung og það er næsta
víst að aldrei hefur verið tekin saman jafn viða-
mikil og ítarleg byggðasaga. Einstakt verk!“
Ómar Bragi Stefánsson
SAUÐÁRKRÓKI
Ómar Bragi hefur glatt og sameinað Skagfirðinga
nær og fjær með Facebook-síðu sinni Skín við
sólu. Hópinn mynda 5.700
Skagfirðingar sem deila
myndum og sögum af
Skagafirði á jákvæðan hátt.
„Þetta hefur lyft umræðu á
jákvæðara plan, brottfluttir
fengið tækifæri til að minn-
ast æskuslóða og vettvangur fyrir alla til að deila
því góða sem er að gerast. Þetta framtak er til
fyrirmyndar og ættu fleiri svæði á NV-landi að
gera hið sama. Síðan er ómetanleg heimild og
hefur tengt marga á tímum sem hefur jafnan
verið mörgum erfiður.“
Sigurjón H. Sigurbjörnsson
GARÐI HEGRANESI
Sigurjón lenti í bílslysi í byrjun september
með þeim afleiðingum að hann varð fyrir hluta-
skaða og er á Grensás núna
í endurhæfingu. „Hann á
þessa tilnefningu skilið
vegna þess hve jákvæður
og duglegur hann er eftir
slysið og staðráðin í því að
ganga á ný. Að vera bara 17
ára og lenda í svona alvarlegu slysi og öllu
kippt undan þér, lokaður inn á Grensás þar sem
Covid er ekki að hjálpa til og engin má koma í
heimsókn núna. Hann er samt alltaf brosandi
og jákvæður.“
- - - - -
Tökum þátt í skemmtilegri kosningu
og kjósum mann ársins á
Norðurlandi vestra!
Kosningin fer fram
líkt og vanalega
á vefnum góða
– Feykir.is
Kjörið hefst á föstudag
Tilnefningar til Manns ársins 2021 á Norðurlandi vestra | palli@feykir.is
Eins og undanfarin ár stendur Feykir fyrir
kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra.
Gefst íbúum á svæðinu og öðrum lesend-
um Feykis kostur á að velja úr hópi þeirra
sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta
skiptið bárust sjö tilnefningar sem teknar
voru til greina.
Hægt verður að greiða atkvæði á
vefnum Feykir.is eða senda atkvæði í pósti
á: Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkróki.
Kosningin hefst kl. 13 föstudaginn, 17.
desember og lýkur kl. 12 á hádegi á
nýársdag, 1. janúar.
Tilnefndir eru, í stafrófsröð:
Auðunn Blöndal
BROTTFLUTTUR KRÓKSARI
Fjölvarparinn og skemmtikrafturinn Auðunn
Blöndal hefur látið hendur standa fram úr
stuttermum í ár. Í byrjun árs
sýndi Stöð2 frábæra þætti
hans um íslenskt tónlistar-
fólk og nú í haust var
frumsýnd bíómyndin
Leynilögga sem byggð er
hugmynd hans og hann
leikur aðalhlutverkið í. Myndin sló óvænt í gegn
á heimsvísu og gekk vel á Íslandi. „Auddi er einn
vinsælasti útvarps-, hlaðvarps- og sjónvarps-
maður landsins og er ófeiminn við að minna alla
á að hann er af Króknum.“
Árni Björn Björnsson
SAUÐÁRKRÓKI
Árni Björn er eigandi veitingastaðarins Hard
Wok Cafe á Aðalgötunni á Sauðárkróki, ásamt
Ragnheiði Ástu Jóhannsdóttur konu sinni, en
þau hafa verið ósínk að rétta fram hjálparhönd
við ýmis málefni og styðja
við það sem er að gerast í
samfélaginu. „Til dæmis
karfan, stuðningur við
fjölskyldu Erlu og svo
ótalmargt annað. Þau gera
mjög mikið fyrir okkar samfélag og alltaf tilbúin
að rétta hjálparhönd.“
Bóthildur Halldórsdóttir
BLÖNDUÓSI
Bóta, eins og hún er kölluð, heldri borgari á
Blönduósi, er einstök að flestu leyti. „Hún er
einfaldlega alltaf að hjálpa
öðrum, hvort heldur það er
að heimsækja þá sem eru
einmanna á sjúkrastofnun
eða út í samfélaginu, skutla
ef þarf og eða fyrir aðra,
dreifir gleði hvar sem hún
fer og ætlast aldrei til neins í staðin. Æðrulaus
kona sem man tímana tvenna og kallar ekki allt
„ömmu“ sína. Slíkar hvunndagshetjur fá sjaldan
eða aldrei viðkenningu en ættu þó það svo
margfaldlega skilið.“
Gústav F. Bentsson
STEINI REYKJASTRÖND
Síðastliðinn apríl hætti Gústav störfum hjá svf.
Skagafirði eftir 33 ára starf og byrjaði að
götusópa fyrir sveitar-
félagið, stofnanir og fyrir-
tæki. „Hann ver mest öllum
sínum tíma í að halda götum
í Skagafirði í góðu standi en
einnig sýgur hann upp úr
niðurföllum í sveitarfélag-
inu og hugsar sífellt um aðra. Hörkuduglegur
maður sem alltaf er reiðubúinn að hjálpa vinum
og vandamönnum.“
Hjalti Pálsson
SAUÐÁRKRÓKI
Hjalti er ritstjóri Byggða-
sögu Skagafjarðar. „Hann á
skilið að vera valinn
Norðvestlendingur ársins
2021 en á því ári kom út
tíunda og síðasta bindið í
ritröðinni. Vinnan hefur
Maður ársins á Norðurlandi vestra
árið 2020 var Bryndís Rut Haralds-
dóttir, fyrirliði kvennaliðs Tindastóls
sem sigraði Lengjudeild kvenna með
miklum glæsibrag það sumarið.
Þar fór Bryndís fyrir sínu liði í hjarta
varnarinnar sem fékk aðeins á sig sjö
mörk í 17 leikjum. Í tilnefningu segir
að Bryndís Rut hafi verið jákvæð og
hugrökk, stjórnað sínu liði með góðu
fordæmi og talanda og vart stigið
feilspor á vellinum. Hún er fyrsti
fyrirliði knattspyrnuliðs í sögu
Tindastóls sem leiðir lið sitt upp í
efstu deild. /PF
Bryndís Rut Haraldsdóttir
Varmahlíð
Maður ársins á Norðurlandi vestra 2020
28. Jólamót Molduxa í körfubolta
verður ekki haldið annan í jólum,
ekki frekar en síðast, útaf … æji þú veist!
En! Eins og í fyrra ætlum við að halda draugamót þar sem enginn snertir bolta en styður
samt við körfuboltann á Króknum. Þar sem allur ágóði af Jólamótum Molduxa hefur runnið
til körfuknattleiksdeildar Tindastóls og er stór liður í fjáröflun
deildarinnar, munu Molduxar, líkt og um seinustu jól, bjóða liðum
að skrá sig í leik og njóta um leið forgangs á þátttöku í Jólamóti
Molduxa 2022.
Mun nafn liðsins fara í pott (á Fésbókarsíðu klúbbsins) og kl. 18
á annan í jólum verður eitt lið dregið úr pottinum og hlýtur flat-
bökuveislu fyrir tíu manns á Hard Wok Cafe, og gullmedalíur að
launum, sem væntanlega verða safngripir framtíðarinnar. Gjald á
hvert lið er kr. 20.000.
Einstaklingar eru einnig hvattir til að skrá sig og fara þeir í annan pott sem dregið verður úr og fá
útdregnir óvæntan glaðning frá Sauðá, Lemon og N1. Skráning á hvern einstakling er kr. 2000.
Greitt skal fyrir 20. desember inn á reikning 0310-26-006000, kt. 590118-0600.
ATH. ef greiðsla er ekki komin fyrir þann tíma verður viðkomandi skráning ekki tekin gild.
Molduxar heita því að skrá a.m.k. tíu lið, en þú?
Skráning á netfangið pilli@simnet.is. Upplýsingar á Fésbókarsíðu Molduxa
Fróðleikur
úr fjöllunum
Hvammshlíðardagatal
Enn á ný má finna hið
skemmtilega dagatal
Karólínu í Hvammshlíð
sem, auk þess að halda
manni við réttu dagana,
er jafnan fræðandi og
prýtt fjölda mynda.
„Núverandi útgáfa daga-
talsins býður aftur upp á
viðauka á sér blöðum með
alls konar aukaupplýsingar.
Blaðsíðurnar fyrir ofan
hverja mánaðarsíðu inni-
halda að þessu sinni aðallega
sögulegt myndefni, sérstak-
lega efni tengt kindum.
Gamlar myndir eru ómetan-
legur fjársjóður sem talar
sitt eigið tungumál og sem
segir sögur, það þarf bara að
gefa sér góðan tíma til að
skoða og „hlusta“. Textarnir
eru þess vegna stuttir að
þessu sinni. Þar að auki
kynni ég nokkra sauðfjárliti
og -litaafbrigði sem vantaði
í fyrri útgáfunni og er að
gefa smá yfirlit yfir fjöl-
breytni ullarinnar íslensku
sauðkindarinnar.“
Hægt er að nálgast daga-
talið í Skagfirðingabúð, Líf-
landi Blönduósi, Alþýðulist
Varmahlíð, Kaupfélagi
Borgfirðinga, Fóðurblönd-
unni Selfossi, Valgerði Auð-
unsdóttur Húsatóftum og
svo er til „afhendingar-
staður“ í Reykjavík, segir
Karólína sem hvetur áhuga-
sama til að hafa samband
sem ekki geta krækt í
dagatalið á fyrrnefndum
stöðum. /PF